Leita í fréttum mbl.is

gúlliver

Horfðum á Gulliver´s travels í gær með Jack Black. Hún var ágæt. Fyrsta myndin sem Beta sofnar ekki yfir í langan tíma.

Myndin er ekkert stórvirki, en skítnóg sem afþreying.

Fær 3 af 5


Sebas

Sebas heldur uppá afmælið sitt í ævintýralandi í dag. Súperman terta frá félaga Bjarna frá kaka.is og fullt af öðrum kræsingum.

Hann fékk huuges racing track frá mér og Betu. Höfum verið að leika okkur í því. Hann er orðinn góður. Passar að keyra ekki of hratt í beygjum og slíkt til að þjóta ekki úr brautinni.

Annars á hann afmæli þann nítjánda


Pitturinn og folinn

Það heimskulegasta sem ég veit um er þegar einhver kaupir belti fyrir 20-30 þúsund krónur. Þegar þú sérð einhvern með Lindeberg merkið á sylgjunni þá veistu að eitthvað heimskulegt hefur átt sér stað.

Ég hef bara aldrei heyrt annað eins!

Í öðru sæti er sennilega að kaupa sér dýr sólgleraugu.

Ég meina....hver vill eiga friggin sömu sólgleraugun endalaust. Hef aldrei skilið það. Svo þarftu að passa þau líka svo rosalega vel svo þau brotni ekki.

Ég kaupi alltaf ný á sumrin, kannski 2 stykki, helst eitthvað funkí lookin. Hendi þeim síðan fyrir næsta sumar. Þannig þarf maður aldrei að vera með sömu friggin Ray Ban gleraugun endalaust.

I pitty the fool!


wassap

Nennir einhver að skrúfa fyrir þetta veður!

THIS IS FRIGGIN VOR!!!!

Manni er farið að klæja í puttana. Vil fara komast í golf.

Talandi um það þá erum við að fá Flightscope í Golfskálann. jei. Með því getur maður séð alla tölfræði varðandi flug á bolta og hegðun kylfu. Maður leikur sér eitthvað í því í sumar geri ég ráð fyrir. Þetta stöff kemur með Ipad og við getum alveg eins tekið fólk í fitting utandyra.


Hvíta Íspílan

 Keypti nýjan pútter í dag

Odyssey White Ice D.A.R.T.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Odyssey White Ice D.A.R.T. kve-kendi!!!! 

Kostar 35.800 hjá okkur en ég er að selja Ping Redwood Piper í leiðinni. Set 25þ á hann en kostar nýr um 55þ, enda rollsinn hjá Ping. Svipaður og Scotty Cameron hjá Titleist.

Það sést náttla ekkert á mínum, enda pútter!

Þannig að ef einhver vill gera kaup aldarinnar þá er tækifærið núna. Hann er til sýnis í Golfskálanum.

Málið er að Piperinn er 355g en Pílan er með 350/60/70 grömmum sem ég get skipt út að vild. Hef 370 í honum núna og er að raðelska það. Allt í með pílunni. Setti 11 í röð í holu og bætti metið.

En nota bene þá finnst mér Piperinn vera fallegasti pútter sem ég hef séð. Og sé á eftir honum. En notagildið er betra í Pílunni. 

Allir að koma í Golfskálann og prófa Piperinn!!!

5þ afsláttur af honum ef þú getur sett 12 í röð oní í fyrstu tilraun!!! 


kraninn goes digital

Ég offcially hata kranann inn á baðherbergi. Það er virtually ómögulegt að fá rétt hitastig.

Stillingin er ísblákalt beint yfir í sjóðandi heitt.

Enginn millivegur, eða.....það er mjög erfitt að finna hann allavega.

Væri til í að fá mér einn svona

digital faucet

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Digital Faucet er málið. Af hverju er þetta ekki á öllum heimilum! Spurning um að fá þetta í jólagjöf.


Pútt

Ég var púttmeistari dagsins!

Það er sem sagt oft rólegt á mánu-og þriðjudögum og við Knútur fórum því í það verkefni að prófa þessa dýrindis púttera sem við bjóðum uppá.

Strax komin keppni í þetta og ég vann í dag.

Mér fíla Odyssey White Ice nr7 best.

Það er skemmtilegt brot í púttgríninu okkar og ég hvet alla til að koma og prófa. Læt ekkert uppi um brotið en það eru ýmis trix á þessum fleti sem maður lærir. Það er t.d. ekki sama rennsli á holunum(hint, ein er nær glugganum og vex betur).

Sá sem mætir og setur 6 kúlur oní í röð fær verðlaun


Ný könnun

Komin ný könnun hér á hægri hönd.

GO DO


gítar

Ég sakna þess að spila á gítarinn og gera tónlist. Hef ekki haft neinn tíma undanfarið. En fyrir forvitna þá er ég að leggja drög að þriðju plötunni sem mun heita Katalog.

Fyrst kom Analog svo Monolog og loks lokast þríleikurinn með Katalog.

Er búinn að gera eitt lag sirka 80% tilbúið en með hugmyndir af fleirum. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að þetta verður pottþétt þykkt og gítardrifið stöff. Ætla að fara alla leið og ekki hlusta á neinn.

Mun gefa þessu lengri tíma en hinum skífunum. Leyfa þessu að gerjast.

Gone are the days þegar ég gat setið á sama stað í sófanum í nokkra klukkutíma og spilað á gítarinn og tekið upp tónlist. Núna eru það bara kvöld og helgar.

Katalog.....í verslanir kannski í haust eða næsta vetur.


yeah men

Við gáfum heppnum gæja 169.700 kr í Golfbúðinni í dag. Sá heppni var ótrúlega sáttur. Hann labbaði út með RAZR Hawk ás, Ping Karsten pútter, IQ þríhjólakerru, Footjoy skó, hanska, dúsín af Titleist ProV, stefnustangir og annað stöff.

Í dag var fyrsti venjulegi dagurinn eftir craz-e opnunardaga.


super racing

Sebas á afmæli bráðum. Við gáfum honum bílabraut með rafmagnsbílum sem stýrast með byssum. Hversu vel hljómar ÞAÐ eiginlega!!!!! Fengum þetta í Toys R Us. Ég og Beta vorum 55 mín að setja þetta upp. Á meðan sveif hann í kringum okkur sem óð býfluga,...

I save, U save, We´re all slaves to Iceasave

Kaus nei í gær. Beta líka. Vona að það sé réttari kosturinn. Það veit það greinilega enginn og aðeins tíminn mun leiða það í ljós. Allir sem halda því fram að þeir viti það og eru háværir með sínu svari sýna öðrum bara hvernig manneskjur þeir eru. Sama...

robot

Fyrir áhugasama þá mun ég hreyfa mig svona allan daginn á morgun

mhmm

það gerist lítið annað en Golfskálinn hjá mér þessa dagana. Ekkert fyndið né sniðugt við það að blogga því miður. Þó að reyndar mér finnst það yfirþyrmandi skemmtilegt þá átta ég mig á því að öðrum finnist það topic ekkert lesvænlegt. Í öðrum fréttum er...

Golfskálinn

shiiiii....brjálað að gera í Golfskálanum. Mikil traffík á fyrsta degi og í dag verður opið frá 11-20. Svo verður líka opið á laugardaginn og loks á mánudaginn dettur þetta í venjulega opnunartíma. Þá getur maður kannski

jebb

Einn dagur til stefnu. Við opnun Golfskálann kl 11 á fimmtudaginn! Allir velkomnir. Erum sem óðir að setja búðina upp. Raða upp öllum vörum og shjæna til.

Enter

,,Er að spá í að breyta nafninu mínu í Dílít Rúnarsson og ganga í Tölvuklúbbinn Enter sem Kristján Sturlu stofnaði á sínum tíma. Gæti verið deildarstjóri Reykjavíkursviðs." Þetta, ásamt fullt fullt af golfkylfum og vörum var það sem mig dreymdi í nótt....

Pre buyers syndrome

Alltaf gaman að kaupa stöff. Við vorum í Ylfu og keyptum bókahillu. Við röltum um búðina á meðan við vorum að melta hvort við ættum að ganga frá þessu eða ekki. Það er svo fyndið að maður dettur alltaf í ákveðið skap á svona ögurstundum. Skap sem ég kýs...

a long time....

Agent Fresco, svo fín hljómsveit, svo pirrandi rödd.....en þetta lag er svo klikkað að það overritar pirrið. Frábært lag

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband