Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Snjókúla

Í dag var snjókúlu kastað í bílinn minn. TVISVAR. Þá meina ég í tvö mismunandi skipti. Klukkan 17 og svo aftur kl 21.

Hef held ég aldrei fengið snjókúlu í bílinn áður.

Það var reyndar bara mjög gaman.

Í fyrra skiptið voru María og Sebas með í bílnum. María snappaði og vildi stoppa og elta þá, ég bara hló og sebas spurði hvað gengi eiginlega hér á.

Ég man þegar maður var lítill að kasta í bíla á Blönduósi þá var alltaf skemmtilegast þegar bílstjórinn kom bálreiður úr bílnum og elti mann. Þá var takmarkinu eiginlega náð.

En annars var þetta bara rólegur dagur. Ég slökkti á gemsanum og chillaði bara. Fór á borgarbókasafnið niðrí miðbæ og sat þar einn og las í hægindarstól. Nice.


Ég á afmæli í dag

Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér.

Stig

Hvað er málið með þuli! Þeir voru þarfir þegar þurfti að segja frá leikjum í útvarpi. Ekki svo mikið í sjónvarpi. Ég er að horfa á bloody leikinn og þarf ekki einhvern misvitran svokallaðan sérfræðing til að segja mér að Gerrard sé með boltann!

Ég meina.....what gives!

Ég var að stríma LP-Eve í dag af portúgalskri stöð og gæjinn sagði bara nöfnin á mönnunum sem voru með boltann. Frekar fyndið. Það er náttúrulega bara frumstigið.

Hér á ísl eru þeir þó komnir á annað stigið. Kalla sig sérfræðinga til að reyna að halda þessu gangandi áður en að við fáum loks þriðja stigið. Á þessu öðru stigi kalla þeir ekki bara nöfnin heldur eru líka með eigin skoðanir á hlutum tengdum leiknum. Oft mjög misgáfað og oftast eitthvað sem engin hefur áhuga á að hlusta á.

Þriðja stigið væri þá bara friggin hljóðið af leiknum sans misvitrir þulir.

Fjórða og síðasta stigið kemur vonandi innan skamms. Það væri bara leikurinn með ,,GO WEST" á repeat.


DV

Fékk símtal frá blaðamanni. Hann ætlar að skrifa grein um íslandsmeistarann fyrir blaðið á morgun. Afmælisgrein. Kjeppinn þrítugur.

Hann rakti skólagönguna,vinnuferil og afrek meistarans. Ásamt því að telja upp fjölskylduna.

Það verður mynd og læti.

Myndin sem fylgir er croppuð, það sem ekki sést er að ég held á stútfullu G&T glasi, ágætur á því, á MA reunioninu.


Hobnob´s

Borðaði ,,krassandi" morgunmat svo 6 hobnob´s kexkökur með kóki í hádegismat. Þrátt fyrir trefjaríkar kexkökur þá er ég orðinn frekar svangur allt í einu.

Hvaða enska 12 stafa orð er með 6 s? Helmingur stafana er s!!!

ps LP vann Neverton 0-2 á sjúddison.

Ætla að skreppa yfir til Zordiac´s palace of love og horfa á arse vinna Elsu FC og svo Barca taka los blancos.


Gelfoss

María er föst á Gelfossi með Sebas. Nei, nei, bara soldið pirrandi veður. Hún fer bara hægt yfir og þá ætti heiðin að vera fær fyrir getzinn.

Í öðrum fréttum er það helst að í dag er súper sunday.

13:30 LP-neverton
16:00 Arse-Elsa Fc
18:00 El Clássico


Díkíta

Það verður erfitt fyrir Dikta að verða ekki heimsfrægir miðað við hressleika þessara rokkslagara á nýju skífunni. Þeir þurfa virkilega að hafa fyrir því að slá ekki í gegn. Í raun getur bara eitt komið í veg fyrir það....hinn íslenski ,,þetta reddast" hugsunarháttur. Gera ekkert og halda að allt gerist fyrir þá.

Eins mikið og white lies trommarinn er þéttur þá gefur nonni ekkert eftir.

Ég er eins og lítil skólastelpa allt í einu....hefði ekki átt að fara í bíó í gær. kræst!


jer traittör og lúlla hjá pabba sænum.

Það var treittör pungur sem lá uppí rúmi með afa sínum að lesa þegar við komum úr bíóinu kl tæplega 23. Hann fer vanalega að sofa um 20:40 eða svo þannig að hann hékk á síðustu dropunum. Greyið.

Það fyrsta sem hann sagði þegar hann sá mig var ,,papá! fara í bílinn" og meinti að hann vildi fara í bílinn ekki seinna en strax.

Hann sofnaði samt ekki í bílnum á leiðinni þar sem hann var upptekinn við að headbanga ásamt því að lúftgítarast og air-tromma með lögunum hans pabba síns.

Svo veitti hann litla mótspyrnu við náttfatar íklæðnað og var með hálflokuð augun þegar María bar hann inn í herbergið sitt.

Langur dagur að baki.

Enda svaf hann streit til kl 10 í morgun. Ég vaknaði fyrstur, ónýtur í bakinu því vanalega getur maður ekki sofið svona lengi. Við actually vöktum hann.


Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 153093

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband