Leita í fréttum mbl.is

Manískur

O men djöfull er ég dottinn í nýju söguna um Likkuna sem heitir ,,Enter Night". Mæli með henni. Enn og aftur er það Mick Wall sem skrifar og hann ásamt Neil Strauss gjörsamlega aðalgaurarnir í ævisögum tónlistarfólks.

Borðuðum á Vegamótum í gær og tókum þennan klassíska bókarúnt eftir það þar sem ég rakst á bókina. Hálfnaður með hana núna og lýk henni sennilega á morgun. Hún er tæplega 500bls svartur klumpur með Hetfield öskrandi á forsíðunni.

Lengi lifi Likkan


allskonar ársins

Besti tannburstinn: Reach með þykkum haus(blár)
Besta tannkremið: Crest(með undirliggjandi kókósbragði)

Besti maturinn: Viðbrenndi(viljandi) Mango Chutney kjúklingurinn hennar Betu
Drykkur ársins: Malt

Fallegasti gítarinn: Ibanez Ergodyne EXR 170

Skemmtilegustu manneskjur: Beta og Seb

Skemmtilegasta lagið að syngja með Seb í bílnum: Vínber II og Sticks and Stones

Athyglisverðasta atvik ársins: Þegar við fórum í sunnudagsrúnt(á laugardegi) suðureftir og nenntum ekki sömu leið tilbaka og enduðum á því að fara bara hringinn í kringum landið á tveim dögum í staðin.

Besti aðfangadagurinn: 23.des

Söknuður ársins: Sebas(þegar hann sefur)

Ótrúlegast ársins: að Courtney Love hafi átt nokkur góð lög á nýrri skífu(someone else´s bed, Honey, Pacific coast highway, For once in your life)

Heimskulegasti hlutur framkvæmdur af mér sem svo varð fyndið eftirá: Að stúta dry 300ml Tekíla flösku í einum sopa(dauður klst síðar).

Besta golfmót ársins: Jónar Transport Open(sem ég vann)

Járn ársins: Titleist 695MB
Járn í öðru sæti: Ironman 2


Síður 2010

Bestu síður 2010:

1.www.sir.blog.is
2.www.gogoyoko.com/artist/sir
3.www.google.com
4.http://icanhascheezburger.com/
5.www.kylfingur.is
6.www.Facebook.com
7.www.isohunt.com
8.www.youtube.com


Uppákoma 2010

Uppákoma ársins:

1.Blóðtappi

2.Eyjafjallajökull

3.Ekki valinn í gkg sveit

4.Allt annað


2010 Kvikmyndir

Skemmtilegustu kvikmyndir 2010:

Inception
Kick Ass
Scott Pilgrim
Tron
Hot tub time machine
Salt


2010

Bestu skífur ársins. Þá meina ég þær sem ég hlustaði á, ekki endilega að þær hafi verið gefnar út á árinu.

Íslensk tónlist:

1.Who Knew - Bits and pieces of a major spectacle
2.Jónsi - Go
3.SIR - Analog
4.Sigurður Guðmundsson - Nú stendur mikið til
5.Ensími - Gæludýr

Erlend tónlist:

1.Everything Everything - Man Alive
2.Sleigh Bells - Treats
3.Kings of Leon - Come around sundown
4.The XX - xx
5.Band of skulls - Baby Darling Doll Face Honey

Shit mér finnst svo erfitt að muna hvað ég var að hlusta á. Rétt mundi ofangreint. Veit hins vegar að ég fíla ekki margt af stöffinu sem er ofarlega á listum. Eins og Gorillaz, Mgmt, Vampire Weekend, Arcade Fire var allt í lagi en allt of hæpað, Beach house, Broken social scene, Robert Plant.

Hverju er ég að gleyma?


Áramótin

Áramótin voru fín hjá okkur. Sebas fer venjulega að sofa kl 20:30 en tóraði til 01:30. Við vorum hjá mömmu og pabba í Garðabænum.

Borðuðum kl 20, fórum á brennuna, skutum upp pínu hér og þar og fórum svo upp á hæðina hjá Lundarbóli og horfðum á alla aðra skjóta upp á miðnætti. Það var stórfenglegt útsýni og Sebas fílaði það í botn.

Röltum svo aftur heim og skutum okkar aðalstöffi upp. Sebas var pínu hræddur og sat til hliðar í fanginu á Betu með hlífðargleraugun sín.

Við ætluðum upphaflega bara að kaupa pínu pakka handa Sebas en vegna miskilnings þá enduðum við með stöff að andvirði 15þ kjells. Í fyrsta sinn síðan ég var krakki skaut ég upp einhverju magni. Það var fínt. Ég hafði mest gaman af því af öllum.

Sebas sofnaði svo í bílnum á heimleiðinni. Vaknaði svo þegar ég var að leggja hann upp í rúmið. Settist sperrtur upp, kveikti öll ljós og vildi fara að leika. Hann var svo aðframkominn af þreytu að hann þvældi bara eitthvað og sofnaði svo. Var bara í ruglinu.

Vaknaði kl 9:30 daginn eftir sem er það mesta sem hann hefur sofið út.

Allt í allt, bara helvíti fín áramót.


LOKAÐ

----------Lokað í dag vegna talninga----------------


....og eitt í viðbót

ó, eitt í viðbót. Ég er búinn að strengja áramótaheit.

Ég ætla að vera meira í átt við Cool as a Cucumber. Eða eins og fagmennirnir kalla það ,,The dobbúl C action".

Þetta þýðir að ég verð afslappaðri og læt færri hluti faze-a mig.

Núþegar byrjaður að æfa mig og Beta hatar hve mikið mér stendur á sama um flesta hluti eins og uppvask, ryksug og þess háttar.


Síðasta færslan?

Síðasti dagur ársins! Þetta ár hefur verið viðburðarríkt. Flest gott. Frétt ársins sennilega blóðtappinn. Veit ekki hvort allir vita af því en það var alvarlegra en flesta grunar. Ég var gangandi tímasprengja allt sumarið. Tappaagnir að skjótast í gegnum...

The informant

Sáum informant í gær. Hún var lala. Sæmileg afþreying en ekkert meira. Gef henni 3 af 5

Tannburstar

Er in between tannbursta eins og er. Var búnn að vera smá tíma með góðan tannbursta en keypti svo nýjan. As you do. Hann sökkar. Hann er með svo mjóan haus. Skil ekki hvernig fólk getur notað svona strá við að hreinsa tennurnar. Ég vil alvöru verkfæri!...

Reykur

Höfum farið á nokkra tónleika núna undanfarið. Það er einn samnefnari sem alltaf poppar upp. Nefnilega......reykur. Hvað er málið með reyk? Af hverju er alltaf spúað reyk yfir sviðið. Er ekkert að reyna að vera sniðugur, er bara forvitinn að vita hvað...

Jónsi í gær

Fórum á Jónsa í gær. Þvílíkt góðir tónleikar. ,,Brassgat í bala" hitaði upp og mér hefur ekki leiðst eins mikið og þegar Ghostdigital hitaði upp fyrir Pixies. Ótrúlega óspennandi stöff. Jónsi byrjaði svo sirka 21:10 og við búin að bíða í 70 mín eftir...

Sjúumst á Jónsa í kvöld

Förum á Jónsa í kvöld. Ekki þó á Jónsa í Svörtum hönskum heldur hinn gæjann. NB. munum ekki blása sápukúlur. Þeir sem vilja nálgast goðið til að fá eiginhandaráritanir þá verðum við á þriðja bekk.

Ibanez EXR-170

Ég keypti mér gítar í dag. Ibanez Ergodyne-X eða betur þekktur sem Ibanez EXR-170 Fann hann notaðan á www.hugi.is Keytpi hann ásamt Hercules dobbúl statífi á 35þ bökkerúnís. Það var ungur útvarpsmaður sem átti gítarinn. Gæjinn sem söng í Igor minnir mig....

TRON!!!!!!!!

Fórum á Tron í gær. Svo ég sé tillitssamur og ekki að byggja upp of miklar væntingar þá vil ég bara segja eitt.... EPIC!!!!! Þeir sem hafa ekki séð myndina....... FARIÐ!!!!! NÚNA! Í öðrum fréttum er það helst að ég sat við hliðiná gaur sem gat ekki hætt...

TRON

Erum að fara á TRON með Jeff Bridges og co Það hlakkar í mér af spenningi. Förum í Egilshöll, sal 1. Kemur ekkert annað til greina. Við erum að tala um 3-D í botn. Þessi mynd er athyglisverð að því leyti að fyrri myndin sem kom út árið 1982 spáði rétt...

Bíórýni

Horfðum talsvert á arineldinn(sjónvarpið) yfir jólin. Miðað við venjulega allavega. Sáum nokkrar myndir. Curious case of Benjamin Button: Frábær mynd. Reyndar búinn að sjá hana áður en ég og Beta grenjuðum samt sitthvorumegin í sófanum. Þessi fær hæstu...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband