Leita í fréttum mbl.is

viðskipti dagsins

Fórum í barnaafmæli í dag. Þegar það var búið þá sagðist Beta vilja aðeins kíkka inn í Ylfu á Korputorgi.

,,Verð enga stund, þú mátt bíða út í bíl ef þú vilt"

,,nei, nei elskan, ég skal koma með þér"

Mikil mistök.

Ég labbaði þar út 85þ kalli fátækari!

Eitt stykki huuuges bókahilla komin í hús.

Kannski var ég bara heppinn að koma með inn. Aldrei að vita hvað hefði komið þarna út hefði ég ekki monitorað viðskiptin.


ofnotkun orða

Ég er orðinn leiður á ofnotkun á ákveðnum orðum til að tjá velþóknun.

Mér finnst gildi þessarra orða hafa rýrnað töluvert sökum frjálslegrar notkunar.

Við erum að tala um orðin ,,snilld" og ,,glæsilegt".

Þetta eru sterk orð og þau eru notuð við mjög svo hversdagslegar aðstæður.

Bjarni: ,,Jói! hvað er langt í þig?"
Jói: ,,Verð kominn eftir 10 mín"
Bjarni: ,,Snilld!"

Þetta er svo langt frá því að vera ,,snilld". Þetta er bara Jói, að koma eftir 10 mín!

Snilld/schnilld/ske-nilld/Shjíbbittínilld

Glæsilegt/glæsó/Glæsibær!

Whatever! Orðið frekar þreytt!

Hvað varð um ,,flott" eða ,,fínt"

Eða hreinlega bara að friggin Jói mæti á réttum tíma!


enski

Ömurleg úrslit í enska í dag.

Manure vinnur

Ars/Chel jafntefli

og

LP tapar

Æðislegt.

Eina jákvæða við þetta er að ég er með Rooney í liðinu í fantasí


Rebel Rebel

Við storkuðum örlögunum í dag. Gerðum allt vitlaust.

Fórum nefnilega öfugan hring í Ikea!

Fólk leit okkur hornauga.

Algjört adrenalínkikk!


It´s the end of an era!

3 ár og 4 mánuðir búnir

Núllpunktur

Einn dagur búinn

Fer úr því að spila golf yfir í að selja golf


Samkjafta

Við vorum að tala um aðgerðina við Sebas til að preppa hann. Segja honum frá ferlinu, hvernig hann yrði svæfður og slíkt.

Ég sagði honum pínu um lækninn og Beta sagði honum pínu um svæfinguna. Svona skiptumst við á að segja honum frá þessu dæmi.

Við vorum kannski aðeins of áhugasöm um þetta því hann horfði bara á okkur og á einum tímapunkti sagði hann ,,þið eruð eins og saumaklúbbur. Þið talið svo mikið!"

WHAT!!!

Við urðum kjaftstopp.

Hvaðan fær hann þetta!

sörtenlí ekki frá okkur. Hlítur að vera frá leikskólanum. En allavega þá var þessari umræðu bara lokið.


Skandall innan Sálfræðinnar

Las áhugaverða grein í Wired um DSM. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er þetta sem sagt biblía sálfræðinga. Segir til um hvað allir þessir sjúkdómar heita og hvernig þeir eru. Sálfræðingar leita í þetta rit til að greina sjúklinga.

Þetta rit kom fyrst út árið 1952 og hefur verið uppfært nokkrum sinnum. Núna er sem sagt að detta inn DSM V og allt er að verða vitlaust.

Sálfræði er alltaf soldið svarti sauðurinn því það er svo sjaldan hægt að segja nákvæmlega hvað er að gerast hjá fólki út frá þessari fræði. Þannig notast þeir bara við nálgunaraðferðir og finna einkenni. Segjum til einföldunar að sjúkdómur X hafi 9 einkenni og sjúklingur sýnir 5 af þeim einkennum þá er hann sagður þjást af sjúkdómi X. Slump-iddí-slump(að mínu mati).

Þetta er því miður, enn sem komið er, það besta sem Sálfræði getur boðið uppá.

Og það er þessi DSM biblía sem sálfræðingar notast við til að slappa heitum á það sem hrjáir fólk.

Það sem er núna að hrikta í stoðum Sálfræðinnar er sem sagt að upp hefur komist að lyfjafyrirtæki eru að fikta í þessu.

Johnson&Johnson borguðu gæja sem vann að uppfærslu DSM IV fyrir að koma ákveðnum leiðbeiningum að í þessari bók um að fyrirbyggja ákveðin sjúkdóm í börnum. Svona pro-active aðferðir í staðin fyrir reactive. Að sjálfsögðu var það svo lyf þeirra herramanna í Johnson&Johnson sem var skrifað uppá fyrir þessum sjúkdómi.

Hagnaður lyfjafyrirtækisins jókst um 40% og allt í blóma.

Nema hjá sjúklingunum.

Það hefur komið á daginn að þetta lyf var ílla prófað og olli offitu og sykursýki. Svo kom einnig á daginn að sálfræðingar voru að fylgja þessum leiðbeiningum úr þessari uppfærslu og dældu í börnin þessu stöffi án þess að sannað væri að þau væru með þetta og svo seinna meir kom í ljós að einungis 25% af þessum börnum fengu þennan sjúkdóm að fullu.

Sem sagt, það er verið að sýsla með þetta rit sem sálfræðingar kalla biblíu sína til þess eins að græða pening. Ekki til að gera sitt besta til að hjálpa fólki.

Gæji sem vann við DSM IV á sínum tíma fyrir aldamót tók eftir þessu og fannst ekki vera rétt. Gerði samt ekkert í því. Núna er hann kominn á eftirlaun en fyrir tilviljun komst að því að það ætti að dæla meira svona rammspilltu stöffi í DSM V og hann bara gat ekki látið það afskiptalaust.

Hann er í herferð gegn þessu DSM dæmi og er ekki sá eini. DSM V á að koma út 2013.

Í framtíðinni þá deyr Sálfræðin náttúrulega út, því þá verður væntanlega hægt að vita uppá 100% hvað amar að útfrá því að kíkka aðeins inn í heilann og fikta í vírunum. En þangað til þá er þetta gallaða rit notað til leiðbeininga.

Vinsamlega nenniði að vera ekki að því að setja bara eitthvað crap í DSM bara til að græða pening!


Nefkirtill

Létum fjarlægja nefkirtlana úr Sebastian. Fyrsta sinn sem hann er svæfður. Hann lagðist upp á borðið, krosslagði fætur og skellti höndunum fyrir aftan haus.

Er hægt að vera svalari!

Lét ekki í sér heyra. Ekkert snökkt né neitt. Sofnaði bara.

Það var önnur saga þegar hann var að vakna. Það var samt álíka erfitt fyrir mig og hann. Erfitt að sjá barnið sitt með slöngu í arm, eitthvað stöff í munni til að varna að hann biti ekki í tunguna og svo blæðandi út um eyrun og nef!

Hann var mjög ruglaður þegar hann var að vakna og verkjaði.

Það var ekki fyrr en við komum heim og gáfum honum lyf að hann róaðist. Ís, kleinuhringur og pitsa var heldur ekki að skemma fyrir.

Núna er hann eins og hershöfðingi. Að horfa á Happy Feet.


áhugavert

Hvort ertu listamaður eða stærðfræðingur?

http://www.heraldsun.com.au/news/right-brain-v-left-brain/story-e6frf7jo-1111114603615

Tékkaðu á því á ofangreindum link.

Ég nota hægra heilahvelið meira segja þeir. Ég reyndi að sjá hana fara anti clockwise en bara sé það ekki gerast.

Sebastian er líka hægra megin í lífinu. En Beta litla er vinstra megin og meira lógískt þenkjandi en við.

Það er fínt að hafa smá fjölbreytni á heimilinu.


meððetta

Við sögðum Sebastian frá því að við ættum öll vön á litlum strák í ágúst. Áður en við sögðum honum samt frá því lét ég hann giska á hvort þetta væri.

Hann giskaði á Leiftur McQueen!

Svo seinna um kvöldið þá sagði ég honum að við þyrftum nú að finna eitthvað kúl nafn á strákinn.

Hann stakk upp á ,,Kalli Kaldi"

Leist ágætlega á það.


Smashing Pumpkins

Datt í hug að perrast aðeins meira. SP næst á dagskrá. Getum sagt að þetta sé ein af þremur uppeldishljómsveitunum mínum. Metallica, Smashing Pumpkins og svo Göns. Tvær down, ein to go. Hér er sem sagt topp tíu Smashing Pumpkins að mínu mati. 1.Hummer...

Matt Damon

Hvað er málið með Matt Damon? Hann er búinn að vera á flótta í nánast 10 ár! Þetta byrjaði allt árið 2002 með fyrstu Bourne myndinni og núna var að koma enn ein myndin með honum sem heitir The Adjustment Bureau og vitiði hvað.....hann er á hlaupum....

Achtung

Acthung baby! var að fá junkmail í inboxið! Það hefur ekki gertst í langan tíma. Ég man þegar maður var alltaf að fá rusl í mailið og maður var alltaf að reyna að gera allskonar síur og slíkt. Núna er þetta nánast bara non existant. Vel gert Google...

Cyrus

Horfðum á Cyrus í gær. Eða réttara sagt ég horfði og Beta sofnaði eftir 20 mín. Hún kom mér verulega á óvart þessi mynd. Jonah Hill, John C Reilly og Marisa Tomei. Mæli eindregið með henni.

Space Quest

Space Quest var uppáhaldsleikurinn minn þegar ég var ungur. Ég átti aldrei neinar Nintendo eða þannig svalar leikjatölvur þannig að ég varð bara að láta mér nægja svona nörda PC leikir. http://en.wikipedia.org/wiki/Space_Quest Maður varði tímunum saman í...

sund

Synti í 30 mín í laugardalslaug. Eftir að ég fékk inniskóna þá eru mér allar leiðir greiðar. Þarf ekkert að koma við gólfið í annars viðbjóðslegum klefanum og fer svo beint í innilaugina þar sem engin er. Næs að synda bara einn í nýrri...

Meira að segja ég cave-a inn og finnst þetta krúttlegt

(Margmiðlunarefni)

Leisure Suit Larry

Þetta er walkthru af leiknum Leisure Suit Larry in the land of the lounge lizzards. Ég ólst upp við þessa Larry leiki in da eitís. Ég lærði enskuna svona. Þetta er samt í fyrsta sinn sem ég actually sé lokin á þessum leik. Komst aldrei í gegnum hann,...

Strákur

Fengum að vita kynið í morgun. Barnið byrjar sem sagt með 36 í forgjöf. Það fór ekkert á milli mála. Annars leit allt bara vel út og allir við hestaheilsu. þá hefst bara leitin að rétta nafninu....miklu erfiðara að finna strákanöfn. Datt fyrst í hug...

Kynið

Við fáum að vita kynið í dag. Mjög spenntur. Læt vita hér á eftir. Vona að það verði annað hvort stelpa eða strákur!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband