Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012

Soundtrack of my life

http://sadtrombone.com/

Old skúl matar preff from Sebs

Ég og Sebas vorum sendir til að kaupa í matinn í gærkvöld. Við fórum í Bónus og týndum í körfuna einhvern samtýning héðan og þaðan.

Svo fórum við inn í kæliskápinn þar sem kjötið er.

,,kaupum bjúgu!" segir Sebas í upphrópunarstíl

Eins og hugmyndinni hafði lostið skyndilega niður í kollinn hans

Þetta var svo dramatískt að ég samþykkti það, þó mér þyki bjúgu nú ekkert góð

,,farðu og náðu í bjúgu drengur!"

Hann kom tilbaka með danska lifrakæfu

Ég fór þá með honum að bjúgunum og hann valdi flottasta pakkann

Hrossabjúgu!

Ok, ég veit ekkert um bjúgu en þetta hljómaði revolting

Fokk it

Beta getur pottþétt gert eitthvað sæmilegt úr þessu

Keyptum ekki einu sinni meðlæti eða neitt

Beta var bara

DAFUQ!!!

HROSSABJÚGU!!!!

Þetta endaði á því að Sebas borðaði mest af öllum og við pikkuðum í þetta. Ég faldi góðan hluta af þessum viðbjóði undir kartöflumúsinni svo Sebas héldi að ég hefði borðað þetta.

Hann bara sáttur og stútaði þessu á nó tæm!

Þetta var ekki gott, vægast sagt.

En Sebas svalur á því


Uppreisn heimilistækjana

Jæja......er loksins orðinn einn á heimilinu með DK

Fyrsti dagurinn okkar saman

Allt hefur gengið að óskum enn sem komið er. Drengurinn kátur, étur vel og sefur

Það er bara eitt atriði

Heimilistækin hafa gert uppreisn gegn mér!

Fyrst setti ég í þvottavél, ekkert mál (enda áður gert).....nei,nei,allt á floti eftir klst!

Eitthvað að henni skyndilega og viðgerðarmaður pantaður og kemur á mánudaginn

8 ára vél í umsjón Betu.....aldrei neitt vesen.
1 dagur í umsjón SIR........Biluð!

Þetta kom mér ekkert á óvart

En það sem kom mér hins vegar verulega á óvart og særði mig pínu var uppreisn af hálfu örbylgjuofnsins

Sko, hingað til hefur hann verið minn helsti bandamaður. Ég skaffa honum vel að vinnu og við höfum gagnkvæma virðingu fyrir hvor öðrum. Við leikum okkur þannig að ég þarf að ná að slökkva á honum 1 sek fyrir niðurtalninguna eins og sprengjusérfræðingur. Ef það tekst ekki þá pípir hann á mig. Good times.

Nei,nei.....hann bara slökkti á sér helvítið

Steindauður

Samt ekki alvarlegra en svo að honum sló út......en SAMT!

Þetta er klárlega stuðningsyfirlýsing við þvottavélina!

Ég tek þessu allavega þannig

Ég sem hélt að ég og Örri værum vinir.

Ekki lengur


mmhmm


Samnýting

Við erum að ganga inn í svokallaða ,,cloud" menningu í heiminum á næstu árum.

Það er svo mikið til af fólki, drasli og allskonar dóti í heiminum og pláss er af skornum skammti.

Þess vegna er þessi tilhneyging núna að samnýta hluti.

Þetta byrjaði í tölvum þar sem manni býðst að geyma hluti á internetinu eins og á dropbox.com

Þægilegt, aðgengilegt og gríðarlega sniðugt. Þá geta aðrir notað hlutinn líka. Samnýting.

Svo eru síður að poppa upp þar sem fólk getur skráð hlutina sína, eins og verkfæri og slíkt, og leigt út þegar maður er ekki að nota þá.

Því hlutir eins og borvél og slíkt eru bara í notkun kannski í mesta lagi 3-5% líftímans. Ef maður gæti bara farið á síðu og séð borvél til leigu í næstu götu þá þyrfti maður ekkert að kaupa alla hluti. Samnýting.

Svo er jafnvel farið að tala um samnýtingu bíla. Bíllinn þinn stendur ónotaður 90% tímans og er ekki bara málið að leigja hann út á meðan? Þannig vegur þú upp á móti bensínkostnaði og léttir öðrum lífið í leiðinni.

Það er verið að þróa bíla sem eru í raun bara tölvur með hjólum. Þannig að þegar þú leigir bíl þá bara færðu kóða eða eitthvað slíkt og getur opnað hann og ræst með honum. Þarft aldrei að tala við eigandann.

Sniðugt

Líst vel á þessa þróun

Þetta eru bara dauðir hlutir. Af hverju þykir fólki svona vænt um hlutina sína?

SAMNÝTA ÞÁ PÍPÓL!


Frey

Kominn í barneignarfrí

í friggin tvo mánuði

shiiii............ég og DK [dí key] erum svooooo að fara hitt-a öll kaffihús miðbæjarins og þræða bókabúðir....uns við föllum niður af þreytu.

Fyrsti dagur: Takmark: Fá hann til að segja ,,Pabba"
Annar dagur: Takmark: Fá okkur tattú saman

......eða eitthvað álíka gaman

við sjáum hvernig þetta fer

UPDATE
ég skrifaði textan fyrir ofan í gærkvöldi. Núna hefur ýmislegt breyst. DK er það dramatískur að hann ákvað að verða veikur svo mamma sín myndi nú ekki fara frá honum alveg strax. Við vorum vakandi í alla nótt með hann grenjandi meira og minna stanslaust. Tók þó pínu tíma aflögu til að segja ,,pabba". Ég náði því á diktafóninn til sönnunar. Þannig má segja að ég sé pínu á undan áætlun varðandi planið hér að ofan.

En honum tókst að halda mömmu sinni pínu lengur hjá sér þar sem við ætlum með hann til læknis í dag. Örþreytt eftir nóttina.

Needless to say þá fór ég ekki út að hlaupa kl 7 eins og plön gerðu ráð fyrir.

Bless


« Fyrri síða

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband