Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Lóan er komin(fyrir löngu)

Ég vaknaði við fallegan fuglasöng hérna í Skógarlundinum, sem ber nafn með rentu. Okay, auðvitað var búið að vekja mig með þessum ljúfu tónum ,,pabbi! það er kominn dagur" en þar sem ég dormaði aðeins lengur heyrði ég í fuglasöngnum.

Lóan kom náttla um daginn og sumarið um leið með. Eða næstum því.

Það sem mér fannst fyndið var að sama dag og Lóan kom þá dó Haförninn í húsdýragarðinum. Hvað var málið með það? Fréttablaðið greindi frá þessu fyrir stuttu.

Ætli hann hafi bara ekki meikað samkeppnina?

Eða ætli Lóan hafi látið ráða hann af dögum?...this town ain´t big enough for the both of us.


Réttur

Eigum við eitthvað að ræða hvað Réttur var lélegur í gærkveldi! Það vantaði allan performance og bara pressans yfir höfuð.

Það vantaði nefnilega mig.

En ekki örvænta, ég mun koma í tveim næstu þáttum.


hressleiki

Eitt af hressu lögunum hans Jónsa. Það er reyndar ekki á skífunni en kemur fyrir í drekamyndinni sem er í bíó. Mun skella því í ipoddinn og láta sem vind um eyru þjóta að þetta tilheyri ekki skífunni því þar á það heima. Fatta ekki af hverju það var undanskilið. 


Páskar

Sebas vakti mig kl 6:57 og grennslaðist fyrir um þetta umtalaða páskaegg. Hann stútaði því á innan við hálftíma yfir barnaefninu.

Go berserk

Djöfull er ég að fíla Go. Verður alltaf betri og betri. Maður grípur hressu lögin strax en svo kikka þau hægari smátt og smátt inn.

Staðan er því orðin svona: Öll lögin eru góð, þessi hressu skemmtileg en hin magnþrungin. Ekki veikan blett á skífunni að finna fyrir utan hve hún er stutt.


Málverka unnandinn Sebas

Sebas á sinn uppáhalds málara. René Magritte hét hann og var belgískur súrrealisti. Frægasta verk hans er mynd af pípu þar sem fyrir neðan stendur "Ceci n'est pas une pipe" (þetta er ekki pípa). Gúgglið það.

Spurður um þessa mynd svaraði hann ,,...of course it´s not a pipe, just try to fill it with tobacco!".

Þessi málari gerði verk í þessum stíl, þar sem hann ögraði áhorfendum með slíkum súrreal skotnum hugmyndum.

Ástæðan fyrir því að Sebas aðhyllist Magritte er að hann er núna tekinn upp á því að neita því augljósa. Eins og t.d. í dag þegar hann mátti ekki snerta blómið sem hangir inn í stofu.

Ég: ekki snerta blómið!
Seb: ég ER ekki að snerta það (sagt á meðan hann snertir það)
Ég: nú! ekki samt vera að þessu
Seb: ég ER ekki að snerta blómið (sagði hann, horfandi súrrealískt á mig)

Ekki veit ég hvernig maður tæklar svona lítinn René Magritte aðdáanda.


Useless knowledge of the day

Koalas and humans are the only animals with unique fingerprints. Koala prints cannot be distinguished from human fingerprints. Luckily, few koalas pursue a life of crime.

Finnst svona eins og ég hafi póstað þessu áður. Aldrei er samt góð vísa of oft kveðin.


Magellan

Það munaði nú ekki miklu hjá spámanninum með leikinn. Elsa vann í þetta sinn þar sem ég og pabbi horfðum á baráttuna á meðan mamma fór með Sebas í óvissuferð. Í staðin er ég að láta nýjasta photoshoppið í tölvuna hennar.

Það er gaman að horfa á leik með pabba þar sem hann er nýbyrjaður að fylgjast með fótbolta. Hann hefur takmarkaða vitneskju um þetta en því mun meiri áhuga.

Uppáhalds liðið hans er Manjú því Rooney er svo góður að sögn. Svo kom mynd af honum upp í stúku því hann er meiddur og pabbi spurði sakleysislega ,,hvað er hann að gera inní búri?"

Kannski viðeigandi því hann er svo dýrslegur hvort eð er.

Svo var alltaf verið að sýna framkvæmdastjórana á hliðarlínunni og fyrir aftan Ancelotti var stelpa með skrifblokk. Ég velti því upp hvað í andskotanum hún væri að gera þarna á hliðarlínunni. Pabbi svaraði að bragði ,,er hún ekki bara að halda utan um skorið"


Leikurinn

Manjú 1-3 Elsa Fc

Drogba með 2 og Lampard 1

Kalt mat.

Ég setti samt Torres sem fyrirliða fyrir þessa umferð í fantasí. Var lengi að ákveða hvort það ætti að vera Drogba, lampard eða Torres.....vona að ég hafi valið rétt.


Jónsi

Hef verið að hlusta á nýju skífu Jónsa ,,Go". Hún er fín. Þetta eru 9 lög þar sem 4 eru góð, 3 fín, 1 sæmó og 1 lélegt. Myndi segja að það væri nokkuð ágætt bara. Hún fengi 4 af 5 hjá mér.

Hressu lögin eru frábær, hann ætti að gera meira af því.

Þetta er náttla mjög svipað og Sigurrós en aðeins meira poppskotið. Platan er soldið stutt finnst mér og ég skil ekki af hverju hann slappaði ekki lágmark einu lagi í viðbót á skífuna eða tveim.

Fyrir hvern: Sigurrósar aðdáanda, ambiance hlustanda og gæja sem fílar aðeins meira en mainstream stöffið í útvarpinu.

Ekki fyrir: Gæja sem fílar ekki Sigurrós og þeirra ,,tíjójijúúú" hljóð og almenn hvala öskur.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband