Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012

Lausn

Þeir fáu sem ekki náðu þessu hér að neðan að þá er þetta að sjálfsögðu
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Spoiler!

Með betri rólegri lögum frá Billy Corgan

Til gamans má nefna að ,,Djali Zwan" var sem sagt aukaband sem þeir í Zwan duttu stundum í þegar þeir vildu bara gera rólegt stöff.

Þetta kom út með myndinni ,,Spun" 


Þetta er allt að koma

Ég er lúmskt sáttur við að íslendingar séu að þroskast loksins sem mannverur

Núna eru bara sjötíuogeitthvað prósent skráðir í ríkiskirkjuna skv Hagstofu

Hefur dottið úr 90% niður í þetta á nokkrum árum.

Eins hefur fólki utan trúfélaga aukist úr 2,eitthvað upp í 5,eitthvað

Mjög jákvætt

Það eru náttúrulega mun fleiri sem ættu að vera í þeim flokki

Svo margir sem bara trassa að skrá sig úr eða hreinlega nenna því ekki

Gæti trúað því að þessi 5 prósent ættu að vera nær 10%

Lít á þetta sem þróun í rétta átt. Kominn tími á að mannkynið hætti þessari vitleysu og komist upp úr barndómi sínum.

Finnst eins og mannkynið sé sirka 7-9 ára. Það eru einhverjir sem vita að jólasveinninn er ekkert til. Aðrir sem vita en vilja ekki viðurkenna svo þeir fái gjafirnar og rest trúir ennþá á hann.

Jú, það er fallegt að trúa á hann en enn fallegra að vita sannleikan um lífið

Eftir um 50 ár þá ættum við að verða orðin sirka 12 ára


????

camara

Dark period

Ég er á svarta skeiðinu

Geng um í svörtum gallabuxum og svörtum bolum (yfirleitt)

Á 3 eins svartar gallabuxur, 2 eins svarta boli og mun eignast 3 til viðbótar þannig en svo einn appelsínugulan! Aðeins til að brydda þetta upp.

Ef ég væri metallica þá væri ég núna uþb að fara gefa út Svörtu skífuna

Hvað skeið ætli komi næst?

Ég bíð spenntur

Ég þykist samt vita að Beta bíður skelfingu lostin


Upptökuferli

Fyrir þá allra hörðust

Þetta þriggja tíma upptöku session í Coldwater Studio þar sem Smashing Pumpkins eru að taka upp demó af laginu ,,Lonely is the name". Ekkert spennandi lag en gaman að sjá hvernig Billy fer að þessu tækinlega séð. Í raun er þetta nákvæmlega eins og ég tek upp. Nema í staðin fyrir að fara í gegnum magnarann þá fer ég beint í tölvu í gegnum Zoom G3.

Svipuð rútína. Fyrst að taka upp gítar beinagrind, svo trommur, svo bassa, svo gítar pælingar en ég set sönginn síðast en Billy skellti honum þarna strax eftir beinagrindina. 

Finnst þau vera ótrúlega lengi að þessu. Basic gítar, söngur,trommur,bassi,lead gítar....3 tímar. Hefði tekið mig rúmlega klst. Og þar sem þau eru betri en ég á hljóðfærin sín þá ætti þetta að taka enn styttri tíma. 

Gaman að sjá Jeff vinna, hann er reyndar mjög skilvirkur. Notar sitt Line 6 M13 og fer í Fender Bassman magnara. Sem er einmitt sá magnari sem ég nota helst í upptökum. 

Áhugavert að sjá Billy segja við Mike að gera meira transition á milli verse,brú og kórus. Mætti leggja meiri áherslu á það upp á síðkastið. Finnst tónlistin hans undanfarin áratug einmitt einkennast af því hve lítill munur er á versi og kórus. Sem mér finnst slæmt. Þá líður lagið bara í gegn og lítið um ris og lægðir. Ekki það sem ég fíla. 

Ótrúlega flott bassalínan hjá henni í upphafi. Svo koma athugasemdir frá upptökumanni og Billy sem einfalda þær og leiðinleggja. Hefði átt að halda fyrstu pælingunni sinni.

Gaman líka að sjá að það eru fleiri en ég sem lenda í að henda niður laghugmynd og ströggla svo við að muna hvernig ég hafði spilað hana. Í upphafi eru þeir að renna í gegnum upptökuna til að muna gítarinn og texta. 

Þetta lag verður svo ekki á plötunni sem kemur síðar á árinu. Verður sennilega B-hlið. Sem er fínt því það er ekkert spennandi 


svo satt

If money is the root of all evil

Then why do they ask for it in chuch?


ZooSir

Ég á erfitt með að beygja mig niður og súpa vatn HÆGRA megin við kranann eftir að ég tannbursta mig.

Svipað kannski og Zoolander, sem átti erfitt með að beygja til vinstri

Svona er maður vanafastur. Búinn að tannbursta mig, beygi mig niður og skola.....alltaf vinstra megin við kranann.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 153615

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband