Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012

Fundið

Skýring fundin á því af hverju allt virðist líða hraðar eftir því sem maður eldist.

http://jdueck.net/article/160/this-is-your-life

Þetta var þá ekkert samsæri eins og ég hef lengi vel haldið(og bloggað um).

Hélt að það væru einhverjir sem rændu alltaf pínu af tímanum í lok hvers árs.

Tímaræningjar

Og þannig stytt daginn pínu ár hvert

En nei, svo er ekki

Tékkið þessa slóð að ofan


SIR Bítur

Er ég einn um að beatboxa þegar ég sit fyrir framan barnið mitt og gef því að borða?

Ég stend sjálfan mig að því að purra,hissa og basically beatboxa fyrir framan DK til að hann snúi að mér og veiti mér athygli og opni munninn.

Am I going MAD!!!!!


OLD

ACHTUNG!

Það eru bara 37 manneskjur á lífi sem fæddust átjánhundruðogeitthvað

ACHTUNG!

Tölfræði bendir sterklega til þess að fyrsta manneskjan til að ná 150 ára aldri sé núþegar fædd. Það gætir verið ÞÚ!!!!!!!!!!!!!!

En þeir segja reyndar að líklegast sé það einhver fæddur á síðasta ári.
DK!!!!!!!!!!!!!!


Þetta er áhugavert

http://en.wikipedia.org/wiki/Pando_%28tree%29

Þessi lifandi hlutur er 80.000 ára gamall og vegur 6 milljón tonn!


Fortíðardraugar

Vissir þú að við lifum öll í fortíðinni?

Það tekur 80 millisekúndur fyrir taugaboð að ferðast upp í heilan og skila af sér upplýsingum um hluti. Þess vegna er augnablikið akkurat ,,NÚNA" orðið 80 ms gamalt þegar þú færð vitneskju um það.

Og þetta er bara meðalhraði. Ef þú ert hávaxinn þá tekur þetta lengri tíma og maður lifir enn lengra í fortíðinni.

Þarna er komin skýringin á því af hverju Beta er svona klár og snögg að hugsa og finna lausnir.

http://www.youtube.com/watch?v=BTOODPf-iuc&feature=g-u-u&context=G275f2cfFUAAAAAAABAA

Vsauce......flottir


áhugavert

Í gamla daga þá voru kvikmyndir bara sýndar með 16 ramma hraða og maður sá auðveldlega þegar myndin blikkaði, eða flikkaði eins og kaninn segir.

Þess vegna voru myndir oft kallaðar ,,flicks"

Og eru enn, eins og t.d. ,,chick flick" og ,,dick flick"

Fyrir þá sem ekki vita hvað það er:

Chick Flick
a slang term for a film mainly dealing with love and romance designed to appeal to a female target audience.

Dick Flick
The testosterone-driven opposite of a "chick flick". Generally contains lots of car chases, explosions, and boobs.


G.Sig

Ánægður með Gylfa Sig í ensku. Þessi gaur á eftir að slá í gegn. Kalt mat. Þið lásuð það fyrst hér. (lásuð!!!!! hverskonar fokked up orð er það!)

Keypti hann og Sinclair og Graham frá Swansea. Fékk samtals 22 stig bara fyrir þá.

Svo var Persei fyrirliði hjá mér og fékk 46 stig. Sem er meira en ég hef verið að fá að meðaltali fyrir alla mína leikmenn í umferð hverri hingað til.

Kominn í 86 stig og á enn tvo Tott menn eftir. Þeir spila við LP á eftir.

Assou með 3 assist, Bale þrennu en Suarez fernu. Kalt mat. Þið lásuð það fyrst hér.


Louder than words

,,....it has really good harmonics response, you know...,..djúúííííííjijiji............you could really get those harmonics to really ........skrjúbííííííískabbadúddíllllííííí......really stand....brabommmmskabbadjííííí.....really get those harmonics to.......fobbjííííískabúdílífoddillíííjííííi..................and am, I´m playing out again of the back.......fiddillífiddillídjííííídaddadjííííííí...."  

Þessi gaur er náttúrulega snillingur. Hann er með catch phrase og notar hann oft í lok myndbanda ,,rock on good people" 

Svo segir hann líka alltaf ,,what´s up good people" í vissri tóntegund

Mjöööög hallærislegur

En

samt hress 

Samt ekkert meira krípí en þegar hann spilar riff og horfir alltaf beint í vélina!

Snillingur 


Rú á stúi

Beta fékk gífurlega skemmtilega hugmynd í dag. Það stoppar hana ekkert þegar hún fer á skrið. Allavega...við enduðum daginn á að snúa öllu við á heimilinu, kaupa hilluskáp, bora, mæla, taka sirka 330 bækur niður úr hillu og dusta rykið af þeim og raða aftur í hillu sem var búið að flytja hinum megin í íbúðina.

Allt þetta........fyrir Sebastian

Núna er Sebmeister kominn með gífurlegt leikhorn. Sér hillur á vegg bara til að stilla bílunum sínum upp (á um 40 bíla og þar af 6 Leiftur McQueen). Flottur fimm hólfa láréttur svartur Ikea hilluskápur til að geyma allt hitt dótið sitt þ.á.m. nýtt lego stöff frá systursyni Betu.

Þetta byrjaði sem sagt með það í huga að Sebas fengi betra pláss

Endaði á því að núna er komið kósí sjónvarpshorn og allir með sitt eigið horn.

Sebas með leikhornið sitt
Beta með prjónahorn
SIR með upptökuhorn þar sem allir gítarar, effektar og stöff er
DK er hvort sem er út um allt þannig að hans horn er öll íbúðin. Þannig rúllar hann bara


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband