Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2012
10.1.2012 | 08:42
Hittari?
Ég á diktafón
Nota hann til að muna lagahugmyndir og slíkt
Það var erfið nótt í nótt með DK. Hann virtist vera reyna að kúka í sirka 5 tíma. Og alltaf kom bara pínu lambaspörð. Greyið kallinn. Var ekki sáttur. Rembast og rembast með viðeigandi hljóðum og gráti.
Og við því vakandi nær alla nóttina
Allavega, á einum tímapunkti yfir blánóttina þá kom til mín svona líka massívt lag
Megahittari. Pottþétt.
Ég rauk í Diktafóninn og söng það inn. Mjög lágt til að trufla ekki. Gat ekki spilað á gítarinn af skiljanlegum ástæðum
Brjáluð stemming, rosa húkkur í kórusnum og allt að gerast
Svo var ég að kíkja á þetta áðan. Spilaði það sem ég hafði tekið upp
Sæll
Ég heyri bara eitthvað da-da-da-da-da. Allt í sömu tóntegund bara mismunandi hratt.
What da frigg!
Þá er málið að þetta er svo rosa mikið show í hausnum á mér en að koma því til skila er bara ekki hægt svona um blánótt í lágum pískrum.
potencially brilljant slagari sem mun sennilega aldrei líta dagsins ljós því allt sem ég á um lagið er mónótónískt pískur frá mér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2012 | 23:25
it´s happening!
Ok, nú veit ég af hverju ég vissi að 2012 yrði svona fantagott ár
Friggin AT THE DRIVE IN eru aftur byrjaðir eftir að hafa hætt 2001!!!
ómen.....þetta verður all svakalegt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.1.2012 | 11:44
Riggað?
Var að skoða gamlar vinningstölur úr lottó
Það er sláandi hve oft tölur hlið við hlið koma upp
Svo er úrdráttur 11.júní 2011 nokkuð vafasamur. 22-23-24-25-32-(40) Kommon! Þetta hlýtur að vera riggað
8 20 22 26 32 (21)
10 21 22 25 38 (14)
16 21 22 37 38 (10)
Þetta eru svo tölur í júlí. Sæll, 22 kom þrisvar í röð og næstum því 21. MINDBLOWING!!!!!!
Sé að í maí hefði ég fengið 3 rétta af einni röðinni minni. Hefði pokketað heilar 930 krónur. Það myndi kannski duga til að kaupa gítarstrengi með afslætti.
Dúbíjus röð í apríl 25 26 29 37 38 (22)
ÉG ER HÆTTUR VIÐ ÞETTA FOKKIN LOTTÓ KJAFTÆÐI!!!
Ég sé að ég hef ekki valið réttu tölurnar. Mínar eru allt of skipulagðar. Það sem ég sé hér er annað hvort allt of random eða augljóslega riggað!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2012 | 11:29
Sigursteinn listalaus? Aldrei
Þar sem ég á von á nokkrum mills er ekki seinna vænna en að hafa á hreinu hvað maður myndi kaupa svona fyrst um sinn.
Betra að vera skipulagður. Þá gengur þetta hraðar fyrir sig.
Ekkert verra en að vera listalaus og bara ráfa um bæinn með nokkrar mills í vasanum. Það gengur ekki
Þetta er sem sagt það sem ég myndi vilja kaupa eftir að hafa reddað öllum öðrum. Bara minn persónal egó listi.
---Kaupa nýtt hús. Basic. Kannski tvö, eitt í Hlíðunum og eitt á Blönduósi, nei eða í LA. Annað hvort
---Kaupa 4 kínverska nuddara sem myndu læðast inn á hverjum morgni og vekja mig með klst nuddi
---Fara í Bónus og kaupa upp lagerinn af líters Kókómjólk
---Kaupa allar þrjár hljóðfærabúðirnar og sameina undir einu þaki í húsnæði Holtagarða. Allt húsið. Efri hæð gítarar og tengt efni, neðri hæð....allt annað
---Kaupa mig inn í embætti Borgarstjóra R.víkur og láta ruslakalla koma á vikufresti, hækka laun hjá leikskólakennurum um 100%, hafa Laugaveg og miðbæ opinn fyrir bílaumferð alltaf og banna alla gamla kalla, reckless táninga og clueless kjéllingar í umferðinni
---Flytja inn og halda brjálaða tónleika með Smashing Pumpkins, The Killers, Silversun Pickups, Everything Everything OG Bítlana sem upphitunaratriði (hey! á þessum tímapunkti er ég ríkur og má/get allt?)
---Kaupa mér Kompressor Bens og klessa hann viljandi
That´s all
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2012 | 11:03
Lottó Siggi
Þar sem 2012 leggst svona hrikalega vel í mig að þá ákvað ég að gerast áskrifandi af lottó OG víkingalottó.
Yrði helst til í að fá báða pottana samtímis. Það yrði soldið kúl.
Annars hef ég allt mitt líf haft núll tiltrú á lottó. Það eru svo stjarnfræðilega litlar líkur á að maður fái eitthvað.
En það er þetta litla sem gefur manni von.
Myndi alveg sætta mig við nokkrum mills, myndi alveg taka því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2012 | 22:06
kósí
Hvað er betra en að liggja upp í sófa með stórt iittala glas fullt af kókómjólk og lesa ævisögu Jakobs Frímans fyrir Betu.
Fátt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2012 | 15:00
meistarinn ég
Ég er svo einföld sál. Ég hlæ ótrúlega mikið af eigin fyndni. Var að pæla í því hvað ég hefði verið að gera fyrir ári síðan. Kíkti á bloggið í þeim tilgangi. Gott stöff.
Mæli með eftirfarandi færslum
http://sir.blog.is/blog/sir/entry/1137149/
http://sir.blog.is/blog/sir/entry/1137265/
http://sir.blog.is/blog/sir/entry/1134607/
http://sir.blog.is/blog/sir/entry/1136499/
http://sir.blog.is/blog/sir/entry/1134596/
http://sir.blog.is/blog/sir/entry/1135405/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2012 | 02:38
Lagið sem breytti lífi mínu
men.....ég yrði svo nákvæmlega eins og þessir lúserar í upphafi myndbandsins ef ég myndi sjá hann taka þetta live.
,,OMG, I LOVE THIS SONG, AAAAAHHHH, HE NEVER PLAYS THIS SHIT, IT´S LIKE MY FAVOURITE SONG"
aaaahhhhh men þetta intro er svo gott
mín 1:02 er mómentið sem ég þóttist finna fyrir lekandi hunangs sándi í fyrsta sinn. Mun áhrifameira á plötunni því þar notar hann Big muffinn. Getur það ekki live því sá fetill er of dominerandi og myndi drepa bassann og flest annað í mixinu. Allt í lagi í stúdíóinu.
Svo feitt sánd (á plötunni)
Ég klökkna alltaf þegar ég sé þetta kikk inn á mín 2:11 (búinn að rípíta það sirka 8 sinnum)
töff móment
Elska þennan oktövu part á mín 2:38
Sólóið á mín 3, kann ég sennilega hvað best af öllu sólóum
3:45.....men...alltaf gott móment þegar lag nær hápunkti og nafnið á laginu kemur fyrir. Þá veit maður að eitthvað stórkostlegt er að gerast.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2012 | 23:11
Pípur
Er ég var ungur héri í tónlistarskólanum þurfti ég ávallt að labba með Baritónið mitt niður í bæ á Blönduósi.
Einn vetrardaginn var mikil hálka, eins og núna, og því bað ég mömmu um að skutla mér.
,,Þú getur bara labbað þetta drengur"
Ok
Skemmst er frá því að segja að ég hrasaði í hálkunni og bar fyrir mig vinstri hendina
Hún mölvaðist
Báðar pípurnar fóru í sundur
Ef Árni vinur minn hefði ekki gefið mér afmælisgjöfina mína fyrirfram þá hefði þetta verið opið beinbrot og mun verri díll
Hann gaf mér nefnilega þrönga og flotta skíðahanska
Þeir héldu skinninu saman og ég rétt náði að klöngrast inn í tónlistarskólann þar sem Skarphéðinn dreif mig upp á spítala
Greyið mamma
Ég nuddaði henni upp úr þessu í mörg mörg ár á eftir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2012 | 20:14
Utsalg
Brjálað að gera á útsölum í Golfskálanum!
Vorum t.d. að selja demó kylfur með 70% afslætti.
Er nánast líkamlega þreyttur eftir daginn. Þó voru þetta bara 5 klst í dag
Eitt sem fer í pirrurnar á mér
Búðir sem auglýsa útsölur á öðrum tungumálum
Af hverju eru skilti út í glugga sem segja ,,Sale", "Rebajas" og ,,Udsalg"?
Hér á landi er bara eitt tungumál skráð, síðast þegar ég tékkaði.
Nei, bara svona smá pæling
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar