Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Plen

Í kvöld fer fram el classico á spáni. Real - Barca

Þetta er nánast úrslitaleikur um la liga þetta árið og mun ég horfa á leikinn hjá Svedda Tönn.

Annars lítur þessi dagur ekkert sérstaklega spennandi út miðað við þessa hliðarrigningu sem ég sé út um gluggan núna.

Tókum smá Buzz æfingu heima hjá Pétri í gær og ég lenti mjög örugglega í þriðja sæti jafnt og þétt í báðum keppnunum. Gott að vera svona consistent.


Masters

Er að horfa á Amen corner á http://www.atdhe.net/16936/watch-the-masters

Mótið byrjaði vel í gær. Gaman að sjá þessi nöfn þarna á fyrsta skilti. Couples, Lefty, Westwood, Watson, Tiger. Verður ekki betra

Svo hefst full útsending kl 20 í kvöld. Spurning um að kíkjá Póska og félaga á barnum í Grafarholtinu.


Malt

Ég lá andvaka frá 00:00 til 02:00 og hlustaði á nokkrar breiðskífur í Ipoddnum með nýju Sennheiser heyrnatólin mín.

Byrjaði í A-inu og fór í Jagged little pill með Alanis. Hún er ágæt.

Fór svo í B-ið og hlustaði á ,,í sex skrefa fjarlægð frá paradís" með bubba. Tregablandnir textar segi ég og skrifa. Mjög áhrifaríkt og falleg lög inn á milli (en hallærisleg þess inn á milli).

Nennti ekki í C-ið og hélt mig í B-inu og tók Beirut skífuna ,,the flying club cup". Hún er flott. Franskt yfirbragð og fallega melónkólískt stöff.

Náði svo slitróttum svefni frá 2-6 þar sem ég þurfti þrisvar að vakna og róa Sebas niður sem var eitthvað kvektur.

Klukkan 6 vildi hann svo vakna (nýtt met hjá honum). Hófst ég þá handa við að snúsa hann niður sem tók klukkutíma. Þá var fólkið í húsinu vaknað og ég náði ekkert að sofna eftir það.

Ég vakti svo pungsa klukkan 8:16 og sagði honum að fara inn til stelpnanna og vekja þær. Hann hljóp ferskur og útsofinn sem blá þruma eftir ganginum á meðan ég dró lappirnar eftir mér sem uppvakningur.

Útfrá þessu fékk ég mér malt til að hressa mig við. Og er enn ekki farinn aftur að sofa. Helvítis maltið svínvirkar.


N1 í ártúnsbrekkunni

Tók bensín aftur í ártúnsbrekkunni hjá N1. Afgreiðslumaðurinn var íslenskur að þessu sinni og hann gaf Paolo hinum portúgalska/mára ekkert eftir í hressleika.

Svei mér þá.

Frasar eins og

,,eitthvað fleira fyrir herrann?"
,,takk fyrir og eigðu góðan dag félagi"

komu við sögu í okkar litla samtali og ég fór þaðan glaður, hressari og brosandi (það þarf svo lítið til að hressa strákinn við). Svo var ég líka búinn að drekka malt í morgunsárið þannig að......

Ég er í alvörunni að pæla að senda N1 bréf og hrósa þessari stöð fyrir gleði og almennan hressleika.


bada bing

Veistu hvað stóð í afmæliskortinu sem Garfield skrifaði til kisunar í lísu í undralandi?

Have a mice day!
Best fishes


Nækí just do it

Nokkur svör hafa borist vegna vangaveltna föður Tigers í myndbandinu hérna að neðan. Earl Woods spyr son sinn hvort hann hafi lært eitthvað og eitt svarið við því er að sjálfsögðu ,,yes dad, the one thing I take from this is.............just do it".

Svo hefur borist annað myndband þar sem mamma hans talar. Hún er ennþá lifandi. Það myndband má sjá hér á mínútu 1:45. Ekki missa af því.


Zu Meeestörs

Jæja Masterinn er byrjaður. Það eru nokkrir ráshópar farnir af stað og er fyrsti hópurinn kominn sirka á áttundu braut.

Happy happy joy joy

Ekki samt svo mikið fyrir Ian Woosnam sem er á 6 yfir eftir 6 holur.

Welcome to Bogesville, population....Ian Woosnam.


Hyper

Það er komin skýring á því af hverju ég var svona glaður í gær.

Euroshopper Energy drink + Kók + Malt

Deadly combo

Fékk mér eina dós af Euroshopper kl 16 svo hálfan lítra af kóki með matnum klukkan 19 og loks eina flösku af Malti klukkan 22:30.

Enda fáránlega hress til klukkan 2 eða svo í nótt.

Það er svona að drekka hvorki kaffi né reykja. Ég er með svo lítinn þröskuld gagnvart svona drykkjum. Gæti örugglega farið á blindafyllerí með kippu af Malti.

Annars finnst mér ekkert betra en goslaust Euroshopper Energy drink. Þetta er kallað öpper á mínum bæ og dána ég slíku þegar ég vil hressa mig við. Fínt áður en farið er í rækt.


ár Tígursins byrjar í dag!

Fyrsta auglýsingin sem birtist með Tiger. Allir sponsar sögðu honum upp vegna málsins, allir nema Nike. Núna eru þeir að láta í sér heyra.

Þetta er pabbi hans sem talar(sem btw lést fyrir nokkrum árum). Nokkuð áhrifaríkt. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband