Leita í fréttum mbl.is

Coupling

Erum að horfa á Coupling sem voru breskir grínþættir á árunum 2000 til 2004.

Hef horft á tvo þætti og líkar vel.

Mæli með þeim.


EuroSiggi

Ég held að það sé loks að frjósa í helvíti. Nokkrir apar flugu úr rassinum á mér. M.ö.o. hið ómögulega gerðist.

Ég er sammála friggin Reyni í eurovisionþættinum hans Palla!

Reynir er þessi feiti sem er algjört eurovision nörd.

Allavega....hann og ég erum gjörsamlega sammála með Aserbaijan.

Algjör FM957 froða en á eftir að grípa og verða vinsælt.

Topp þrír.

Klárt.

Þið heyrðuð það fyrst hér.


Völvugus

ég spái nú að valdatíð Barca fari pínu að ljúka og Real kikki verulega inn. Miðað við þróun mála þá spái ég nú síðasta deildartitli Barca í pínu tíma. Fyrst mun Real ríða rækjum svo önnur lið. Svo koma Barca aftur eins og gengur og gerist með allt. Gamla hringrásin.

Einnig spái ég því að Manjú taki titilinn í ár og komist upp í, er virðist þeirra eina keppikefli, nítjánda sigurinn. Eftir það mun Ferguson (besti stjóri sögu knattspyrnunnar) loks stíga niður því takmarkinu er þá náð.

Þá mun klúbburinn ganga í gegnum niðursveiflu og ég spái Liverpool titlinum allavega næsta ár ef ekki næstu ár þar á eftir.

Úrslitaleikur Barca og Manjú í meistaradeildinni mun verða ákveðinn lokapunktur í valdatíð beggja liða.

Ég finn einfaldlega eitthvað í loftinu. Hvort sem þú vilt kalla það ,,a great disturbance in the force" eða ,,the winds of change" þá er deffinettlí eitthvað að snúast.


óbilandi tryggð

Sebastian er sennilega einn öflugasti aðdáandi Sergio Ramos í Real Madrid.

DSC00621

 

 

 

 

 

 

 

 

Þegar Sebas og ég spörkum á milli eða erum bara að gera eitthvað fótboltatengt þá kemur alltaf ,,pant vera Sergio Ramos!".

Ég er hins vegar Barcelona aðdáandi, hef meira að segja komið á Nou Camp og alles. 

Eins og allir vita þá missti Ramos bikarinn undir rútuna og hann stórskemmdist nú á dögunum

Ég sýndi Sebas atvikið á youtube fyrir skemmstu og hann vildi nú lítið gera úr málinu á þeim tímapunkti og fannst ekkert merkilegt.

Svo núna í dag þá barst talið eitthvað í þessa áttina aftur og ég sagði að Sergio væri bara klaufi og pínu kjáni að missa bikarinn.

Það sló á með þögn í aftursætinu. Svo eftir smá þá heyrðist veikburða titrandi rödd segja:

,,þú þarft nú að koma aftur til Spánar pabbi"

,,nú! af hverju?"

,,þú þarft bara að segja fyrirgefðu við Sergio Ramos!"

,,ha!"

,,Sergio verður bara leiður ef þú segir svona, segir að hann sé kjáni"

Ég var djúpt snortin við að heyra þessa óbilandi tryggð.

Ég bauðst því auðmjúkur til að hringja bara í hann og biðjast afsökunar. 

Hann sættist á það. 


græjur

Taylor Made R9 9.5° 422cc stilltan í Neutral með Fujikura Motore 65gr 45.25" stiff og 3.2 torque.
Ping G5 15° TFC 100F stiff
Ping G5 19° Prolaunch Blue stiff
Titleist 695MB 4-Pw true temper dyn gold s300 D2
Ping Tour 54°
Ping Tour 60°
Odyssey White Ice D.A.R.T. 370gr pútter
Callaway All Weather hanski
Titleist Pro V1x
Ecco Street svartur og rauður

nei bara sonna að perrast


listin að fæðast uppá nýtt!

Skil ekki hvernig fólk getur verið hresst á morgnana. Ég þarf alltaf smá tíma til að jafna mig.

Ég held að fólk sem vakni hresst nái á einhvern máta að blekkja sjálfan sig. Ég vildi að ég gæti það.

Þetta er meira en að segja það. Líkaminn fer í algjört dormant state. Liggur í lámarks keyrslu í nokkra klukkutíma. Svo allt í einu bara BEM! byrja strax að vera hress! Ekki möguleiki.

Ef þú pælir í því þá er þetta eins og að fæðast upp á nýtt.

Bara mesta furða að ég skuli ekki bara grenja og orga í svona 10 mín eftir að vekjaraklukkan hringir.


Sumar

Það er spáð roki og rigningu eins langt og spár ná! Djöfull er það æðislegt.

Er samt að pæla að fara mýrina og slá nokkur högg.

Beta sagðist hafa vaknað í morgun við Lóu söng. Mér finnst það ólíklegt þar sem hendin á mér kann ekki að syngja og var sofandi í þokkabót.

Is this sumar? No, T-H-I-S.....I-S.....V-O-R!!!!!!


hress

Var svo þreyttur í gær að ég fór að sofa kl 22!

Hefur ekki gerst síðan í nam!

Vaknaði þess vegna kl 5

hress.is

Er að pæla að fara í sund, en nenni því ekki og ætla að skríða aftur uppí.


fiskur

Mæli með Fiskbúðinni Hafberg. Hún er við hliðiná Wilsons, hinu megin við götuna frá okkur í Golfskálanum.

Ég og Knútur gerðum díl við þá um að borða þar fisk gegn góðum afslætti.

Myndi að öllu jöfnu ekki gera það nema að þessi fiskbúð er öðruvísi. Þeir eru með veitingastað inn af búðinni. Og það mikilvægasta....það er engin lykt. Annars myndi ég ekki fara þarna inn.

Fæ dýrindis plokkara þarna með rúgbrauði og Bernaise á 1100kr. Sem er lala verð en málið er að þessi plokkari dugar mér í tvö skipti þannig að 550kr máltíðin er bara helvíti gott.

Það er athyglisvert að við hliðiná fiskbúðinni er Menntaskólinn við Sund. Það kemur ekki einn krakki þarna inn og borðar að sögn. Þeir fara allir í sjoppuna við hliðiná eða í skeifuna á Metro eða Subway.

Ég ljái þeim svo sem ekki. Þetta er ekki eitthvað sem ég venjulega myndi gera. Og hvað þá 15 árum yngri en ég er í dag.

gotta love sum plokkari


Metallica: The Phantom Lord of the Opera

Það hefur borist í tal hversu osom það væri að gera Rock óperu úr sögu hljómsveitarinnar Metallica. Með það að leiðarljósi fór ég í smá hunt á netinu. Fann þessa líka fínu leikara sem gætu komið til greina til að túlka persónur sögunnar. Kristján Sturlu...

Berdreyminn

Mig dreymdi Matteo Mannasero í síðustu viku. Fékk eiginhandaráritun(sem ég myndi aldrei gera) og spjallaði við hann í þessum annars óviðburðaríka draumi. Þessi gæji vann svo mótið um helgina! Svo dreymdi mig læknabústaðinn sem afi (héraðslæknirinn) og...

pútt

Fór í fyrsta sinn í Hraunkot í langan tíma. Boltarnir flugu vel og pútterinn að virka ágætlega. Fínt að byrja loksins að sveifla.

klúrt

Beta er að prjóna upp úr frönsku prjónablaði. Hún bað um aðstoð mína við að þýða og ég fór á google translate. Það kom bara út einhver klúr ferskeytla!

Staðreynd dagsins

Staðreynd dagsins: Gjemsinn þinn er með meiri reiknigetu en öll starfsemi Nasa árið 1969. Við sendum sms og kíkkum á mbl.is en þeir sendu mann til tunglsins!

einn svangur

...

heimsins versti elskhugi

(Margmiðlunarefni)

Verst spilaðasta hola ever?

(Margmiðlunarefni)

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband