Leita í fréttum mbl.is

allt sem ég snerti bilar!

það var og.......

Engin heimilistæki voru sköðuð í dag

EN

Ég eyðilagði pínu á gítarnum mínum, farinn í viðgerð

Lykillinn að bílnum virkar skyndilega ekki! Blikkar bara ljósið og opnar og lokar bílnum handahófskennt að vild!

Hvað er að gerast!

Er einhver með eitthvað voodoo í gangi?


Dagur í lífi föður stubbs

Sofa ílla alla nóttina því það er mikið rumsk
Ræstur út kl 8
græja graut
klæða sig
baða stubb
klæða stubb
Leika pínu við hann
Svæfa stubb kl 9
Hvíld------Sweet nectar of all that is sacred
Taka nethring
skrifa færslu
spila inn bassa við eitt lag
bæta pínu trommum við annað
Kl 11...stubbur vaknar
Gefa graut
leika við stubb
Halda mini tónleika fyrir stubb með magnarann í feðraorlofsbotni
Stubbur headbangar með
Kl 13 svæfa Stubb
Tékká netheimi
taka til í eldhúsi
ganga frá þvotti
baka kökur (eina hjartalaga fyrir Betu)
.
.
.
.
.
.
.
Engin heimilistæki voru skemmd þennan dag. Enn sem komið er.

Dagur í lífi stubbs

Eftir að hafa vaknað 1-2 yfir nóttina þá er ræs kl 8
morgunmatur
bað og slíkt
Sofna kl 9
Vakna kl 11
Brunch
Leika
Horfa á pabba
Sofna kl 13
Vakna kl 15
matarhressing
Leika
Horfa á pabba
Powernap 17:30
Vakna 18:30
Matur með hinu fólkinu
Leika
Horfa á alla
Um kl 21 byrja ég að þykjast vilja að fara sofa
362.835 tilraunum seinna.....
....sofna loksins á bilinu kl 23-24

Repeat


Soundtrack of my life

http://sadtrombone.com/

Old skúl matar preff from Sebs

Ég og Sebas vorum sendir til að kaupa í matinn í gærkvöld. Við fórum í Bónus og týndum í körfuna einhvern samtýning héðan og þaðan.

Svo fórum við inn í kæliskápinn þar sem kjötið er.

,,kaupum bjúgu!" segir Sebas í upphrópunarstíl

Eins og hugmyndinni hafði lostið skyndilega niður í kollinn hans

Þetta var svo dramatískt að ég samþykkti það, þó mér þyki bjúgu nú ekkert góð

,,farðu og náðu í bjúgu drengur!"

Hann kom tilbaka með danska lifrakæfu

Ég fór þá með honum að bjúgunum og hann valdi flottasta pakkann

Hrossabjúgu!

Ok, ég veit ekkert um bjúgu en þetta hljómaði revolting

Fokk it

Beta getur pottþétt gert eitthvað sæmilegt úr þessu

Keyptum ekki einu sinni meðlæti eða neitt

Beta var bara

DAFUQ!!!

HROSSABJÚGU!!!!

Þetta endaði á því að Sebas borðaði mest af öllum og við pikkuðum í þetta. Ég faldi góðan hluta af þessum viðbjóði undir kartöflumúsinni svo Sebas héldi að ég hefði borðað þetta.

Hann bara sáttur og stútaði þessu á nó tæm!

Þetta var ekki gott, vægast sagt.

En Sebas svalur á því


Uppreisn heimilistækjana

Jæja......er loksins orðinn einn á heimilinu með DK

Fyrsti dagurinn okkar saman

Allt hefur gengið að óskum enn sem komið er. Drengurinn kátur, étur vel og sefur

Það er bara eitt atriði

Heimilistækin hafa gert uppreisn gegn mér!

Fyrst setti ég í þvottavél, ekkert mál (enda áður gert).....nei,nei,allt á floti eftir klst!

Eitthvað að henni skyndilega og viðgerðarmaður pantaður og kemur á mánudaginn

8 ára vél í umsjón Betu.....aldrei neitt vesen.
1 dagur í umsjón SIR........Biluð!

Þetta kom mér ekkert á óvart

En það sem kom mér hins vegar verulega á óvart og særði mig pínu var uppreisn af hálfu örbylgjuofnsins

Sko, hingað til hefur hann verið minn helsti bandamaður. Ég skaffa honum vel að vinnu og við höfum gagnkvæma virðingu fyrir hvor öðrum. Við leikum okkur þannig að ég þarf að ná að slökkva á honum 1 sek fyrir niðurtalninguna eins og sprengjusérfræðingur. Ef það tekst ekki þá pípir hann á mig. Good times.

Nei,nei.....hann bara slökkti á sér helvítið

Steindauður

Samt ekki alvarlegra en svo að honum sló út......en SAMT!

Þetta er klárlega stuðningsyfirlýsing við þvottavélina!

Ég tek þessu allavega þannig

Ég sem hélt að ég og Örri værum vinir.

Ekki lengur


mmhmm


Samnýting

Við erum að ganga inn í svokallaða ,,cloud" menningu í heiminum á næstu árum.

Það er svo mikið til af fólki, drasli og allskonar dóti í heiminum og pláss er af skornum skammti.

Þess vegna er þessi tilhneyging núna að samnýta hluti.

Þetta byrjaði í tölvum þar sem manni býðst að geyma hluti á internetinu eins og á dropbox.com

Þægilegt, aðgengilegt og gríðarlega sniðugt. Þá geta aðrir notað hlutinn líka. Samnýting.

Svo eru síður að poppa upp þar sem fólk getur skráð hlutina sína, eins og verkfæri og slíkt, og leigt út þegar maður er ekki að nota þá.

Því hlutir eins og borvél og slíkt eru bara í notkun kannski í mesta lagi 3-5% líftímans. Ef maður gæti bara farið á síðu og séð borvél til leigu í næstu götu þá þyrfti maður ekkert að kaupa alla hluti. Samnýting.

Svo er jafnvel farið að tala um samnýtingu bíla. Bíllinn þinn stendur ónotaður 90% tímans og er ekki bara málið að leigja hann út á meðan? Þannig vegur þú upp á móti bensínkostnaði og léttir öðrum lífið í leiðinni.

Það er verið að þróa bíla sem eru í raun bara tölvur með hjólum. Þannig að þegar þú leigir bíl þá bara færðu kóða eða eitthvað slíkt og getur opnað hann og ræst með honum. Þarft aldrei að tala við eigandann.

Sniðugt

Líst vel á þessa þróun

Þetta eru bara dauðir hlutir. Af hverju þykir fólki svona vænt um hlutina sína?

SAMNÝTA ÞÁ PÍPÓL!


Frey

Kominn í barneignarfrí

í friggin tvo mánuði

shiiii............ég og DK [dí key] erum svooooo að fara hitt-a öll kaffihús miðbæjarins og þræða bókabúðir....uns við föllum niður af þreytu.

Fyrsti dagur: Takmark: Fá hann til að segja ,,Pabba"
Annar dagur: Takmark: Fá okkur tattú saman

......eða eitthvað álíka gaman

við sjáum hvernig þetta fer

UPDATE
ég skrifaði textan fyrir ofan í gærkvöldi. Núna hefur ýmislegt breyst. DK er það dramatískur að hann ákvað að verða veikur svo mamma sín myndi nú ekki fara frá honum alveg strax. Við vorum vakandi í alla nótt með hann grenjandi meira og minna stanslaust. Tók þó pínu tíma aflögu til að segja ,,pabba". Ég náði því á diktafóninn til sönnunar. Þannig má segja að ég sé pínu á undan áætlun varðandi planið hér að ofan.

En honum tókst að halda mömmu sinni pínu lengur hjá sér þar sem við ætlum með hann til læknis í dag. Örþreytt eftir nóttina.

Needless to say þá fór ég ekki út að hlaupa kl 7 eins og plön gerðu ráð fyrir.

Bless


Tilkynning!!!!!!!!

Ég er kominn út úr skápnum!!!! Ég er Gey . . . . . . . . . . . Ég er sem sagt kominn í ársfrí í GKG sökum lítillar spilamennsku og genginn í Golfklúbbinn Geysi, sem hefur skammstöfunina GEY Sé nefnilega fram á að spila ekkert brjálæðislega mikið og týmdi...

tilkynning

Það gæti eitthvað stórfenglegt verið í uppsiglingu en Kannski ekki Nánar um það síðar í dag

Diskur

Keypti mér hýsingu fyrir harðan disk Gaurinn sem afgreiddi mig var undarlega ákafur í að fá að hjálpa mér við að setja diskinn í hýsinguna. Þetta eru bara tvö plögg sem þarf að tengja og skrúfa svo hýsinguna saman Gaurinn var dágóðan tíma að þessu á...

Flying ?

Sebas var að leika sér með Flying V gítarinn sinn í gærkvöldi Henti sér í pósur og spilaði sem fjandinn Svona litlir strákar gera sér oft ekki grein fyrir umhverfi sínu og hann var að reka gítarinn í húsgögn tvist og bast. Eins og gengur og gerist. Svo...

Vinsælast á youtube!

Hvað er málið með mest ,,séðu" myndböndin á youtube? já já listin byrjar nokkuð fyrirsjáanlega 1 Justin bieber með baby lagið (tæplega 700 milljónir) 2 J Lo með eitthvað crap vídjó 3 Lady gaga 4 HM lagið Svo kemur hið geysivinsæla ,,Charlie bit my...

Yo Yo ís

Fórum á American Style og svo á Yo Yo í eftirrétt. Flottur staður þessi yo yo Einstaklega skemmtileg stemming. Lítil stelpa með fjölskyldunni sinni hrópaði yfir allan salinn ,,ERU EKKI ALLIR Í STUÐI!!!" ég umlaði á móti.......,,JÚ!" Fólk hló Þetta var...

Trommur

Er að forrita trommur yfir lögin mín Stundum tekst það helvíti vel upp oft ekki Ákvað að setja gríðarlega mundane trommur yfir eitt lagið í tilraunarskyni og það var hlægilegt Það verður alltaf að vera eitthvað edge hjá kjéppanum Spurning um að...

Rass

Áttaði mig á því að ég er búinn að vera að skeina annan rass en minn núna hátt í 5 ár Það styttist núna í að Sebas geri þetta bara sjálfur, enda á leið í skóla á næsta ári Þá tekur bara næsti rass við 5 ár í viðbót með DK Sæll 10 ár að skeina aðra rassa!...

Dedicated

"Rob has chosen not sign a full Staff contract in 2011 to give him total choice of exactly what he puts in the bag." "Rob prefers to work on his swing in the most part by himself , occasionally visiting Matt Belsham." http://www.robertrock.co.uk/profile...

Golf í beinni

Þá erum við feðgarnir á leiðinni út í Golfskála til að horfa á Tiger og ROBERT ROCK einvígið. Verðum mættir kl 10 Þeir sem vilja geta komið í heimsókn

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband