Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

að mæla hita í skugga eður ei

Hvað er málið með að mæla hitastig í skugga! Ég vil ekkert vita hve heitt er úti í einhverjum skugga. Ég vil fá að vita hve heitt eða kalt verður þegar ég stíg út og labba útí bíl.

Hef aldrei gúdderað þetta með að mæla bara í skuggum.

Ég gúgglaði þetta og rökin fyrir því eru eftirfarandi:

1. Það er verið að mæla lofthitann og því betra að gera það þar sem ekki er vindur, því hann hefur áhrif.

2. Svo er líka talað um að í beinu sólarljósi hleðst hitinn upp og magnast á meðan það gerist ekki í skugga.

3. Þriðju og síðustu rökin eru að í skugga ertu með stabílt umhverfi til að mæla alla daga versus að stundum gæti verið skýjað eða einhver annar faktor sem truflar.

Allt ofangreint er crap. Menn eru gjörsamleg ekki að sjá skóginn fyrir trjánum.

Ég vil fá að vita hversu mikinn hita ég finn á mér þegar ég labba úti! for crying out loud.

Nú skal ég hrekja þessi rök sem ég fann á netinu.

1. uuuuu Halló! Þegar ég mun labba úti þá verður þessi vindur þarna og þess vegna vil ég vita hversu heitt mér verður í þeim aðstæðum, með vindinn/rigninguna eða whatever factor.

2. Ég mun vera að labba úti með sólina skínandi á mig og því mun ég þá finna fyrir áhrifum þessarar hleðslu á hitanum. Af hverju myndi ég vilja EKKI vita hve heitt væri með hleðslunni?

3. Sjá svar 1.

Getur einhver sagt mér af hverju menn mæla hita í skugganum?


Dagurinn í gær

Í gær var svo frábær dagur að ég var hyper glaður nánast allan daginn (sveif smá ró yfir mig eftir kvöldmatinn reyndar).

Ég æfði golf frá 12:45 til 14:45

Tók gott session í hraunkoti. 130 kúlur flugu tvist og bast, sumar sá ég en meirihlutan sá ég ekki sökum leiðinlegrar birtu. Fann samt að þetta var alveg ágætur sláttur. Tók rútínu fyrir hvert högg og spilaði brautir í hausnum. Er að færa mig frá tæknilegu hliðinni yfir í vélræna spilamennsku hliðina.

Fór svo inn og púttaði. Tôk tvo 18 holu hringi og nokkuð ánægður með -6 og -7 á þessari braut. Er að spila hana í fyrsta skipti og grínið er frekar hratt og eiginlega soldið lélegt gervigras finnst mér. Kannski bara gamalt.

Allavega ánægður með pútterinn.

Tók svo massívt á því í ræktinni. Prófaði í fyrsta sinn að reyna að ná 5km á undir 30 mín. Það var ekkert mál. Reiknaði út að ef ég hlypi á 10 þá ætti ég að ná því sirka. Skellti mér svo í 11 og svo aftur í 15 í smá tíma til að tryggja það. Endaði á að hlaupa þetta á tímanum 29:25

Horfði svo graður á mig í speglinum, pumpandi byssurnar í drasl.


Planið

Hold all my calls...ég er farinn í lunch.

Eftir lunch fer ég beint í hraunkot að æfa í góða veðrinu. Svo nánast beint í ræktina og fylgi því svo eftir með því að fara þráðbeint í almennt chill með viðkomu í huggulegheitum.


Draumurinn

jæja þá...mig dreymdi skemmtilegan draum.

Ég var ásamt fleiri krökkum í einhverjum hóp sem var í make over. Þetta voru kannski sirka 13 manns eða svo og flestir á aldri við mig. Allt stelpur. Sem er ekki frásögu færandi nema hvað......

Þar sem ég kom úr sturtu og búinn að snurfursa mig og slíkt þá leið mér eitthvað skringilega. Ég áttaði mig á því að ég hafði gleymt að líta í spegil. Ég snéri því aftur inn í klefan og sá mér til mikilla ama að það var búið að breyta mér í engan annan en DJ Qualls!

Þetta er gæjinn sem lék í myndinni ,,The new guy", hann lék líka hávaxna, ljóta sjóræningjann í Pirates of the caribbean.

Ég var miður mín og aulaðist fram og tjáði stelpunum í hópnum þetta en þær könnuðust ekkert við að ég liti út eins og DJ Qualls. Ég var ennþá ég samkvæmt þeim. Mêr var létt en ályktaði þá að ég væri bara svona reyktur að eitthvað hefði slegið saman í hausnum á mér og aðeins ég sæi mig sem DJ Qualls. Fine, ég gat lifað með því.

Ég var samt smá leiður en stelpurnar hresstu mig við. Ein stelpan var Pamela Anderson og ég hösstlaði hana og endaði heima hjá henni í stóru mansjóni í LA.

Morguninn eftir (það sem gerðist á skeiðvellinum verður ekki upplýst hérna, get bara sagt að við sögu kom Tommy Lee, nekt og Lifrabólga C) þá vorum við að spjalla um hvernig framhaldið yrði hjá okkur og ég man að ég dustaði rykið af borði sem þarna var í forrýminu hjá henni!

Fin

þess ber að geta að ég sá 5 mín af make over þættinum með Kalla í gærkvöldi en um Pamelu hef ég ekki hugsað lengi. Hvað þá DJ Qualls!


Ný könnun

Í tilefni þess að golfvertíðin er næstum því að fara byrja þá skellti ég inn einni könnun um getu kylfinga sem lesa bloggið.

Til að svala forvitni lesenda þá er ég sjálfur með 3.3 í forgjöf.


Jesúm

Ég er að spá í að gerast kristinn. Skrá mig aftur í þjóðkirkjuna og snúa mér alfarið að bænum og slíku kjaftæði.

Fara í kirkju jafn oft og í ræktina. Raka af mér öll punghár og boða trúnna í öll hús í grafarvogi.

Allt þetta til þess eins að geta farið á skeljarnar og spurt hið almáttuga einnar spurningar og fá actually svar.

,,Ó góði guð, þú almáttugi herra himins og hafs. Þegar ég fæ bólu, AF HVERJU FÆ ÉG ALLTAF BÓLUNA Á FRIGGIN NEFIÐ?!!!!!!"


The african american heart monitor

Það er komin ný tegund af hjartalínuritartækjum eða hvað sem þetta helvíti kallast 


gelgja

Djöfull væri ég samt til í að uppáhalds kylfingurinn minn væri að spila á The Masters.

The myth, the legend.........Robert Rock

robertrock.co.uk

Hann er svo svalur og með svo heitt nafn að ég myndi sennilega öskra eins og smástelpa ef hann gengi framhjá.

Robert Rock


Augusta

Núna er The Masters á næsta leyti. Byrjar á fimmtudaginn og á eftir að verða rosalegt. Verður sennilega með mesta áhorf ever útaf endurkomu Tigers. Ég vona að hann standi sig vel. Held með honum.

Tommi félagi minn elskar Tiger og spáir að hann vinni með 5 höggum. Hann er svo viss að við erum að veðja um þetta. Ef hann vinnur þá borga ég honum þúsund kall. Ef hann vinnur ekki þá fæ ég þúsund kall. Tommi er svalur.

Ég mun allavega vera límdur við skjáinn á laugar og sunnudagskvöld.

Svo væri ég til í að Camilo Villegas og Rory McIlroy geri vel þó sá síðarnefndi hafi ekki verið að spila vel undanfarið.

Líklegir á toppnum verða Tiger, Furyk, Els, Villegas, Anthony Kim og annar hvor Molinari bróðirinn.

In fact þá er þetta mín spá
1. Tiger
2. Villegas
3. Els
4. Furyk
5. AK


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband