Leita í fréttum mbl.is

golf

Er skráður í mót á laugardaginn út í mosó. Ekki seinna vænna en að fara að spila eitthvað. Sumarið fer ótrúlega rólega af stað hjá mér. Ekki verið jafn rólegur í 5-6 ár.

bögg að vera fastur í vinnu allan daginn eins og almúgurinn.

Ætla svo að reyna að fara út kl 6 einhverja daga. Taka 18 holur fyrir vinnu. Held að það sé málið.


bakari sagna

hvað er annars málið með birgðarstjórnunina í bakaríum!

Lendum oft í því að kringlurnar séu búnar. Í dag fórum við t.d. í bakarí kl 12:30 og þar var bara allt búið. Klukkan hádegi! Rúnstykki og fleira. Bara til 3 fönkí milljón korna kringlur eftir.

Hérna í holtinum er bakarí og þar eru kringlurnar sem heitar lummur greinilega. Því þær eru nánast alltaf búnar.

Mín spurning er því þessi: Hver sér um birgðarstjórnun í þessum bakaríum?

Af hverju er ekki hent í auka kíló eða svo til að það sé nóg handa öllum?

Sérstaklega ef blíða er í kortum, þá er vitað að traffík eykst og allir verða rúnstykkis óðir.

Spurning um að henda í eitt stykki Ziggy´s Pastry útibú. Myndi moka kringlunum út.


dagur

Sofa út, borða kókópöpps í morgunmat, fara útí garð á bolnum og spila fótbolta og golf með Sebastian. Fara svo öll saman út í Nauthólsvík á ströndina að sóla sig. Koma við í bakaríinu á heimleiðinni og kaupa sér kringlur og nammi og éta á sig gat í hádeginu. Beta útá svölum í sólbaði, Sebas út í garði í fótbolta með strákunum. Ég að lesa Elvis. Leikur á eftir. Chelskí vinnur.

Uppskrift að wunderbar dag


World War 10

Talandi um stríð. Númer hvað yrði þessi heimsstyrjöld?

Ekki 3 eins og margir myndu kannski halda.....fásinna!

Væri frekar númer sirka 10 skv þessum gæja

http://redhatrob.wordpress.com/2007/07/20/world-war-one-and-world-war-two/


Viðrar vel til loftárása

Djöfull finnst mér eins og heimsstyrjöld sé í nánd.

Hvíti maðurinn á móti múslimanum

Eða Caucasian Vs Moro

Fyrst kom 9/11
Svo var hefnt með Farawayistan árás sem lauk með dauða Obama(obligatory villa nú á dögum) Bin Laden.

Núna er röðin komin að múslimanum aftur. Það kemur eitthvað rosalegt. Nóg til að valda full out stríði.

Kalt mat

Þetta liggur í loftinu....þið lásuð það fyrst hér gott fólk.


pyjamas hamas

Ævintýradagur hjá Sebas í dag. Búinn að leika sér mikið úti í bolta með strákunum í garðinum og svo núna kl 21(venjulegur háttatími kl 20:30) þá fórum við öll í náttfötunum út í nóatún til að velja okkur eitt nammi.

Vakti ekkert litla lukku hjá pungnum.

Það vakti ekki síður lukku hjá fólki inn í Nóatúni. Beta beið út í bíl og við tveir ráfandi í nammileit í náttfötum.

Góður dagur í dag.


setning síðustu 100 ára

Horfði á Anvil heimildarmyndina um daginn. Svo í gærvköldi sá ég Rolling Stones myndina eftir Martin Scorcese.

Var núþegar búinn að sjá báðar myndirnar og verð að segja að RS myndin er leiðinleg. Ótrúlega ópersónuleg og ekkert í gangi.

Anvil hinsvegar var ótrúlega góð.

Það er samt eitt sem stendur upp úr. Það er klassísk setning sem Keith lætur eftir sig. Þetta gæti hugsanlega verið uppáhalds setningin mín.

Hún hefur allt....depurð, gleði, vináttu, metnað og fegurð.

Þegar hann var spurður hvor væri betri gítarleikari, hann eða Ronnie Wood

þá kom þessi gullmoli.....

,,We´re both lousy, but together we´re better than ten others"


shaken not stirrrr

Ég var útí garði að leika við Sebastian áðan. Það voru nokkrir krakkar þarna í búðarleik m.a. krakkarnir þeirra Nonna og Höllu frá Blönduósi.

Allavega...þau voru að færa mér allskonar þykjustunni mat.

,,hvað viltu núna?"

ég reyndi að svara á frumlegan máta.

,,súkkúlaðijarðaberjakökuís"

Svona gékk þetta milljón sinnum í viðbót þangað til að ég sagðist vera saddur.

,,bara einn í viðbót"

,,ok"

,,hvað viltu núna?"

Þá datt mér í hug að fokka aðeins í þeim og biðja um áfengi.

,,Malibu Leche takk"

Þá kom bara strax

,,viltu klaka?"

!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Krakkarnir með þetta á hreinu.


achaaaaa


víííííí

víííi

hress

Nákvæmlega svona bregst ég líka við þegar tilkynnt er að nú séu flugfreyjur að bera fram mat!

freknur

Ég var að pæla......djöfull er langt síðan ég sá einhvern með freknur! Hvað er annars málið með freknur? Hverskonar fyrirbæri er það?

Hola

Ég skipti um grip á pútternum mínum og skellti Lamkin 3Gen gripinu á. Allt í! Hann virkaði sem svín um helgina út á Hellu. Þetta grip er þykkara og algjör draumur. btw þá hætti ég við kaupin á Odissey Dart og held mig við Píparann minn frá Ping. Knútur...

Við erum öll hólpin

Mannkyninu er bjargað! Við erum öll hólpin. Take That eru aftur byrjaðir að gefa frá sér vídeó þar sem þeir sjást sitja eða standa horfandi í mismunandi áttir.

Vírað

Mæli með Wired þennan mánuðinn. Þetta er ,,The Humor Issue" og gæjinn í SNL er framan á coverinu. Wired....the gift that keeps on giving.

fíll

Djöfull er ég að fíla þennan grófa undirtón og þennan ethereal söng yfir. Gott kontrast

Æfing

Mætti á æfingu í fyrsta sinn í langan tíma. Það kom mér skemmtilega á óvart að strákarnir eru ennþá strákarnir og Derrick er ennþá Derrick. Var búinn að sakna þess að mæta. Mjög gaman. Svo var pútterinn bara svo suddalega heitur að annað eins hefur varla...

Gylfi

Mig dreymdi að Beta væri laumudóttir Gylfa Ægis! Ég er að pæla í að fara í meðferð. Eða allavega í ískalda sturtu.

1.hringur sumarsins

Fyrsti hringur sumarsins staðreynd. Ég sló 30 boltum fyrir hringinn til að hita upp og vissi að það sem ég þyrfti að passa væri 50mtr og niður útaf tötsinu sem er alltaf ryðgað á vorin og líka sveiflu gefelsið. Maður er oft eitthvað stirður á vorin og...

Malibu Leche

kemur mér verulega á óvart að engin drekki Malibu Leche með matnum! Það er 40% Malibu og 60% mjólk Basic Ætti að vera efst í matarþríhyrningnum.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 153617

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband