Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2012

Rokk

Hefur Ísland bara átt 2 alvöru rokk grúppur?

Þá er ég að tala um rokkara sem taka þetta alla leið.

Tónlistin, sukkið og kjéllingarnar

Jet Black Joe

og

Mínus

Erum við að tala saman?

Ég man ekki eftir fleiri hljómsveitum sem tóku þetta alla leið

Ekki séns að t.d. Ensími, Maus, Dikta, SSSól og þannig gaurar eigi séns í statusinn ,,alvöru rokk grúppa"

Er ég að gleyma einhverjum?


Stuðningsyfirlýsing

Ég vil lýsa miklum stuðningi við þennan eina sem kaus ,,fer ekki í sturtu" hér í könnun á hægri hönd

Hann hefur alla mína samúð

Ég reisi yfir hann skjaldborg og gef út viljayfirlýsingu um stuðning


My bad

Sæll, ég henti jólatréinu okkar á brennuna í gær.

Kom heim áðan og það fyrsta sem ég sá var frétt á stöð 2 um að fólk væri að dömpa stöffi á þessa brennu í óþökk brennuhaldara.

Sorrí

Tek þetta á mig


Mission impossible?

Jólin eru búin. Henti tréinu á brennuna sem er að safnast upp á Fram svæðinu í bakgarðinum okkar.

Fór í skjóli nætur með buff fyrir andlitinu.

Brjálaður kuldi.

Snjór upp á hné.

Lifði mig inn í hlutverkið og þóttist vera stormtrooper að arka snjóinn on a mission

Var kominn 90% leiðarinnar, nánast labb-hlaupandi

Þegar......

Ég datt

Fram fyrir mig

Face first í snjóinn

Ég leit aftur fyrir mig er ég lá í valnum og sá Betu,DK og Sebas á svölunum, að fylgjast með mér. Hlægjandi.

Það var niðurlútur Stormtrooper með sært stolt sem labbaði til baka með skottið á milli lappanna.

Mission.....Failed


...á barmi byltingar

Ég hef séð framtíðina!

og hún er góð

Fyrst komu nokkrar sjónvarpsrásir og fólk kannski fílaði 1 þátt af 15. Beið alltaf eftir sínum eina þætti á viku. Jei.

Svo kom kapalsjónvarpið og nokkrar rásir urðu að nokkur hundruð rásum. Þá gat fólk fundið heilu rásirnar með bara sínum áhugamálum. Hestar, fótbolti, náttúrulíf etc....

Algjör bylting. Fólki fannst það vera frjálst til að velja. Frjálst til að horfa bara á það sem það vildi.

yeah....það var það sem fólk hélt

Núna erum við hins vegar á barmi annarar byltingar!

Bylting sem mun svo sannarlega gera fólk frjálst til að velja hvað það horfir á.

Sú bylting heitir............Youtube!

Þú ert að hugsa....,,youtube? það er búið að vera til í nokkur ár og er ekkert nýtt!"

Það sem þú hins vegar vissir ekki er að fyrir um 2-3 árum þá var fólk að gera saklaus myndbönd sér til skemmtunar. Núna gerir þetta fólk það áfram, nema í meira magni og fær borgað fyrir það.

Eins og með svo margt fróðlegt þá las ég grein í Wired

Hún segir frá þessari byltingu sem fólk mun kynnast betur eftir smá stund

Fólk er farið í meira magni að nota youtube til að kynna sér hluti eða einfaldlega til að hlægja yfir.

Vandamálið hefur hins vegar alltaf verið að á meðan maður eyðir um 5 klst á dag við sjónvarpsáhorf þá horfir maður bara í 15 mín á youtube

Með það í huga eru þeir farnir að gera svona playlist channels þar sem maður hoppar úr einu vídeói yfir í næsta.

Næsta skref er svo að fá fólk til að hætta að horfa bara á staðbundið sjónvarp. Nota öll þessi tæki eins og ipad, síma og slíkt til að horfa á skemmtiefni.

Gone are the days þar sem maður þurfti að bíða í viku eftir nýjum þætti í einhverri seríu. Gone are the days að þurfa að bíða eftir auglýsingahléi til að fara á klóstið.

Núna horfir maður bara á það sem maður vill. Núna. Strax. Og ýtir svo bara á pásu ef maður þarf að bora í nefið.

Ok. Fólk fór úr 1-5 sjónvarpsrásum yfir í hundrað og núna yfir í þúsundir

Núna getur fólk gjörsamlega fundið allt sem það girnist. Sérhæfustu áhugamál og slíkt.

Finnst þér dvergvaxinn gaur í bláum bol að prumpa og spila skák skemmtilegt?

Pottþétt til rás tileinkuð bara þannig stöffi

Ég er t.d. áskrifandi að fullt af stöffi. Vsauce og svo fullt af gítartengdum rásum.

Mæli með því að fólk tékki á þessu. Finnur pottþétt eitthvað áhugavert.

En be warned! Þetta er tímaþjófur.

On second thought...farðu bara út og leiktu þér!


EVUL

Sebas er alltaf að verða klókari og klókari

Honum finnst Skemmtigarðurinn vera himnaríki

En honum er kennt að ef hann er alltaf að biðja um að fara þá fer ég bara ekki neitt. Þoli ekki nöldur.

Eins og með t.d. ís í eftirrétt. Ef hann biður um það. Þá fær hann ekki.

Allavega

Þetta veit hann

Þannig að í gær þá casually segir hann

,,Pabbi, það væri nú gaman að fá okkur svona ís eins og amma gaf okkur"

Ég bara ,,hmmmm?"

Hann: ,,langar þig ekki í svona ís?"

,,tja, jú jú"

Svo allt í einu rann það upp fyrir mér.......

Þessi umtalaði ís fékkst gefins í......wait for it......Skemmtigarðinum!

EVUL GÍNÍÖS!!!!


Veikur=Árekstur=Jei

Síðast þegar ég varð svona veikur þá fékk ég svipað viðbjóðsleg eftirköst

Hóstandi eins og skúnkur, bæði hori og slími

Síðast, þá vissi ég ekki betur en svo að ég keyrði bíl í því ástandi

Ekki gott

Enda lenti ég líka í árekstri

Keyrði aftan á bíl á rauðu ljósi þegar ég þurfti í flýti að opna hurðina og hrækja hori og viðbjóði út.

Reyndar kom í ljós að jeppinn á undan mér var ekkert skemmdur en pínu beygla á númeraplötunni hjá okkur.

Mun ekki gera þessi mistök aftur.


Hor og viðbjóður

Hver þarf að fara í ræktina þegar maður getur verið veikur heima!

Ég sit hér í sófanum og hósta á sirka 5 mín fresti

Það er happa glappa hvort hósti skili upp hori eða viðbjóði

Ef svo er þá þarf ég að hoppa upp og spretta í kringum nokkur húsgögn og þræða mig inn á baðherbergið áður en horið kemst upp oná tunguna.

Ef ég næ því, þá fine. Tuffa út og snýti mér um leið. Done.

Ef ekki þá hefst röð af kúgunarhrynum með tilheyrandi viðbjóði

Meika ekki að finna horköggla á tungunni

Kúgast og kúgast. Og þá náttúrlega losnar um fleiri hluti og taumuar leka bæði úr munni og báðum nösum.

Dagurinn minn í hnotskurn

Rækt...Piffff


SIR

Ég er með allavega 5 lög í farteskinu sem munu sennilega bjarga heiminum!

Búinn að vera nostra við þau smátt og smátt. Ekkert komið í Cubase ennþá bara í diktafón.

Svo einhver 5 önnur sem eru bara mjög góð

Hlakka til að geta tekið þetta upp

Ef bara maður hefði tíma.......

Það kemur

Reikna sterklega með því að gefa út plötu einhverntíman á árinu

hugsanleg nöfn á lögum

Amstrad
Lion King
Delay the Reverb (Sebas kallar þetta spiderman lagið)
We could float for 13 million years
4 Hearts in 1 (Sebas kallar þetta superman lagið)
Kurtd Cocain
Svo vantar texta á fleiri lög til að nefna þau


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband