Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010
14.4.2010 | 10:46
Rónar og vírd lúkkin fólk
Fórum í bíltúr í gær og okkur til mikillar undrunar var bærinn fullur af skrýtnu fólki.
Fengum okkur pulsu á aktu taktu og parkeruðum til að sporðrenna henni. Þá kom glaður róni og bankaði á glerið hjá mér og gerði handapat sem benti til að hann spurði hvort hann mætti fá bit!!!
Ég svaraði með því að læsa bílnum en nikkaði hann samt brosandi til að sýna smá manngæsku. Hann hélt þá áfram sinni leið. MEÐ NESTISBOX!
Svo sáum við annan vírd gæja labba framhjá. Og svo strax annan.
Á þessum tímapunkti var ég að velta fyrir mér hvort það væri ,,bring a weird person to work day" eða eitthvað álíka í gangi.
Svo rúntuðum við laugaveginn og sáum 5 róna til viðbótar á mismunandi stöðum. Tvo skrýtna venjulega gæja og einn joggara að jogga laugarveginn(hver gerir það!).
Þetta var farið að lúkka eins og southpark þátturinn þegar rónarnir yfirtóku bæjinn.
Við snöruðum okkur því bara heim í snatri, spiluðum veiðimann, Lygi og horfðum svo á Groundhog Day. (ég vann öll spilin sem við spiluðum)
Bloggar | Breytt 13.4.2010 kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.4.2010 | 15:53
Fúli
Varð fúll eftir morgunæfingu því ég tapaði stórt. Hef sjaldan orðið jafn pirraður yfir einhverju jafn smávægilegu. Reyndi að æfa vippin eftir æfinguna en dugði bara í hálftíma sökum pirrings.
Þar sem ég var svona pirraður var ekkert annað að gera en að drífa sig í ræktina og taka reiðipúl.
Ég ákvað að hlaupa eins hratt og ég gat(innan skynsamlegra marka) og reyndi að bæta 5km metið. Hljóp á 10 og tók 12 og 15 spretti annað slagið. Ég tek yfirleitt spretti þegar flottu kaflarnir í hörðu lögunum koma.
Ég bætti metið úr 29:25 í 28:55 sem ég tel bara nokkuð gott. Ég sé að ég gæti hlaupið þetta hraðar en þá þarf ég að vinna aðeins meira á bumbunni fyrst.
Tók svo pottinn eftir ræktina og tveggja tíma session klárt.
Svo er aftur golfæfing í kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.4.2010 | 08:16
Réttur
Ég sást pínku pons í Rétti á sunnudaginn. Ekki var það nú veigamikið hlutverk í þetta sinn. Var vinstra megin í sætunum fyrir aftan í réttarsalnum. Sást í sirka 2 sek.
Verð svo réttarritari aftur næsta sunnudag. Þá ættu nú landsmenn að vara sig. Myndi ráðleggja fólki að stilla brightnessið í sjónvarpinu aðeins niður því það skín svo rosalega mikið af mér. Er með svo mikið pressans sjáðu.
Mig minnir að sækjandi sé leikinn af Agli Ólafs og hinum megin sitja Jóhanna og Víkingur. Man ekki um hvað case-ið snýst.
Þar með lýkur veru minni á skjánum. Svo er spurning hvort það verður ekki gerður bara spin off af þessu með mig í aðalhlutverki.
,,svaðilfarir réttarritarans"
Gæti t.d. spunnið heilan þátt um þegar Róbert réttarritari skrifaði óvart sekur í staðinn fyrir saklaus í einu keisi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.4.2010 | 08:16
gelgjukisi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2010 | 05:39
Morgunæfing
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2010 | 23:34
Varúð! golf færsla
Fór á Hellu í dag og spilaði 18 holur í frábæru veðri. Lítill vindur og ég aðeins á peysunni.
Ég hitaði ekkert upp og það var klárt mál að ég var soldið stirður í upphafi, bæði bókstaflega og svo bara svona útaf þetta er fyrsti 18 holu hringurinn minn í sumar.
Ég fór á +6 fyrri níu og pari seinni níu. Þannig að +6 í heildina og níu pör í röð frá tíundu braut og til enda.
1. par 4. Fullkomið upphafshögg á miðja braut. Pw inná grín og 4 mtr pútt eftir sem ég tvípúttaði. Par
2. par 3. Flott 9 járn rétt yfir grín. Þar sem ég er að vinna í vippunum þá heppnaðist það ekki og ég klikkaði á púttinu. Skolli.
3. par 5. Fullkomið upphafshögg. Ýtti blendingi út til hægri í höggi tvö en samt ekkert vesen. Þriðja högg meter of stutt. Vipp og pútt. Par.
4. par 3. Togaði aðeins fyrsta höggið til vinstri. Vippið aðeins of langt og náði ekki púttinu. Skolli.
5. par 5. Flott upphafshögg í hægri kant brautar aðeins lengra en 200mtr hæll. Tók svo léttan blending áfram til að stilla upp en var soldið feitt og stutt. Wedge höggið varð svo of stutt því enn var ég ekki að átta mig á því að það rúllar ekkert, snarstoppar bara í bleytunni. Vippaði of langt og meikaði ekki púttið. aulaSkolli.
6. par 4. Fyrsta lélega upphafshögg dagsins. Ég var of bráður með niðursveiflu og tók einn ormaskelfir og þurfti að taka víti. Þriðja höggið með pw en endaði vinstra megin á gríni og fáránlega mikið halla pútt niður í móti eftir. Þrípúttaði. Tvöfaldur skolli.
7. par 4. Örugga leiðin valin hér og vel til vinstri á þrettándu braut. Flott innáhögg og öruggt tvípútt. Par.
8. par 3. Högg dagsins hingað til. Fallegt áttujárn tvo metra við hlið holu. Vippaði og einpúttaði. Par.
9. par 4. Annað fínt upphafshögg. Feitt innáhögg of stutt. Vippið lélegt og náði ekki púttinu. Skolli.
Sex yfir pari í hálfleik. Tók svo níu pör í röð.
10. par 4. Villt upphafshögg til hægri. Rétt fyrir framan ellefta skiltið. Flott vipp en rétt missti fuglinn. par.
11. par 3. Fínt 54° högg rétt fyrir utan grín. Fínt vipp og tap-in fyrir pari. Par.
12. par 4. Villt upphafshögg til hægri. Skipti engu máli því það er alveg jafn gott að koma inn á grínið frá hægri. Feitt innáhögg of stutt. Vippið aðeins of langt en náði púttinu. Par.
13. par 3. Flott járnahögg. Vippið aðeins of langt en flott pútt. Par.
14. par 4. Frábært upphafshögg. Fínt innáhögg. Of langt vipp. Flott pútt. Par.
15. par 5. Mótvindur og endaði í hólunum. Feitt blendingarhögg og átti 140mtr eftir. Fullkomin sexa pínu stutt. Vippaði of langt. Flott pútt. Par.
16. par 4. Fullkomið upphafshögg. 60° högg aðeins of stutt. Of langt vipp. Frábært pútt. Par.
17. par 4. Púllaði upphafshöggið aðeins til vinstri sem er bara betra því þá er grínið opnara. 70mtr eftir og 54° þrem mtr of langt. Mjög erfitt fuglapútt niður í móti í extreme halla. Auðvelt par.
18. par 4. Högg dagsins. Ásinn smókin heitur. Nelgdur áfram. léttur 60° of langur. Vissjus niðrímóti pútt með exreme broti. Of langt en flott tilbaka pútt fyrir pari. Par.
Hnotskurn:
Ásinn mjög góður.
Járnin mjög góð.
Innáhögg ryðguð og þarfnast meiri touch æfingar.
Vippin eru algjörlega off því ég er að vinna í miklum breytingum þar. Vantar meiri æfingu til að finna rétta touchið þar.
Púttin góð, þessi grín náttla bara soldið röff en fín 30 pútt.
Rútínan góð og hausinn í lagi.
Mjög sáttur við daginn í dag!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2010 | 09:37
Masterinn
Masters í hnotskurn: Lefty vann, Tiger sökkaði að eigin sögn (en varð samt í fjórða sæti), AK svalur, KJ líka, Lee solid, Poulter gaf eftir, Furyk ótrúlega lélegur, Couples átti snilldarmót en hinn sanni sigurvegari er ungi ítalinn Matteo.
Hér er Tiger að segja sjálfur hve mikið hann sökkar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2010 | 15:36
LP Foefa
Djöfull er ég ánægður með að Manjú sé að klikka á tímabilinu. Dottnir úr Meistara og gerðu núna jafntefli í deildinni. Af hverju er ég svona glaður yfir því?
Jú, þá ná þeir ekki að bæta nítjánda titlinum við og komast fram úr Liverpool sem hafa verið með átján í milljón ár.
Um leið og það gerist þá hættir Ferguson, hmmmm kannski maður ætti bara að gefa þennan nítjánda frá sér svo Ferguson hætti þessu loksins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2010 | 01:44
Miðjuskipting
Þegar ég var yngri þá var miðjuskipting málið. Miðjuskipting og klippt í stall. Ekkert grín. Ég er einfaldlega það gamall. Maður skipti hárinu sem móses í miðju og actually fannst maður vera maðurinn. Svo liðu árin og það datt úr tísku og í raun varð svo hallærislegt að enginn vill kannast við að hafa tekið þátt í þessu.
Ég hins vegar viðurkenni þetta hér með.
Ég á vin sem við skulum kalla ,,tönnin" og hann vill ekki láta bendla sig við þetta viðkvæma tímabil.
Hann heldur því fram að þetta hafi verið meira svona 60/40 skipting hjá sér.
Hversu svalur þarftu að vera til að vera búinn að pæla í þessu og actually vera tilbúinn með andmæli við miðjuskiptingar bendlun!
Þurfum eiginlega að leggja þetta í dóm.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2010 | 23:48
Barca
FORCA BARCA!!!!!!!!!!!
Þetta er ekkert venjulega sterkt lið. Hugsanlega besta félagslið allra tíma!
Hver fer á Bernabeu og lætur Real vera í vörn og taka bara skyndisóknir?
Besta félagslið allra tíma, that's who!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar