Leita í fréttum mbl.is

Perrinn ég

Tókum annan Frankfurt rúnt í morgun. Beta, Sebas og ég.

Það var skítakuldi og ég þurfti að vera í peysu :)

Tókum smá fatarúnt fyrir Betu og enduðum svo aftur í hljóðfæraversluninni.

Ég og Sebas kíktum í trommu álmuna og gripum í kjuða og lömdum stöff hægri og vinstri. Tók nettar myndir af Sebas á hinum ýmsu settum. Tók sig vel út.

Fékk svo að perrast í gíturunum í friði á meðan þau sátu í Gibson leðursófa.

Fékk að prófa Gibson Les Paul Studio faded mahogany worn brown

Gibson Les Paul Studio CH WB

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ótrúlega fallegur að mínu mati.

Mér var vísað inn í herbergi þar sem sást ekki í veggina fyrir ömpum og hátölurum. Ég gat valið mér hvaða magnara ég vildi stinga í. Hvílíkur valkvíði! Bað um Marshall JCM 800 eftir smá umhugsunarfrest. Gæjinn kveikti á því apparati og fór svo út og lokaði á eftir sér.

Þjónusta! Af hverju er ekki svona dæmi á Íslandi!

Ég kallaði á Betu og Sebas og myndir voru teknar. Sebas fékk líka að spila. Hann var að strömma og ég spurði hvort hann vildi taka ,,Vælubíllinn"(sem við syngjum stundum).  Hann neitaði og sagðist vilja gera nýtt og flottara lag. Ánægður með hann, ekkert cover stöff, bara frumsamið á þessum bæ.

Keyptum að lokum strengi fyrir Stefán Orra og brunuðum heim. Var að láta þá í barnagítarinn hans og stillti uppá nýtt. Hann ætti að geta glamrað eitthvað á gripinn núna. Hann var nefnilega orðinn soldið lúinn og einungis með 3 strengi. 

Myndir af þessu himnaríki gítarperrans koma eftir smá.


Hljóðfærabúð Guðana!!!!

Ég er glaður. Fórum í Musik-Schmidt í Frankfurt í dag. Men ó men. Myndir af þessari búð koma þegar ég kem heim því ég er ekki með snúru. En myndir voru teknar svo rosaleg var búðin.

Það voru 2500 rafmagnsgítarar þarna inni að sögn. Trommu ÁLMA! Ska-rill-billjón effektar og svo fullt af herbergjum með milljón mögnurum af öllum gerðum og stærðum þar sem maður gat sest og leikið sér á gítar og plöggaði í það sem maður vildi.

og þetta var bara efri hæðin!

Á þeirri neðri voru fjögurhundruðþúsund píanó/orgel/flyglar/og u bara neimitt ásamt upptökutækjum, mixerum, og beisikklí allt sem tengist hljóði.

og þetta var bara fyrra húsið!

Það var annað hús!

Þetta var needless to say, yfirþyrmandi og það tók mig um 5 mín bara að fatta á hverju ég ætti að byrja.

Samt tók ég fyrstu 10 mín bara að labba um og sinna strákunum. Þeir voru líka að eipshitta. Með mér voru sem sagt Beta og Sebas ásamt tæplega 6 ára Stefáni Orra.

Þeir voru sammála um að Flying V týpan væri flottust. Eða sú lögun. Svo fundu þeir fullt af þannig gíturum með myndum á eins og eldi, hauskúpum og einn Spiderman gítar meira að segja. Allt mjög spennandi og þeir báðir staðráðnir í að fá sér gítar á morgun (Sebas er ekki enn búinn að ná tíma conceptinu og kallar allt ,,á morgun" sem mun gerast í framtíðinni).

Svo náði ég að fá smá tíma fyrir sjálfan mig og Beta sá um strákana.

Ég uppfærði Zoom G2.1u pedalinn minn í G2.1Nu ásamt því að kaupa daisy chain og multi power snúrur fyrir effekta. Kjarakaup að sjálfsögðu og fæ meira að segja 3000kr tilbaka í tollinum á leiðinni út.

Vona bara að ég komist upp með að smygla þessu inn og sleppa við tollinn(allir tollverðir sem þetta lesa þá kem ég 1.apríl heim).


Eagles smeagles

Hvað er málið með þessa Eagles vitleysu!

Kántrí viðbjóður sem var heitt í usa einhverntíman.

Ég og Beta erum mjög samstíga með skoðun á þessum sökkass böndum eins og Eagles, Boston, Chicago og Crosby Stills and whocares.

Eiga allir kannski eitt, tvö góð lög og svo rest bara lame(Betu finnst reyndar ekkert lag gott með þessum böndum).

Fyndið með íslendinga, það er svo auðvelt að hæpa eitthvað upp hér á landi.
Nánast nóg að setja bara ,,loksins á Íslandi" í auglýsinguna og allt selst upp á 10 mín. (Hver man t.d. ekki eftir Papinos/Dominos málinu í gamla daga).

Ég meina, hvað ætlar fólk að gera þegar Hotel California er búið og 19 lög í viðbót eftir sem eru miðlungs í besta falli!

Frekar myndi ég eyða þessum 15þ kjélli í bland í poka, bara súrt!


TojsRass

Fórum í Toys R Us í morgun og lékum okkur að 70% af dótinu. Ýttum á alla takka og spiluðum á flest hljóðfærin.

Það tók smá tíma að útskýra fyrir Sebs að stundum fer maður bara til að skoða og leika sér en ekki til að kaupa.

Það hafðist á endanum án væls en með smá fýlusvip sem entist í 7 mín.

Beta keypti reyndar smábarnadót. Snuð með ,,I´m a rocker" framan á og slíkt.

Á morgun förum við svo líklega til Frankfurt í aðra HM búð og hljóðfærabúðina Musik-Schmidt http://www.musik-schmidt.de/gb

Virðist vera hardcore búð.

Sebas er spenntur og vildi umsvifalaust fjárfesta í gítar með hornum á stöng(hvað sem það svo þýðir) þegar ég sagði honum planið.

Ætla að kaupa nokkra hluti. Meira um það síðar.


Nintendo

Erum að pæla að kaupa Nintendo DS fyrir Sebastian. Þetta er bara svo helvíti dýrt. Lite útgáfan kostar 16þ svo plús einn leikur á rúmlega 6þ kjéll.

Þetta er bara nánast komið upp í Wii tölvu!

Þurfum aðeins að pæla í þessu betur.


ljón

Sebastian var sorgmæddur í morgun því ljónamorgunmaturinn var búinn og bara tígrisdýramorgunmatur til.

Fyrir forvitna:

http://www.ciao.co.uk/Nestle_Lion_Cereal__5345923

og

http://www.kelloggs.co.uk/products/Frosties/Cereal/Frosties.aspx

P.s. það reddaðist þegar hann fékk að blanda frosties saman við seríós


Frenzí

Við vorum að labba í miðbæ Wiesbaden á göngugötu þegar ég sá skyndilega einkennilegan, en jafnframt kunnulegan glampa í augum Betu.

Hún stoppaði, snéri á hæl og sem óð væri arkaði inn í búð.

Þessi búð......er sú búð sem allar konur elska.......við erum auðvitað að tala um hina margrómuðu.......... HM.

Mín var ekki lengi að ná áttum og kynnast krók og kima með því að standa við innganginn og skanna staðinn með blikandi augunum.

Það sem gerðist næst er eiginlega í móðu.

Við erum að tala um nokkurskonar frenzí sem kom yfir hana og hún raðaði í körfuna flík eftir flík.

Hún varð eiginlega hyper og byrjaði að tala við mig um barnaföt og allskonar stöff sem ég skildi ekkert í. Stærðir, liti og lögun sem gat alveg eins verið gríska fyrir mér.

Þá áttaði ég mig á því sem gerst hafði!

Hún hafði fyllst sömu öfgatilfinningu og ég, þegar ég sé hljóðfærabúð.

Það koma blindur fyrir augun(svipað og á hesti), sjónsviðið þrengist en einbeitingin verður jafnframt skarpari. Ánægjutilfinning hríslast um líkamann og maður verður ör. Maður er fljótari að hugsa, tekur ákvarðanir á örstundu og hefur gaman af því.

Frábært.

Ég lokaði því bara eyrunum, kinkaði kolli og opnaði budduna.

Ég vona bara að mér verði sýndur sami skilningur þegar hlutverkin víxlast :)


Undrun

Þjóðverjar eru upp til hópa ótrúlega kurteist og vingjarnlegt fólk.

Í umferðinni blívar mikil skipulagning. Fólki er hleypt inn í bílaraðir hægri vinstri og allir sem ég hef séð eru þolinmóðir. Ekki eitt einasta flaut.

Aldrei séð annað eins. Ekkert kapphlaup að verða fyrstur. Þvílík andstæða við Spán og Ísland allavega.

Svo heilsa allir manni ef þeir ganga framhjá. Guten tag og Halú.

Fólk í búðum er einstaklega vingjarnlegt og flestir meira að segja með bros á vör, ólíkt því sem maður hafði heyrt og gúgglað.

Kannski er þetta af því að við erum í litlum bæ með bara 17.500 manns en reyndar var þetta líka svona í Wiesbaden sem er með 277þ manns.

Er þetta veruleiki eða er þetta bara þýska genið í mér loksins að vakna!

Hmmmmm, kann allavega vel að meta vingjarnlegheitin en best þykir mér þó skilvirknin.


Ný könnun

Vek athygli á nýrri þýskri könnun

varðandi fyrri könnun þá var hún svo leiðinleg að ég man ekki hver spurningin var. Því síður niðurstöður.


ó to the moþafriggin mg


þýskur áróður

Alveg rólegir þjóðverjar með að skella auglýsingamyndböndum fyrir framan nánast öll youtube myndbönd! Ótrúlega óþolandi að þurfa að bíða í sirka 10 sek(ég veit, hljómar lítið en er samt óþolandi) áður en vídeóið þitt byrjar. Hef verið að horfa á annoying...

Ævintýrarúntur

Við skutluðum börnunum í skólann og Betu svo heim. Ég og Sebs fórum þvínæst í ævintýrarúnt í kringum svæðið. Ég lét bara Garmin gps tækið reikna út hvar næstu golfvellir væru, stillti AcDc ,,highway to hell" í botn og svo bara operation GO.(lagið var...

Róna peep show

Erum hérna í litlum bæ sem heitir Eltville sem er í um 30mín fjarlægð frá Frankfurt. Þar á milli er Wiesbaden sem er 280þ manna bær. Við rúntuðum þar inn og leituðum að miðbænum. Það var nokkuð ljóst hvenær við vorum komin er við stoppuðum á rauðu ljósi...

golf im deutschland

Kom með golfsettið með mér. Ég er samt bara ekkert viss um að ég fari því þessir vellir hér í kring eru ekkert spes og allir rándýrir! Einn gæji t.d. bara 9 holur og samt 50-60 evrur sem gera um 8000-9500 bökkerúnís! 9 holur. Ekki séns. Sjáum til hvort...

Kind

Beta gerði amrískan brunch fyrir okkur krakkana. Við ræddum yfir borðhaldinu hve skrýtið væri að barn í þýskalandi væri í raun kind. Sebas hafði gaman af því. Við erum að blasta X-inu 977 í eldhúsinu. Það er svona internet radio hérna. Soldið skrýtið að...

Bitra vartan

Það er alltaf einhver að kalla mig ,,bitra vörtu!" Hraðbankinn, wii talvan, bílastæðasjálfsalinn.....

Schwein!

Þýskukunnátta mín er strax farin að skila sér. Ég fór í kjötborðið í Nóatúni þeirra þjóðverja og spurði hvar beikonið væri. ,,Wo ist die Bacon?" Ég fékk, held ég, síðustu opinberu ræðu Hitlers á móti mér. Mér fannst það allavega. Ég reyndi þá aftur....

sögur

Ég geri fastlega ráð fyrir þónokkrum sögum af þjóðverjum og okkar svaðilförum hér í Þýskalandi. Hlakkar mikið til að lenda í vandræðalegum mómentum í samskiptum á þýsku. Kom mér samt á óvart á flugvellinum þegar ég spurði mann um hvar Bulky luggage myndi...

Úber alles

Heil allir saman Flugum í morgun með íslenska landsliðinu til Frankfurt. Þeir voru hressir. Við erum samt drulluþreytt enda vöknuð kl 4 Sebas er dottinn í Wii með Stefáni. Aðal issjúið er að skiptast á. Það er erfitt.

Auf vídercharliescheen

Næsta færsla verður út í Dojtschlandi og að sjálfsögðu á þýsku í tilefni dagsins.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband