Leita í fréttum mbl.is

What's up with Gene?

Þessi sena er á topp 5 hjá mér í Friends. Hún byrjar 2:00 og endar 2:55. 

 

It's Clint, Clint! 


Back to da roots

Wilsons pitsur eru ekki alveg jafn góðar og þær sem gerðar eru á Greifanum. Samt nokkuð frambærilegar.

En ég ætla að kötta á pitsur og brauð hér eftir. Að ráðleggingu Ace er það víst málið. Hvað ætti að koma í staðin? súkkulaði?

Ég fór í fellahverfið að ná í pitsuna. Þeir eru ekkert að grínast með þetta hverfi. Maður segir að þetta sé da hood svona í gríni. En omg það er svo satt. Fyrsti aðilinn sem ég sá þegar ég parkeraði bílnum fyrir framan Wilsons var gæji með skærblátt hár og lokka í andlitinu. Svo fór ég inn og komst að því að gæjinn sem gerði pitsuna mína var tattúveraður frá hálsi og eitthvað niður eftir líkama.

Ég var pínu hræddur in da hood. En mér fannst ég lifandi að vera svona meðal almúgans. Maður verður að gefa aðeins af sér annað slagið.


Joke of the day

Einhver lét það út úr sér að ég væri með mjög barnalegt tippi á dögunum. ,,Það er laukrétt hjá þér" svaraði ég samstundis, ,,hann er 52cm og 16 merkur".

Bada bing


Pamela

Ég prufukeyrði Pamelu, eins og ég kalla Titleist kylfurnar mínar. Tit....leist.

Þetta svínvirkar og ég er orðinn ástfanginn. Þessar kylfur virka ekki bara vel heldur eru þær svo fallegar að ég ætla að sofa hjá þeim í kvöld.

Ef ég héti Tommy Lee væri ég löngu búinn að leka út svæsnu vídeói af mér og kylfunum í sexí stellingum.

Ég fór fyrst í hraunkot og sló 70 kúlum útí snjóinn. Það var mikill draw vindur en höggin voru mjög flott og ég er mjög spenntur fyrir Pamelu. Get ekki beðið að komast útá völl.

Fór svo beint á æfingu og vippaði undir vökulu auga Simma sérfræðings. Hann er mjög detail orienteraður og tæknilega sinnaður. Frábært að fá tilsögn frá honum.

Svo kíkti Derrick á sveifluna með nýju kylfunum og allt virkar fínt. Pínu laid off í topp stöðu í aftursveiflu og of mikill hasar í fótum í niðursveiflu en lookin pretty good.


Vajazzle

Nýjasta æðið í hinum vestræna heimi er eitthvað sem heitir Vajazzle. Það er verið að prómótera þetta til helvítis núna. Þetta er uþb það mest useless heimskulegasta thing sem ég hef heyrt um í langan tíma.

Ég get allavega sagt ykkur að ég mun ekki fara á stúfana og vajazzla mig neitt í bráð. Enda er þetta aðallega hugsað fyrir stelpur.

Gúgglið þetta bara. Nenni ekki að útskýra hvað þetta er.

ps hvað ætli þetta heiti ef þetta er gert við strák....pungjazzle? sennilega bara Dijazzle (dick+bejazzle).


Besta lag í heimi?

http://www.youtube.com/watch?v=I2sBFJA9st0

Þetta lag var valið besta lagið í heiminum í dag. Það er með hljómsveitinni The Big Pink og heitir Dominos.

Það er ekkert að gerast í þessu lagi fyrir utan kórusinn. Hann er töff en versin sjúga feitan gölt. Mér er þetta óskiljanlegt.

Í fyrsta lagi er ekki hægt að velja besta lag í heimi því það meikar ekki sens. Í öðru lagi, ef þú ætlar að gera það, veldu þá eitthvað remotely flott lag....Idiots.


Useless knowledge of the day

In ancient Greece, prostitutes wore sandals with nails studded into the soles so that their footprints would leave the message "Follow me."

The Fantastic Mr Fox

Sá Fantastic Mr Fox í gær. Þetta er teiknimynd um refi þar sem Clooney, Meril Streep, Jason Schwartzman (gæjinn úr rushmore), Willem Dafoe, Owen Wilson, Bill Murray og fleiri tala. Gerð af Wes Anderson sem gerði Rushmore, Tennenbaums og Life Aquatic...

Myndin er í hans stíl og fín fyrir vikið. Fáránlega vel gerð og allt það. Sæmileg skemmtun og ég horfði á hana alla.

Samt ekkert meistarastykki.

Hún fær 3 af 5.


Ný könnun

Það var nokkuð dreyfð skoðun á því hvaða kylfur ég ætti að fá mér. Ping S57 fékk 3 atkvæði ásamt Adams Pro Black og Mizuno MP68. Svo fóru fjögur atkvæði í súginn með valmöguleikanum ,,annað".

Þá er það bara spurningin.....var þetta rétt ákvörðun hjá mér?

Titleist 695 MB Blaðkylfur

Pros
- Fallegustu járn sem smíðuð hafa verið frá byrjun golf íþróttarinnar (ég hvet alla til að færa sönnur á hið gagnstæða)

- Þyngri, sem gefa betri rythma í sveiflu. Minnkar þ.a.l. kvikar handahreyfingar og gerir sveifluna pendúl prone.

- Blaðkylfur gera að verkum að auðveldara er að vinna boltann í fade/draw/slice/hook/hærra flug/lægra flug og slíkt.

- Betra feedback. Maður finnur betur fyrir hvað gerist við kontakt.

Cons
- Minni fyrirgefning. Ef maður slær ekki gott högg með blaðkylfu, borgar maður fyrir það.

- Aðrir öfunda mann og vilja jafnvel meiða eða myrða eiganda 695 til að komast yfir þær.

- Duga skemur skylst mér. Þarf að láta tékka þær einu sinni á ári því fláinn breytist við notkun.

Kjósið!


Ferðin á heimsenda

Yarisinn dansaði hægri og vinstri þar sem ég ók honum yfir háheiðina á föstudaginn. Hann driftaði tvist og bast. Slökkt var á allri tónlist og hin hendin tekin af ipoddnum og skellt á stýrið just in case. Korter í þrjú staðan.

Einbeiting.

Það vill til að þetta er stutt vegalengd. Þannig að allir komust heilir á Hótel Örk.

Á leiðinni heim í dag var ekkert mál að fara yfir heiðina. Það var bara ekkert farið mikið yfir 90km hraða.

Las svo keitharann og strímaði LP og sá þá merja KKK klúbbinn.

Helgin búin.

....or is it


Titleist 695 MB

Ég keypti Titleist 695 MB járnin. 4-pw. Ég er fáránlega sáttur með þau. Nú er bara að hóna þau. ------------------- Taylor Made R9 9.5° Ping G5 3 tré 15° Ping G5 blendingur 19° ------------------- Titleist 695 MB járn 4 Járn 25° til PW sem er 48°...

Cabin Fever

Hveragerði-Hótel Örk-Blindbylur-Fennt inni-Sendið Hjálp!

Bílferðin á heimsenda

Fer út úr bænum um helgina. Spurning hvort maður komist nokkuð langt! Ég ætla allavega að taka með mér húfu, vettlinga, trefil, gemsa, góða bók og hlýja yfirhöfn. Just in case ef ég festist í einhverjum skafli. Og Ipod. Maður ætti kannski að taka með sér...

Operation go á 695 MB

Fór í hraunkot í gær og prufukeyrði loks alvöru 695mb járnum. Var búinn að prófa 690 sem að sjálfsögðu er svipað dæmi en 5 árum eldra og notaðar. Og ekki jafn fallegar. Kylfan virkaði sem svín. Mun þyngri og nánast sá um alla vinnuna. Tók nokkrar kúlur...

Kannast við þessa tilfinningu

see more Lolcats and funny pictures

Taka tvö

Fékk lánað sexu járn til að gefa Titleist annan séns. Núna er ég með 695 mb í höndunum og guð minn almáttugur hve þetta er fallegt stykki. Eins og ég hef marg oft sagt en sjaldan meint eins mikið og nú......þetta er fallegasti manngerði hlutur sem ég hef...

BóVÍ ferðin á heimsenda

Nú er það svart, allt orðið hvítt. Eins og skáldið sagði. En að öllu gamni slepptu þá er þetta áfall fyrir mig þar sem ég ætlaði hugsanlega að fara í golf um helgina á Hellu. Það verður eitthvað minna um það sýnist mér. Það tók mig 70 mín að keyra frá...

Darth Vader ruins christmas

In a galaxy far, far away, Luke Skywalker and Darth Vader were gathered around the christmas tree. There first christmas together after Darth broke the news about him being his father. Darth: "Luke! I know what you are getting me for christmas." (sagt...

LoLdogs

ég átti þetta inni. Vonandi verður mér fyrirgefið. Að spamma LoLdogs er eitthvað sem ég reyni að gera lítð af sökum kvartana.

sár

see more dog and puppy pictures

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband