Leita í fréttum mbl.is

79 högg

79 högg í gær og ég merkilega sáttur. Var að dræva sem mothafogga á flestum brautum. Nema á fyrstu þar sem ég húkkaði út í á og fékk dobbúl.

Svo púttaði ég sem engill. Nema bara að holan var alltaf pínu lengra í burtu en kúlan vildi fara.
Ég átti sem sagt ekki eitt feilpútt allan hringin og var alltaf beint á holu. En......var mjög oft centimetrum of stuttur.

Setti í raun bara eitt flott pútt niður, og það var á lokahounni.

Grínin voru bara svo ótrúlega hæg að heilinn í mér registeraði ekki að maður átti í raun alltaf að negla. En uppsetning, línulesning og framkvæmd strokunar var 100% rétt í öllum púttunum. Vantaði bara pínu meiri kraft.

Varð í 19-23 sæti af um 248.

Miðað við fyrsta hring eftir blóðtappa og hreyfingarleysi þá er ég glaður. Síðasti hringur var 7.ágúst þannig að.....

nánari lýsing á hringnum kemur í kvöld.


lím

funny-angela-merkel-superglue

Mót

Fyrsta mót sumarsins á eftir kl 16:10. Þetta er 1.maí mótið á Hellu.

Lítur út fyrir að ég fái skásta veðrið í dag. 2mtr á sek, skýjað en engin rigning.

Völlurinn verður samt massa blautur þannig að maður er ekkert að fara nota Ecco street í þetta sinn.

Mun prófa ýmsa hluti í fyrsta sinn á þessum hring. Er með prótótýpu af bol sem ég er að sjá hvernig kemur út. Saumaðan af Betu.

Svo er ég líka með sænskan kíkí sem Hansi vildi að ég prófaði. Length Master(ekki gúggla hann, það kemur bara eitthvað klám). Mjög sexí lookin kíkir og virkar vel hingað til allavega.

Erum að pæla að selja hann í Golfskálanum.


Ný könnun

Beta var eitthvað að hneykslast yfir því að ég drykki kókómjólk í bíó!

Hélt að það væri bara basic.

Ég er náttla alin upp við að drekka mjólk í öll mál. Enda hraustur með eindæmum. Mér skylst að þeir að sunnan hafi aðallega alist upp við að drekka vatn eða kók með mat.

Veit ekki hvort þetta er bundið við að vera að norðan eða bara utan af landi.

Spurning um að henda í eitt stykki könnun


Glasvegas

Önnur skífa Glasvegas komin út. Við fyrstu hlustun er hún of hlaðin af próduktión og veseni. Vantar húkkara. En eins og með margar plötur þá þarf hún kannski bara smá meltingu.

Það eru allavega nokkrir kúl gítarpartar í gangi þarna.

Fyrir áhugasama þá bendi ég á lög með þeim eins og:

It´s my own cheating heart that makes me cry
Go Square Go
S.A.D. light


THOR

THOR var...........ætla ekki að eyðileggja neitt fyrir neinum. Mæli bara með því að fólk fari og sjái hana.

Ef þú fílaðir:

Mamma Mía
Driving miss Daisy
Moulin Rouge
Bring it on
Save the last dance
eitthvað með Sally Field

Þá skaltu ekkert hafa fyrir því að fara á myndina.

En ef þú fílar:
Tron
Lord of the rings
Transformers
Iron Man
The Expandables

Þá eru miklar líkur á að þú fílir THOR

4 af 5 hjá mér
1 af 5 skv Betu


uppáhalds brandarinn minn

Vitiði hvernig dvergar urðu til?

Óli og jói voru heima hjá sér einn daginn og sá síðarnefndi tók eftir að mjólkin var búin.

,,Óli! nenniru að fara og kaupa mjólk út í búð?"
,,uuuu NEI!, far þú bara!"
,,æji....eigum við ekki bara að skreppa saman?"

og svo skruppu þeir bara saman.


sumar?

þú veist að sumarið er komið þegar þú lítur út í garð og sérð þessa gaura í svona gír 

21606_main


THOR!!!!!

Þá er það THOR!!!!!!

ætlum í bíó á stórmyndina THOR!!!!!

alveg sama þótt hún fái slæma dóma við ætlum á THOR!!!!


Blas Phemy

Það er svo mikið insult to music að hafa þrjá gítara á sviði að spila lag og það friggin heyrist nánast ekkert í gítar!

Sá eitthvað kántrí væl hjá Jay Leno og þetta var svo mikið Blasphemy.

Hver leyfir svona sadistum að koma opinberlega fram!

Hver ber sökina á þessu?

Spurning hvort við spyrjum bara ekki ÞESSA aðila. Þeir eru svo góðir í að koma sök á aðra. Pointless.


Titleist 695MB

Án djóks þá eru þetta fallegustu kylfur sem framleiddar hafa verið. Kalt mat. Og þær eru mínar!!! Fékk þær frá Póska sem upphaflega pantaði þær custom made fyrir Helga Birgir Þóris. Þær komu eitthvað funkí frá Titleist og Helgi vildi þær ekki. Þetta...

Stubbur

Við erum komnir með varðhund í Golfskálanum. Ótrúlega sætur lítill Labrador hvolpur. Hann svaf reyndar á verðinum frá 10 til 13 eða svo. Knútur þurfti að vekja hann. Það bráðna jafnvel hinir hörðustu karlar er hann valhoppar á móti þeim með dillandi...

Puyol og co

FORCA BARCA!!! Myndi segja að þetta væri nokkur klárt mál. Barca - Manure Lokaleikur Real Barca var soldið daufur framan af. Svo glæddist þetta aðeins. Alltaf gott að fá rauð spjöld í leikin svona rétt til að hressa þetta soldið við. Því eins og skáldið...

Elvis

Er að lesa ævisögu Elvis. Er búinn með eina og hálfa bók. Árið er '67 og Elvis orðinn staðnaður og leiður á núverandi gengi. Hann og The Colonel eru að keyra þessa maskínu áfram án nokkurra listrænna gilda. Gera bara hverja lélegu kvikmyndina á fætur...

ræs

Ég fæddist aftur í morgun

tank on empty

Við endurstillum alltaf km töluna þegar við tökum bensín. Það er mjög þægilegt til að vita hve marga km hægt er að keyra í viðbót. Við erum á 99 árgerð af Yaris þannig að þetta er ekki fídus í mælaborðinu. Við erum oftast komin sirka upp í 510km þegar...

Metnaður

Tengdó gáfu Sebas m.a. fótbolta í afmælisgjöf. Svona alvöru ,,harðan" í hans stærð. Hann var rosalega ánægður og vildi eiginlega fara út og spila. Í þessu veðri. Ég sagði honum þá að við þyrftum núna bráðum að fara skrá hann á fótboltanámskeið. Kannski...

Ný könnun

Ég sé að miðað við síðustu könnun þá myndum við slefa í eina góða big band grúppu. Góð dreyfing á hljóðfæraleikurum sem lesa bloggið. Ný könnun hér á hægri hönd. Kjósið Bless

Egg

Þá er það páskadagur. Við földum eggið fyrir Sebastian. Hann er ekki alveg að fatta ,,heitur, kaldur" conceptið samt. Þetta tók allavega smá tíma. Hann fékk gefins mjög stórt egg frá tengdó. Það var svo stórt að það voru tveir málshættir í því. Eitthvað...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband