Leita í fréttum mbl.is

Gallup kannanir

Beta vinnur í Capacent við að rigga upp könnunum. Hún er braniacinn á bakvið að þetta allt virki sem skildi. Hún er ekki að bögga neinn, hún er bara í hönnun og eitthvað.

Í rauninni veit ég eiginlega ekkert hvað hún er að gera þarna....þetta er soldið svona eins og vinnan hans Chandlers í friends. Man aldrei hvað hún segir þegar hún er að útskýra þetta fyrir mér.

Allavega

Hún er oft hérna heima að strúktura kannanir og láta þær ganga upp. Tæknilega.

Rosalegur höfuðverkur stundum.

Sem ég bara SKIL EKKI!

Ég skil ekki af hverju þetta er svona flókið.

Við erum að tala um að þetta séu bara spurningar.......og fólk svarar!

Svo er annað.............af hverju er þetta hausverkur ennþá?

Það er ekki eins og hún hafi ekki unnið þarna í rúman áratug og ég hefði haldið að hún ásamt fleirum væru búin að koma sér upp ágætum gagnagrunni af allskonar könnunum!

Varla getur mikið breyst frá könnun til könnun.

Nota bara eitthvað gamalt dæmi sem template og málið dautt

Þetta er alltaf vinsælt umræðuefni hérna á heimilinu á kvöldin ;Þ

p.s. fyrir þá sem ekki vita að þá er capacent samsett úr orðunum capability og center. Ekki 50 cent.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sigursteinn, stundum er bara betra að segja ekkert frekar en að segja eitthvað...

...og af hverju eru svona margir framleiðendur að golfkylfum, gengur þetta ekki bara út á að slá kúlu ofaní holu? Varla breytist þetta svona mikið á milli golfvalla?

betz (IP-tala skráð) 21.3.2012 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 153214

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband