Bloggfærslur mánaðarins, mars 2012
24.3.2012 | 19:33
Í þeim sjöunda
var að fullkomna gítar riggið mitt. Mun ekki þurfa stakan hlut í viðbót. Lofa.
Er kominn með stöff af dýrari gerðinni.
Mesa/Boogie Mark III magnara ofan á Marshall 4x12 1960 lead boxi
Það, saman með besta Epiphone Les Paul std sunnan alpafjalla og leyni uppsetningu á gítarfetlum og ég er hálfnaður með heimsyfirráð!
Fullorðins

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2012 | 23:54
Feðgar
Feðgarnir horfðu á Jón Pál myndina í kvöld og sofnuðu báðir rétt áður en hann dó. Beta náði að snappa einni mynd af okkur og ég þakka henni pent fyrir að hafa fattað að hylja pakkann með náttbuxum.
Ég er soldið að hæpa Jón Pál upp fyrir honum. Hann er sterkasti maður í heimi. Allra tíma.
Hann var heilbrigður, sterkur og kurteis. Fín fyrirmynd.
ÞETTA ER EKKERT MÁL......FYRIR JÓN PÁL
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2012 | 07:13
Casio Fatso
Djöfull er ég ánægður með gengi Casio Fatso
Tókum 5 tíma æfingu í gær. Er búinn á því í öxlum. En hey, ekki er ég að kvarta
Erum byrjaðir að snerta á 6 lögum. Þrjú þeirra þekkjum við núna vel.
I bleed
it's mesaured in tears
We should float....
Mustang
Heartbeat(delay the reverb)
Sullivan boys
Þetta síðastnefnda er bitchin rokkari í ætt við Smashing Pumpkins/silversun Picköps. Loksins tókst mér að semja eitt sem er pínu í áttina að því sem ég fíla
Erum með diktafón tengdan í mixer og ég næ að ýtá play þegar chaplin tekur ræðuna í ,,it's measured.." og þegar Rocky tekur sína ræðu í ,,mustang".
Það er svakalega dramatískt og góð tilfinning þegar maður nær að kikka því á réttri tímasetningu inn.
Næst á dagskrá.....bassaprufur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2012 | 11:30
He's BAAaaack
Muniði eftir þessum.......
He's bAAaaaaack
Reyndar frá 2010 en það er eitthvað við þessa rödd sem ég fíla. Hann sjálfur er náttúrulega gríðarlega dramatískur og ýktur.En maður fyrirgefur honum það.
Þetta er bara létt powerballaða, en annað stöff frá honum er líka fínt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2012 | 08:34
Kúkur og önnur hámenning
Ég var staddur í Staðarskála og þurfti að taka tvist
Er ég sat þarna og hugsaði um vandamál heimsins þá voru sirka 3 fullorðnir karlmenn við hliðina á mér að gera slíkt hið sama.
Þetta var sunnudagur og allir á leiðinni heim eftir nammiát og helgarfjör
Mjög busy dagur
Það leið ekki á löngu þar til skothríðin hófst. Menn eru ekkert feimnir við að láta í sér heyra. Sem mér finnst ekkert mál. Og í raun bara fyndið þar sem ég er enn soldið óþroskaður og finnst prump fyndið.
Þarna inni var dauðaþögn fyrir utan þessa þriðju heimsstyrjöld sem geisaði.
Ég fór þá að hugsa.......væri ekki sniðugt að hafa dúndrandi tónlist þarna inni?
Því ég þykist vita að það séu ekki allir jafn óhræddir við að láta í sér heyra og að heyra í öðrum.
Þetta er jú mjög náttúrulega athöfn og allir gera þetta. Á mis hljóðbæran máta.
Hvernig væri að hafa bara rammstein í botni eða eitthvað nógu filthy svo það drekki öll önnur hljóð út og myndi ákveðna einangrun fyrir mann. Á þessum annars fráhrindandi stað sem almenningssalerni er.
Betra en steríl þögn lituð af kúkahljóðum allavega
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2012 | 20:38
Gallup kannanir
Beta vinnur í Capacent við að rigga upp könnunum. Hún er braniacinn á bakvið að þetta allt virki sem skildi. Hún er ekki að bögga neinn, hún er bara í hönnun og eitthvað.
Í rauninni veit ég eiginlega ekkert hvað hún er að gera þarna....þetta er soldið svona eins og vinnan hans Chandlers í friends. Man aldrei hvað hún segir þegar hún er að útskýra þetta fyrir mér.
Allavega
Hún er oft hérna heima að strúktura kannanir og láta þær ganga upp. Tæknilega.
Rosalegur höfuðverkur stundum.
Sem ég bara SKIL EKKI!
Ég skil ekki af hverju þetta er svona flókið.
Við erum að tala um að þetta séu bara spurningar.......og fólk svarar!
Svo er annað.............af hverju er þetta hausverkur ennþá?
Það er ekki eins og hún hafi ekki unnið þarna í rúman áratug og ég hefði haldið að hún ásamt fleirum væru búin að koma sér upp ágætum gagnagrunni af allskonar könnunum!
Varla getur mikið breyst frá könnun til könnun.
Nota bara eitthvað gamalt dæmi sem template og málið dautt
Þetta er alltaf vinsælt umræðuefni hérna á heimilinu á kvöldin ;Þ
p.s. fyrir þá sem ekki vita að þá er capacent samsett úr orðunum capability og center. Ekki 50 cent.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.3.2012 | 19:19
Bravo
Það byrja allir góðir dagar á því að einhver segir ,,bravo" við þig
Fátt sem gefur meiri vellíðan en það
Fór sem sagt að skutla Sebas á leikskólann og þar vinnur ítali
Ég sagði Sebas að segja bara bongiorno við hann með mínum gríðarlega sjarmerandi ítalska hreim
Paolo sagði ,,bravo" við því
Sem mér fannst ómetanlegt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2012 | 11:17
nörda update
Þar sem ekki margir sem lesa þetta blogg eru gítarnördar þá hef ég haldið mér saman um þá dásamlegu hluti sem eru að gerast varðandi magnaramálin hjá mér
En til að henda því út í umheiminn að þá áskotnaðist mér Fender Bassman 1959 reissue gaur um daginn. Kostar nýr 265þ en ég fékk hann á 110þ
Þessi gaur er svona legendary magnari og einn af tveimur sem eru mínir drauma gaurar. Svona dæmi þar sem ég verð að eignast allavega áður en ég dey.
Jæja, been there og done that
Hann sándar ógéðslega næs en ekki samt alveg að henta því sem ég vil koma til skila. Hann er með of mikinn karakter en ég þarf bara clean stöff til að lita svo með effektum og látum.
Þannig að ég keypti hann til að leika mér og þegar það var búið að þá seldi ég hann aftur.
Eða öllu heldur skipti á honum og Mesa/Boogie Mark III
Sá magnari var keyptur árið 1989 af Gunna í Skímó og notaður alveg til ársins 2011 af honum.
Þetta kvikindi er monster. Svo er ég að fá mér Marshall 1960 4x12 box á móti því og þá er ég þokkalega græjaður. Fyrir lífstíð.
Nema þá að hinn drauma magnarinn poppi upp. JCM 800 týpan.
Til að gera langa sögu stutta að þá er ég núna að spila í gegnum Skítamórals magnarann með volume pedal frá Greifunum. Er þetta uppskrift af heimsyfirráðum eða dauða!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2012 | 21:49
Kæruleysi
Skil ekki af hverju það eru ekki bara sett ákveðin viðmið varðandi færð.
Eins og í gær með þessar vindhviður.
Mér finnst að það ætti að vera vinnuregla að þegar vindhviður mælast t.d. 40 eða whatever að þá ætti bara að loka þeim köflum. Eins og undir Hafnarfjalli.
Ég tala nú ekki um ef það skefur yfir veginn og vitað mál að þá myndast hálka þegar hitastigið er 0 eða minna. Eins og í gær.
Fólk með minni vitneskju á færðinni þarna veit ekkert hvernig ástandið er þegar það sér einhverjar tölur á síðum vegagerðarinnar. Þannig að það fer sér að voða og kostar peninga ef það þarf að ræsa út hjálparsveit og slíkt.
Vinnureglur
Ekki bara sama gamla ,,þetta reddast" viðhorfið eins og við Íslendingar erum orðnir frægir fyrir.
Kæruleysi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar