Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010
19.5.2010 | 21:54
Ný könnun
Það er komin ný könnun.
Vilt þú að Besta flokkinum gangi vel í kosningunum?
Niðurstöður úr fyrri kosningu voru afgerandi. Svalara nafnið var Robert Rock að sjálfsögðu. Með 100% fleiri atkvæði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2010 | 15:53
sleigh bells
mæli með efsta laginu í djúkaranum hér á hægri hönd.
Sleigh bells er inn í dag.
Ekki vera lúser og vera úti. Fílaðu Sleigh bells. NûNA!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2010 | 14:27
annoying lolcat
Bloggar | Breytt 18.5.2010 kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2010 | 11:38
hot tub Kfc machine
Fórum á hot tub time machine í gærkvöldi. Hún var ágætis afþreying. Náttla ekki skugginn af hangover eins og margir segja en samt ágætis afþreying og ekkert meira. Bara allt spurning um stemminguna þegar þú ferð á hana. Hjá okkur var hún í hámarki þannig að þetta var skemmtilegt.
Svo skemmdi ekki fyrir að fyrir framan okkur sat hressi ungi strákurinn frá kfc í hafnarfirði.
Við fórum einu sinni á Kfc í hfirði og tókum eftir þessum gutta. Hann fór á kostum við að afgreiða okkur. Svo sest kvikindið bara beint fyrir framan okkur í bíó.
Hann nikkaði okkur brosandi þegar hann sá okkur. Svo í hléi þegar hann snéri tilbaka þá leit hann á Betu, brosti og sagði hæ. Svona eins og hann væri að reyna við hana. En samt í djóki.
Við erum að tala um að þessi gæji er sirka 16 ára eða svo og þvengmjór og lítill. En þeim mun hressari.
Við elskum þennan gæja. Ætlum pottþétt mjög fljótlega aftur á kfc í hfirði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.5.2010 | 18:07
Clooney meets Sölvi
Ég vatt mér inn á Rauðhettu og Ûlfinn á skólavörðustígnum í stólinn hans Grjóna. Hann hefur séð um hárið á kjeppenum í 5 ár með feyki góðum árangri. Hefur bara klikkað einu sinni.
Ég sem sagt strunsaði inn og bað um George Clooney meets Sölvi. Þá meina ég Sölvi í spjallið með Sölva á skjá einum.
Ég útskýrði fyrir honum að Brad Pitt tímabilið væri yfirstaðið og ofangreint væri nú málið.
Hann hófst þá handa við þessa klassísku fiftís klippingu og afraksturinn svona líka helvíti góður.
Í stólnum við hliðina á mér sat Ágústa Eva eða Silvía Nôtt eins og ég þekki hana. Ég heyrði nú ekki hvernig klippingu hún bað um en það var alveg örugglega ekki Clooney meets Sölvi, það eitt er víst.
Tók svo 18 holur strax á eftir, sportandi nýja stílnum. Nýji stíll keisarans skilaði 36 punktum í hús þannig að ég klárlega missti ekkert kúlið við að skerða hárið. Meira að segja örn á þriðju!
Strákurinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.5.2010 | 09:56
well do ya! do ya!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2010 | 09:31
Ljóð
Ef þið viljið að hausinn ykkar springi úr aulahrolli og viðbjóðstilfinningu þá skulið þið hlusta á þetta upplesna ljóð eftir Berg Ebba.
Ljóð! Af hverju finnst mér það svona barnalegt og hallærislegt? Ég veit ekki. En mikið hrikalega er þetta mikil viðurstyggð.
http://this.is/drgunni/mp3/Bergur%20Ebbi%20Benediktsson%20-%20Eftirmiddagur%20i%20juli.mp3
Ps. þessi færsla er frumsamið ljóð sem ég samdi þegar ég var að rembast við að vera djúpur á kaffihúsi með latté í einni og gemsa með Sjón á speeddial í hinni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2010 | 23:15
Chrome
Þetta er það sem ég fíla við netvafran Google Chrome. Þeir eru down to earth kind of gæjar sem tala tungumál fólksins. Þegar upp kemur villa, sem er sjaldan, þá kemur eins svona melding upp.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2010 | 22:40
lunes
Vorum slakir í morgun saman feðgarnir þar sem það var vinnudagur á leikskólanum hans. Hann sá mig setja sykur á seríósið mitt og vildi líka. Fékk það og spann svo restina af morgninum um íbúðina eins og tasmaníudjöfull í sykurvímu.
Vippuðum okkur niðrí bæ á hádegi og sporðrenndum þrem pulsum með öllu nema hráum.
Eyddum tæplega tveim tímum á borgarbókasafninu að dúlla okkur innan um allar bækurnar.
Hittum Sverri og fórum á rúntinn. Allir sáttir með kókómjólk og kleinu á kantinum.
Tók svo æfingu með gkg peyjunum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar