Leita í fréttum mbl.is

Fantasí

Djöfull vona ég að Nasri verði á skotskónnum í kvöld. Hann verður fyrirliði hjá mér í fantasí football þessa umferðina.

En skemmtilegt er frá því að segja að núna er ég í uppsveiflu í þessari blessuðu deild eftir langa og stranga byrjun. Var í neðstu sætunum í deildinni okkar (sem ég vann í fyrra) til að byrja með en náði að klifra upp í 13.sætið og sveif þar lengi vel. Tók núna kipp og er kominn upp í fimmta sætið.

Takmarkið er að sjálfsögðu að verja titilinn en fyrst þarf ég að skáka kempum eins og Póskari, the Blöndals og Hafsteins klaninu. Allt klassa leikmenn sem eru með þetta í blóðinu. Það tókst í fyrra í síðasta leik tímabilsins, þannig að þetta er ekki óvinnandi vegur.

Eitthvað læðist að mér sá grunur að strákarnir í fyrstu sætunum séu farnir að líta í bakspegilinn og svitna. Því þar sjá þeir ríkjandi meistara koma sem naut í flagi á eftir þeim.


Maðurinn á bakvið samsærið?

Var að fatta að það var Dóri sem var maðurinn á bakvið síðustu bregðuna í gær. Hann hringdi dyrasímanum.

Glöggir muna eftir því að fyrir einhverjum mánuðum síðan þá var hann á bakvið það er ég tábrotnaði. Hann hringdi í Betu og ég rauk upp til að svara og rak mig í. Litla táin er ennþá aum og ég hlýt að hafa brotið hana.

Samsæri?


listin að bregða

Hvað var málið með gærdaginn!

Ég og Beta vorum að labba í snjónum þegar skokkari kom aftan að okkur og fór frammúr. Mér brá svo íllilega að ég skrikaði til og öskraði upp yfir mig.

Ég og Beta fórum í Skógarlundinn til að líta eftir Pjakki, kétti mömmu og pabba. Pabbi er þjófahræddur og hafði komið fyrir allskonar gildrum í húsinu. Ætla ekki að koma upp um hvað það var en er ég steig inn í húsið þá tók ég sirka 17 skref á einni sekúndu. Hljóp á staðnum. Mér brá svo að ég dó næstum því.

Ég og Beta vorum í lyftunni heima og ýttum á 2 (vorum fyrst í kjallaranum). Svo opnaðist lyftan og ég ætlaði að stíga út. Þá hafði einhver verið á fyrstu hæð og ýtt þar. Hann ætlaði því að ganga inn þegar ég, á crusecontrol, ætlaði að labba út. Mér brá svo rosalega að ég sakaði hann um samsæri og spurði hann fyrir hvern hann ynni.

Ég var að stilla upp tuffspjaldinu sem ég gaf Betu í jólagjöf. hmmm hvar er besti staðurinn....jú, ofan á dyrasímanum. Rangt! Ég var varlega að balansa spjaldið ofan á símanum á veggnum, mjög viðkvæmt ferli, hvað gerist? Dyrasíminn hringdi og mér dauðbrá.

Fjórar bregður í gær! Samsæri? Þetta var allavega undarlegt. En hressandi.


Fullkomin jól

Sváfum fram á hádegi og vöknuðum við Stephen Fry ,,Good morning SIR".

Átum svínahryggsleifar og horfðum á Pál Óskar þátt.

Fórum út og löbbuðum í snjónum sem endaði í snjókasti. Ég vann.

Fórum svo inn í póker þar sem hart var barist. Á endanum vann ég, sem eru undur og stórmerki þar sem Beta vinnur mig nú oftast í póker (á meðan ég vinn hana alltaf í Friends spilinu).

Núna er það rúntur. Kíkjum á Pjakk fyrir mömmu og pabba, Yngva og Lindu hennar Betu og svo niðrí bæ.

Svo heim í kósýheit par excelans. Éta mat og hjúfra sig fyrir framan arineldinn. Og þegar ég segi arineld þá meina ég að sjálfsögðu sjónvarpið.


Gjafir

Ég gaf Betu Kökuhníf sem er eins og alvöru sög í laginu. Gaf henni svo bókina ,,skinny bitch in the kitchen" sem er matreiðslu bók. Líka spjald með skífu á til að hitta, ekki ósvipað pílukasti nema þarna á að taka rör og spýta á spjaldið. Á spjaldinu eru svo ákvarðanir sem þú verður að standa við.

En alvöru gjöfin var svo mp3 spilari.

Við vöknuðum í gærmorgun og ég henti á mig útihlaupabuxunum mínum. Sem voru nýþvegnar. Komst að því að mp3 spilarinn hennar Betu var í vasanum og hafði farið í þvott og því ónýtur.

Hún varð svo leið greyið að ég þóttist fara út að hlaupa en fór þess í stað beint í bílinn, brunaði í BT og keypti nýjan handa henni. Mér tókst að vera bara 20mín að þessu og áður en ég kom aftur inn þá nuddaði ég snjó framan í mig og tók nokkur hlaup upp og niður stigan til að gera þetta trúverðugara. Það virkaði. Hana grunaði ekkert.

Ég fékk grand vekjaraklukku sem vekur mig upp með rödd Stephen Fry´s. Hún er með um 130 frasa sem hann segir eins og "I am delighted that you have survived another night." og "It appears to be morning. Very inconvenient, I agree. I believe it is the rotation of the Earth that is to blame, Sir."

Þetta er sem sagt þjónninn Jeeves og klukkan heitir Good morning SIR. Svo er líka fídus sem bíður upp á að hlusta á hann tala á kvöldin svo maður sofni. Svona soothing og róandi. Fékk líka rakakremið sem ég bað um.


OCD Santa

52kBs

Jól: Part Deux, The revenge

Núna tökum við seinni helming jólanna. Erum hjá tengdó þar sem stórfjölskyldan mun koma saman og slafra í sig hátíðarmat.

Sebas vaknaði kl 7 í morgun, enn klæddur sem Spiderman. Ég þurfti svo að ljúga því að búningurinn væri orðinn það skítugur að ég yrði að þvo hann. Þá rétt sligaðist hann úr honum. EN með því skilyrði að hann tæki hann með sér til mömmu og hún þrifi hann.


Trommusett dauðans

Trommusettið sem við gáfum honum vakti lukku. Við keyptum það í Toys R Us, og bara af því að það var auglýst með heyrnatólum.

Við hugsuðum ,,ok, hann elskar að gera tónlist og hamast eins og rokkari þannig að trommusett er málið, EN með heyrnatólum. Nokkuð seif".

Þetta átti því að vera bulletproof.

Nei, nei...þessi heyrnatól voru plast MÍKRAFÓNN en ekki heyrnatól.

Þannig að í staðin fyrir að heyra ekki neitt í honum þegar hann hamrar settið þá heyrum við AUKA mikið því hann getur actually sungið í tækið þannig ómi enn hærra.

Frábært.

Takk Toys R Us


Pakkar og læti

Pungurinn loksins kominn í bólið eftir ævintýralega skemmtileg og velheppnuð jól. Okkur fannst eins og það væri aðfangadagur.

Hamborgarhryggurinn heppnaðist fullkomlega! Allt nema Sauerkrautið í raun, það kom eitthvað fönkí út. En vert er þó að hrósa kokkinum fyrir einstaklega djarfa viðreynslu við Sauerkrautið. Ekki allir sem komast svona nærri bragðinu í fyrstu tilraun.

Sebas beið spenntur eftir pökkunum. Hann fékk að opna einn fyrir mat og það reyndist vera Ironman kall. Vakti lukku.

Svo eftir mat fékk hann fullt af dóti. Í raun allt of mikið náttúrulega. Hann fékk Vidda úr Toy Story, trommusett frá okkur, bílskúrsbílastöð frá Cars, og fullt í viðbót. En það sem vakti mesta lukku var Spiderman búningur. Hann gjörsamlega apeshittaði. Hef aldrei séð hann svona. Mjög fyndið.

Hann opnaði þann pakka og sá búninginn og byrjaði strax að rífa sig úr sparifötunum. Hann var kominn á sprellann á núll punktur einni.

Hann var Spiderman það sem eftir lifði kvölds. Hann spurði hvort hann mætti sofa í þessu.....og hvernig gat ég sagt nei.

Þannig að það er þreyttur og glaður spiderman inn í pabbabóli núna einhversstaðar lengst inn í draumalandi.

Ég og Beta erum sjálf þreytt eftir þennan hamagang og hjúfrum okkur undir sæng inn í stofu hlustandi á Bubba á bylgjunni.


Jólakveðja í boði www.sir.blog.is

°‎★ Gleðilega hátíð pungar fjær og nær ★* 。 • ˚ ˚ ˛ ˚ ˛ • •。★ Megi næsta ár verða komandi ★ 。* 。。* 。。* 。...

Jólin koma snemma hjá Sebas

Í ljósi þess að Sebas er hjá mömmu sinni yfir aðfangadag þá höldum við jólin í dag með öllu tilheyrandi. Fyrst er að gera matinn, svo jólabaðið, svo éta, svo pakkarnir. Þetta verður stuð. Honum verður svo skutlað á morgun til mömmu sinnar þar sem hann...

auðmjúkur drengur

(Margmiðlunarefni)

Viltu vera í hljómsveit með stráknum

Ég stofnaði hljómsveit í dag. Hitti gítarleikara og spjallaði við trommuleikara. Við erum að tala um æskudraum sem ég er að reka á hol. Hey! ef maður gerir ekki eitthvað sjálfur þá gerist ekkert. Fyrst var það atvinnumaðurinn í golfi, núna rokkstjarna....

viðburðarríkt

Fórum í kringluna með Sebas og það var nokkuð stappað. Gaman. Sebas fann gjöf handa Betu og handa mér. Gjafirnar officiallí komnar í hús allar með tölu. Bökuðum svo eftirréttinn fyrir jólamatinn, gerðum Sauerkraut sem er náttúrulega nauðsynlegt meðlæti...

N'Sync-Off

Fyrir stelpurnar þarna úti

update

smá update á ástandið. Beta kom heim með Fabrikku borgara. Score! Er klæddur, járnbragðið farið, kominn með bíl til umráða og til alls líklegur. Nóttin er ung

Harður

...

dagur

Bara að láta alla vita þá eyddi ég morgninum í að gera þvottavélar, skrúbba vask, skrúbba baðkar, skrúbba spegla, skrúbba klósett og loks sjálfan mig. Át hálfa dagsgamla upphitaða grænmetissamloku með rauðlauk í hádegismat sökum skorts á mat í ísskápnum....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband