Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2012

Fíll

Fíla minute to win it á skjáeinum

Fíla svartar 1mm dunlop neglur

Fíla 1 lítra kókómjólk

Ég vildi að ég væri með 1 lítra kókómjólk núna

FOKK!


fö kvö hö Sör

Sendi konuna í frí til vinkvenna sinna í kvöld. Báðir pungarnir komnir í háttinn. Búinn að ganga frá öllu. Lappir officially komnar upp í loft. Sweet nectarine of all that is sacred.

Gnarrenburg

Myndi kjósa Jón Gnarr aftur ef það verður í boði

Sá hann í viðtali við fokkin Sigmar í Kastljósinu. Hvernig er hægt að vera svona leiðinlegur eins og Sigmar?

Hann bara gat ekki hætt að kenna Jóni um veðurfarið á Íslandi.

Eitthvað að gagnrýna mokstur á götum útaf snjónum.

Halló, það kom einfaldlega rosalega mikið af snjó og svo með brjáluðu veðri í ofanálag og borgin hafði ekki undan. Snjóþyngsti Desember síðan mælingar hófust.

Hvað átti Jón að gera!

Held líka að Gnarrinn hafi verið að hugsa.....,,uuuu ertu ekki að grínast eða" þegar Sigmar tönglaðist á þessu aftur og aftur.

Það virðist vera svo að Sigmar fái bónusgreiðslur ef hann fær viðmælandann til að segjast hafa gert mistök. Allavega virðist það vera honum mjög mikilvægt.

Þó að maður sé ekkert að taka sérstaklega mikið eftir hvort Besti flokkurinn sé að gera gott mót eða ekki þá eru þeir allavega ekki með allt niður um sig.

Á meðan þeir eru ekki að skíta á sig OG tala eðlilega við fólk og fjölmiðla og ekki með svona pólitíkusarsvör við öllu þá fá þau mitt atvkæði.


Tune-farts

Eigum við að ræða eitthvað þetta djók sem Tune-yards er!

Hlustaði hún á diskinn með Everything Everything og ákvað að herma?

Þetta er svo sami fílíngurinn nema EE eru ekki að lúppa sig upp og byggja upp lög í 1 mín með t.d. Boss RC-2 og geta ekkert breytt strúkturnum af laginu útaf þessu lúppu dæmi.

Tune-yards = Léleg útgáfa af Everything Everything + afríkuköll + loop pedall

Er EKKI að fíla Tune-yards


sigursæll

ÓMEN.....lottó tölurnar eru komnar!

Ég var mjög nálægt

So close but yet so far

Var með eina tölu plús bónustölu. Vantaði bara tvær í viðbót og 670kr hefðu verið mínar. Ó sweet nectarine of all that is sacred. Hefði farið beint í nammideildina í Hagkaup og raðað súrum hauskúpum í poka í æðiskasti.

Svo var ég næstum því með 2 síðustu í Jókernum

Bíð núna spenntur eftir laugardeginum

Vinn pottþétt þá

Annað væri ósanngjarnt


Lottó

Eins og frægt er orðið þá gerðist ég áskrifandi af lottó og VíkingaLottó fyrir nokkrum dögum.

Búinn að bíða spenntur í allan dag eftir drættinum í kvöld í víkíngalottó

Var á lotto.is og endalaust að refresha í þeirri von að sjá útdregnar tölur

nei,nei.....í fyrsta sinn í sögunni þá bara er drættinum frestað um ÓÁKVEÐIN TÍMA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

http://www.dv.is/frettir/2012/1/11/draettinum-frestad/

WHAT THE FOOOOOK!!!!

Frétt um það og allt

Kerfið bara ekki höndlað mig sem áskrifanda. Ábyggilega.

Hvernig gat þetta gerst akkurat NÚNA?

FOOOOOOOK


THE SON OF FLAMES

Fór í viðtal til læknis sem heitir

MAN, THE SON OF FLAMES!!!!!!!

eða Karl Logason

Var með miklar væntingar og bjóst við ofurhetju eða allavega gaur sem væri óbilandi sterkur og töff

Þessi læknir var bara venjulegur maður í bleikri skyrtu

Hann var ekki rauðhærður

Svo var símhringingin hans óvenju gay

Oh well


Grifflur

Hver notar grifflur?

Ég er búinn að vera hugsa þetta í dágóðan tíma núna og hef komist að eftirfarandi niðurstöðu:

Lyftingakappar og fólk á áttunda áratuginum

Af hverju fann ég þá grifflur hérna í kommóðunni um daginn?

Jú, Beta segist hafa farið í eitthvert eitís þema partí um árið

Ég hef hana samt sterklega grunaða um að vera að lyfta í laumi


ÞAÐ ER FUNDIÐ!

Ég hef fundið besta íslenska karlmansnafn sem barn hefur verið nefnt til þessa!

Eða öllu heldur, besta combo af nafni og eftirnafni.

Ég var að panta tíma hjá lækni og rakst á þetta framúrskarandi nafn

Karl Logason

MAN FLAMESON!!!!!!

Er hægt að vera karlmanslegri!

Hlakka mikið til að sjá þennan mann

Ef hann verður ekki rauðhærður verð ég sárlega dapur

MAN FLAMESON

eða

MAN....THE SON OF FLAME!

Annað hvort

bæði killer


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband