Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012

XLVI

SIR horfir á Super Bowl

SIR heldur með NY Giants

GO GIANTS!!!!


O to the M to the G

omg það er verið að auglýsa Gretsch White Falcon á hljóðfærasíðunni á FB!

Einn af kannski 3-4 langtímamarkmiðsgíturum sem ég mun einhvern tíman eignast á ævinni

Þessi fer á 300þ

kostar rúmlega 3000 bökks á amazon

Mun eignast þennan, Gibson Les Paul Std Tobacco Sunburst, einn klassískan alhvítan eða alsvartan Stratocaster og svo kannski einn Fender Jaguar

That´s all

Case closed


dagar

Sunnudagur......hvað á maður að gera á sunnudegi hmmmmmm

Ég væri til í að eiga svona dag eins og Sunna...........Siggadagur

Djöfull myndi maður alltaf gera eitthvað óborganlegt á þeim degi í viku hverri

Sunna á sunnudaga
Máni á mánudaga

og svo ekki söguna meir.

Þurfum að breyta þessu


Sigur....vegari

LET IT RAIN!!!!!!!!!!!!!!

Við erum að tala um 3 rétta í lottó!!!!!!!

PLÚS

2 rétta og bónustala

LET IT RAIN!!!!!!!!!!

DRINKS ARE ON ME!!!!!!!!!!!!!!!!

Beta fékk líka 3 rétta.....ásamt tæplega 3000 manns í viðbót

FOKK

En hey, ÉG VANN!!!!!!!


Cloud Cult - 2x2x2

aaaa jiiiiaaaa....jafnast ekkert á við að enduruppgötva brilliant lög. Þetta hef ég rípítað sirka 4 milljón sinnum í gegnum tíðina. Elska þennan skerandi gítar. Mæli með Cloud Cult. 

 


Nýr gítar?

Keypti gítar fyrir fáeinum dögum. Fallegasti gítar sem ég hef spilað á.

Epiphone Les Paul Standard Tobacco Sunburst. Árgerð 2006, gerður í QingDao verksmiðjunni í Kína.

Epiphone Les Paul Custom Plus Sunburst

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Náði ekki að selja minn í tæka tíð og verandi með báða gítarana þá nýtti ég tækifærið og gerði svona A/B prófanir. Þeir eru nákvæmlega eins nema minn er Cherry rauður, með betri stilliskrúfur, er frá 1998 og framleiddur í Saein í Kóreu.

Sömu strengir, báðir fullkomlega innstilltir og sama action og pikköpp staða.

Kemur á daginn að minn gamli er miklu betri. Spilast mun betur. Þykkur og fallegur hljómur, gott sustain og svínheldur tóni. Miðað við þennan nýja gítar.

Þannig að ég ákvað að halda bara mínum og ætla selja þennan aftur

Epiphone byrjaði að láta gera þessa gítara í Japan upp úr 1970 færðu sig svo til Kóreu árið 1983. Voru í Kóreu til ársins 2002. Þá vildu þeir aðeins hagræða og spara og fóru til Kína. Gítarar eftir þann tíma eiga því að vera aðeins síðri og meira svona happa glappa.

Komst ég að eftir á :) 

Svo til að toppa þetta þá fékk þessi verksmiðja sem gerði gítarinn minn verðlaun fyrir góða smíði akkurat þetta ár 1998.

Þó þessi nýji sé ógéðslega fallegur gítar að þá verð ég að halda mínum. Spurning um að mála hann bara!


allt sem ég snerti bilar!

það var og.......

Engin heimilistæki voru sköðuð í dag

EN

Ég eyðilagði pínu á gítarnum mínum, farinn í viðgerð

Lykillinn að bílnum virkar skyndilega ekki! Blikkar bara ljósið og opnar og lokar bílnum handahófskennt að vild!

Hvað er að gerast!

Er einhver með eitthvað voodoo í gangi?


Dagur í lífi föður stubbs

Sofa ílla alla nóttina því það er mikið rumsk
Ræstur út kl 8
græja graut
klæða sig
baða stubb
klæða stubb
Leika pínu við hann
Svæfa stubb kl 9
Hvíld------Sweet nectar of all that is sacred
Taka nethring
skrifa færslu
spila inn bassa við eitt lag
bæta pínu trommum við annað
Kl 11...stubbur vaknar
Gefa graut
leika við stubb
Halda mini tónleika fyrir stubb með magnarann í feðraorlofsbotni
Stubbur headbangar með
Kl 13 svæfa Stubb
Tékká netheimi
taka til í eldhúsi
ganga frá þvotti
baka kökur (eina hjartalaga fyrir Betu)
.
.
.
.
.
.
.
Engin heimilistæki voru skemmd þennan dag. Enn sem komið er.

Dagur í lífi stubbs

Eftir að hafa vaknað 1-2 yfir nóttina þá er ræs kl 8
morgunmatur
bað og slíkt
Sofna kl 9
Vakna kl 11
Brunch
Leika
Horfa á pabba
Sofna kl 13
Vakna kl 15
matarhressing
Leika
Horfa á pabba
Powernap 17:30
Vakna 18:30
Matur með hinu fólkinu
Leika
Horfa á alla
Um kl 21 byrja ég að þykjast vilja að fara sofa
362.835 tilraunum seinna.....
....sofna loksins á bilinu kl 23-24

Repeat


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband