Leita í fréttum mbl.is

Metallica

Ég pikka stundum upp Guitar World blaðið og les spjalda á milli. Gítarperrinn í mér :)

Allavega þá var þetta issue tileinkað Metallica og þeirra lögum.

100 bestu lögunum er raðað upp eftir mikilvægi og það eru nokkrir gæjar innan blaðsins sem dæma.

Maður er nú ekkert sérlega sammála öllu þarna. Þetta er náttúrulega svo einstaklingsbundið.

Þeir segja að topp tíu sé:
1. Creeping Death (Ride the lightning)
2. Master of Puppets (Master of Puppets)
3. Seek and Destroy (Kill´em All)
4. Ride the Lightning (Ride the Lightning)
5. One (...and Justice for Jason)
6. Battery (Master of Puppets)
7. The Four Horsemen (Kill´em All)
8. Welcome Home, Sanitarium (Master of Puppets)
9. All Nightmare Long (Death Magnetic)
10. Fade to Black (Ride the Lightning)

Allt mjög verðugt finnst mér fyrir utan All Nightmare Long. Það finnst mér ætti að vera í kringum 40.

Tíu neðstu er svo.
91. Cyanide (Death Magnetic)
92. Tuesday´s Gone (Garage Inc.)
93. Damage Case (Garage Inc.)
94. Broken, Beat & Scarred (Death Magnetic)
95. Until It Sleeps (Load)
96. The Outlaw Torn (Load)
97. Suicide & Redemption (Death Magnetic)
98. Wasting My Hate (Load)
99. 2 X 4 (Load)
100. Turn The Page (Garage Inc.)

Mjög ósammála. Mér finnst að...
94 ætti að vera nr. 8.
95 ætti að vera í kringum 35.
96 ætti að vera í kringum 40.
99 ætti að vera í kringum 70.
100 ætti að vera í kringum 60

Mér telst til að á öllum breiðskífunum plús aukalög á singlum plús annað stöff þá eru þetta sirka 170-180 lög sem þeir eiga. Kannski svona 6-8% coverlög.

Minn listi væri sirka:
1. Bleeding Me (Load)
2. To Live Is To Die (...And Justice For Jason)
3. My Friend Of Misery
4. The Unforgiven I,II,III
5. The Day That Never Comes (Death Magnetic)
6. Master of Puppets (Master of Puppets)
6. Nothing Else Matters
6. One/Fade to Black/Welcome Home(Sanitarium)
7. Enter Sandman
8. Broken, Beat & Scarred (Death Magnetic)
9. Seek and Destroy og Ride the Lightning
10. No Leaf Clover/I Disappear/Whiskey In The Jar

og neðstu eru sirka:
94. Trapped Under Ice (Ride The Lightning)
95. The Call of Ktulu (Ride The Lightning)
96. Suicide & Redemption (Death Magnetic)
97. Cyanide (Death Magnetic)
98. Ronnie (Load)
99. lög 3 og 5-13 á Reload
100. lög 4-11 á St.Anger

Þetta er allt mjög bundið nostalgíu tilfinningum en líka hugmyndum um gæði og fílíng.

Kalt mat!

hmmmm kannski ég geri þetta líka fyrir Smashing Pumpkins og aðrar nostalgíu sveitir.......hmmmmm


söntag

Guð hvíldi á sjöunda degi.....ekki Siggi og Beta!

Við tæmdum geymslu/þvottaherbergið og tókum allar hillur niður. Beta Málaði herbergið hvítt(eða hvítara en það var) og svo endurskipulögðum við allt þar inni og bættum við þvottagrind.

Ég boraði nokkur göt. Jafnast ekkert á við að bora nokkur göt. Gott fyrir testesteronið.

Ótrúlegt hve stöffið úr þessari litlu geymslu tekur mikið pláss. Eftir að hafa sem sagt tæmt geymsluna þá var okkur litið inn í stofu og hún var full af drasli.

Þessi litla geymsla nær sem sagt að hýsa mun meira drasl en maður hefði grunað.

Anyhú....þá er bara að raða aftur öllu þessu drasli þarna inn.


lördag

Dagurinn í dag var success. Ég komst í gegnum hann án þess að vera líkt við Simma í Idolinu.

Annars þá var þetta bara chill dagur. Kíktum í kringluna og Smáralind. Kíktum á nýju íslensku gítar pedalana. Þeir bjóða upp á einn distort og einn fuzz. 25þ kjéll stykkið. Held ég haldi mig bara við Boss Ds-2 (5þ) og Big Muff (9þ).

Annars mjög ánægður með þetta framtak. Vona að fólk kaupi þetta af þeim.

Ómar í Jagúar ætlar að nota þetta. Hann á að heita eitthvað seleb, en ég veit nú bara ekki rassgat hver þetta er. Örugglega topp náungi.


Big Muff sóló

Það er ekki bara Billy Corgan sem kann að nota Big Muff Pi. Vinur minn John Frusciante er avid fan og notar hann mikið með Boss DS-2 turbo Distortioninu sínu.

Gítar--ds-2--Big muff--mod stöff. 

Gaman að segja frá því að ég er einmitt með sama settöp


Fatman Pedal Co

Ég verð að viðurkenna að ég er frekar spenntur fyrir þessu hér

http://www.facebook.com/FatmanPedalCo

Ætla með Sebas í Smáralindina á eftir að tékka á þessu. Þeir verð þarna frá 16-18 og svo á morgun frá 12-16.

Áfram Ísland


magnþrungið

Nú er ég ekki körfuboltaáhugamaður en þetta er nokkuð gott 


Simmi mættur

Fór í Breiðholtslaug í morgun. Synti í 20 mín. Stóð nakinn inn í klefa og var að fara klæða mig í fötin þegar einhver unglingur sagði við mig:

,,blessaður Simmi"

Ég leit á hann og eiginlega vissi ekki alveg hvað ég átti að gera.

,,nei heyrðu! þú ert ekki Simmi"

Ég bara ,,uuunei ég heiti Siggi"

,,Shit mar, þú ert alveg eins og Simmi í Idolinu"

Einmitt! Takk fyrir það

,,veistu hver það er?" hélt hann áfram

,,uuuu já já"

,,hann var kynnir í Idolinu"

,,já, einmitt"

,,hehe alveg ótrúlega líkur honum"

Svo fór hann inn í sturtuna með bros á vör.

Held að hann hafi eitthvað verið þroskaskertur. Hlýtur eiginlega að vera.

Spurning um að detta inn á Fabrikkuna og þykjast vera Simmi til að fá frían mat!


Gott að eiga gott fólk

Friggin bremsudælan var eitthvað að kvarta í gær á Yarisnum. Bjarni maður Perlu systur reddaði þessu á no time. Fengum bílinn hennar Perlu á meðan ásamt því að labba þaðan út með gefins gítar, part úr bílabraut og nintendo spil!

Það er ekki amalegt að eiga svona gott fólk að.

Við færum þeim bestu þakkir fyrir.


Jin og Jan köller

Ég var drullu stressaður þegar ég vaknaði í morgun. Gærdagurinn var einfaldlega of góður....dúbíjuslí of góður.

Skutlaði Betu í vinnuna......BEM! Bíllinn bilaði.

Hann fór á verkstæði, búið að gera við...

.....nokkrir tugir þúsundkalla í viðgerð. Tékk.

Alheimurinn búinn að rukka tilbaka allt sem ég slapp með í gegnum tollinn í gær.

Svona er lífið.


Ný könnun

Hávísindaleg könnun hér á hægri hönd. Allt ákjósanlegir valkostir. Allt í þágu vísindanna. Kjósið.

Nýjar myndir

Henti inn myndum frá ferðinni á FB. Tókum 173 myndir en bara 53 myndir á FB. Restin er bara fyrir lengra komna.

P to da S

uuuu P.s. kom heim, kveikti á tölvunni og þar biðu mín skilaboð um að einhver vildi kaupa zoom multi effektinn minn. Var sem sagt rétt í þessu að selja þetta kvekendi með hagnaði. ...og er að fara kveikja á nýja effektinum sem ég keypti úti akkurat núna....

Heimkoma

Komin heim sætindi heim. Ferðalagið gekk fáránlega vel fyrir sig. Nánast eins og í sögu. Okkur var skutlað upp á völl í Þýskalandi og við örkuðum með fullt af töskum á vagni upp að Icelandair deskinu. Viti menn, konan sem var að tékka inn á Saga Class...

sne

Frábært veður hér í Þ-landi. Sól og blíða á fallegum sunnudegi. Rúntuðum inn í Rínardalinn og sáum kastala og rifum í okkur Bratfurst. Sebas var vitlaus í þetta. Nenni ekki að koma heim í snjó. Nennir einhver að redda því fyrir...

dagskrá

Hlutir sem ég ætla að gera í dag: 1. Skoða Rínardalinn 2. Borða Bradwurst og Wienerschnitzel 3. Fara í sólbað 4. Skoða kastala

lyklaborð

Prófið að ýtá F13 til að sjá hvað gerist............ . . . . . . . haha, made u look!!!!!

pínu

Sebastian er á ,,pínu" tímabilinu. Hann notar þetta orð ótæpilega. ,,Pabbi! viltu pínu koma?" ,,ég ætla að fara pínu inn í herbergi" ,,hey! eigum við pínu að horfa á Lúkas(the ant bully)?" Mér finnst það dúllulegt.

Stjörnumerki

Við skiluðum bílaleigubílnum í morgun. Á leiðinni heim ræddum við öll um í hvaða stjörnumerki við vorum. Fyrst sagðist Beta vera ljón svo kom Stefán Orri og sagðist vera krabbi. Anna Elísabet sagðist svo vera Steingeit og ég Bogmaður. Þá var bara einn...

Pulsa

Rúntuðum um Eltville í leit að Bradwurst. Fundum ekkert! Það var enginn pulsusali á vappi. Ráfuðum inn á Tyrkneskan stað og spurðum til vegar. Hann neitaði að segja okkur frá neinu og vildi bara að við ætum hjá honum. Stælar! Við fórum því út og ég...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband