Leita í fréttum mbl.is

Upptökuferli

Fyrir þá allra hörðust

Þetta þriggja tíma upptöku session í Coldwater Studio þar sem Smashing Pumpkins eru að taka upp demó af laginu ,,Lonely is the name". Ekkert spennandi lag en gaman að sjá hvernig Billy fer að þessu tækinlega séð. Í raun er þetta nákvæmlega eins og ég tek upp. Nema í staðin fyrir að fara í gegnum magnarann þá fer ég beint í tölvu í gegnum Zoom G3.

Svipuð rútína. Fyrst að taka upp gítar beinagrind, svo trommur, svo bassa, svo gítar pælingar en ég set sönginn síðast en Billy skellti honum þarna strax eftir beinagrindina. 

Finnst þau vera ótrúlega lengi að þessu. Basic gítar, söngur,trommur,bassi,lead gítar....3 tímar. Hefði tekið mig rúmlega klst. Og þar sem þau eru betri en ég á hljóðfærin sín þá ætti þetta að taka enn styttri tíma. 

Gaman að sjá Jeff vinna, hann er reyndar mjög skilvirkur. Notar sitt Line 6 M13 og fer í Fender Bassman magnara. Sem er einmitt sá magnari sem ég nota helst í upptökum. 

Áhugavert að sjá Billy segja við Mike að gera meira transition á milli verse,brú og kórus. Mætti leggja meiri áherslu á það upp á síðkastið. Finnst tónlistin hans undanfarin áratug einmitt einkennast af því hve lítill munur er á versi og kórus. Sem mér finnst slæmt. Þá líður lagið bara í gegn og lítið um ris og lægðir. Ekki það sem ég fíla. 

Ótrúlega flott bassalínan hjá henni í upphafi. Svo koma athugasemdir frá upptökumanni og Billy sem einfalda þær og leiðinleggja. Hefði átt að halda fyrstu pælingunni sinni.

Gaman líka að sjá að það eru fleiri en ég sem lenda í að henda niður laghugmynd og ströggla svo við að muna hvernig ég hafði spilað hana. Í upphafi eru þeir að renna í gegnum upptökuna til að muna gítarinn og texta. 

Þetta lag verður svo ekki á plötunni sem kemur síðar á árinu. Verður sennilega B-hlið. Sem er fínt því það er ekkert spennandi 


svo satt

If money is the root of all evil

Then why do they ask for it in chuch?


ZooSir

Ég á erfitt með að beygja mig niður og súpa vatn HÆGRA megin við kranann eftir að ég tannbursta mig.

Svipað kannski og Zoolander, sem átti erfitt með að beygja til vinstri

Svona er maður vanafastur. Búinn að tannbursta mig, beygi mig niður og skola.....alltaf vinstra megin við kranann.


Fundið

Skýring fundin á því af hverju allt virðist líða hraðar eftir því sem maður eldist.

http://jdueck.net/article/160/this-is-your-life

Þetta var þá ekkert samsæri eins og ég hef lengi vel haldið(og bloggað um).

Hélt að það væru einhverjir sem rændu alltaf pínu af tímanum í lok hvers árs.

Tímaræningjar

Og þannig stytt daginn pínu ár hvert

En nei, svo er ekki

Tékkið þessa slóð að ofan


SIR Bítur

Er ég einn um að beatboxa þegar ég sit fyrir framan barnið mitt og gef því að borða?

Ég stend sjálfan mig að því að purra,hissa og basically beatboxa fyrir framan DK til að hann snúi að mér og veiti mér athygli og opni munninn.

Am I going MAD!!!!!


OLD

ACHTUNG!

Það eru bara 37 manneskjur á lífi sem fæddust átjánhundruðogeitthvað

ACHTUNG!

Tölfræði bendir sterklega til þess að fyrsta manneskjan til að ná 150 ára aldri sé núþegar fædd. Það gætir verið ÞÚ!!!!!!!!!!!!!!

En þeir segja reyndar að líklegast sé það einhver fæddur á síðasta ári.
DK!!!!!!!!!!!!!!


Þetta er áhugavert

http://en.wikipedia.org/wiki/Pando_%28tree%29

Þessi lifandi hlutur er 80.000 ára gamall og vegur 6 milljón tonn!


Fortíðardraugar

Vissir þú að við lifum öll í fortíðinni?

Það tekur 80 millisekúndur fyrir taugaboð að ferðast upp í heilan og skila af sér upplýsingum um hluti. Þess vegna er augnablikið akkurat ,,NÚNA" orðið 80 ms gamalt þegar þú færð vitneskju um það.

Og þetta er bara meðalhraði. Ef þú ert hávaxinn þá tekur þetta lengri tíma og maður lifir enn lengra í fortíðinni.

Þarna er komin skýringin á því af hverju Beta er svona klár og snögg að hugsa og finna lausnir.

http://www.youtube.com/watch?v=BTOODPf-iuc&feature=g-u-u&context=G275f2cfFUAAAAAAABAA

Vsauce......flottir


áhugavert

Í gamla daga þá voru kvikmyndir bara sýndar með 16 ramma hraða og maður sá auðveldlega þegar myndin blikkaði, eða flikkaði eins og kaninn segir.

Þess vegna voru myndir oft kallaðar ,,flicks"

Og eru enn, eins og t.d. ,,chick flick" og ,,dick flick"

Fyrir þá sem ekki vita hvað það er:

Chick Flick
a slang term for a film mainly dealing with love and romance designed to appeal to a female target audience.

Dick Flick
The testosterone-driven opposite of a "chick flick". Generally contains lots of car chases, explosions, and boobs.


G.Sig

Ánægður með Gylfa Sig í ensku. Þessi gaur á eftir að slá í gegn. Kalt mat. Þið lásuð það fyrst hér. (lásuð!!!!! hverskonar fokked up orð er það!) Keypti hann og Sinclair og Graham frá Swansea. Fékk samtals 22 stig bara fyrir þá. Svo var Persei fyrirliði...

Louder than words

,,....it has really good harmonics response, you know...,.. djúúííííííjijiji ............you could really get those harmonics to really ........ skrjúbííííííískabbadúddíllllííííí ......really stand.... brabommmmskabbadjííííí .....really get those...

Rú á stúi

Beta fékk gífurlega skemmtilega hugmynd í dag. Það stoppar hana ekkert þegar hún fer á skrið. Allavega...við enduðum daginn á að snúa öllu við á heimilinu, kaupa hilluskáp, bora, mæla, taka sirka 330 bækur niður úr hillu og dusta rykið af þeim og raða...

XLVI

SIR horfir á Super Bowl SIR heldur með NY Giants GO GIANTS!!!!

O to the M to the G

omg það er verið að auglýsa Gretsch White Falcon á hljóðfærasíðunni á FB! Einn af kannski 3-4 langtímamarkmiðsgíturum sem ég mun einhvern tíman eignast á ævinni Þessi fer á 300þ kostar rúmlega 3000 bökks á amazon Mun eignast þennan, Gibson Les Paul Std...

dagar

Sunnudagur......hvað á maður að gera á sunnudegi hmmmmmm Ég væri til í að eiga svona dag eins og Sunna...........Siggadagur Djöfull myndi maður alltaf gera eitthvað óborganlegt á þeim degi í viku hverri Sunna á sunnudaga Máni á mánudaga og svo ekki...

alltaf gott

(Margmiðlunarefni)

Sigur....vegari

LET IT RAIN!!!!!!!!!!!!!! Við erum að tala um 3 rétta í lottó!!!!!!! PLÚS 2 rétta og bónustala LET IT RAIN!!!!!!!!!! DRINKS ARE ON ME!!!!!!!!!!!!!!!! Beta fékk líka 3 rétta.....ásamt tæplega 3000 manns í viðbót FOKK En hey, ÉG...

Cloud Cult - 2x2x2

aaaa jiiiiaaaa....jafnast ekkert á við að enduruppgötva brilliant lög. Þetta hef ég rípítað sirka 4 milljón sinnum í gegnum tíðina. Elska þennan skerandi gítar. Mæli með Cloud Cult.

Nýr gítar?

Keypti gítar fyrir fáeinum dögum. Fallegasti gítar sem ég hef spilað á. Epiphone Les Paul Standard Tobacco Sunburst. Árgerð 2006, gerður í QingDao verksmiðjunni í Kína. Náði ekki að selja minn í tæka tíð og verandi með báða gítarana þá nýtti ég tækifærið...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband