Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

KR

Nú er það svart mar! Sebas er í leikskóla út á granda og er því heilaþveginn af KR lögum og stöffi. Mér leist ekkert á þetta fyrst og reyndi að streitast á móti með Vals söngvum. Svo sá ég að það gerjaði bara KR aðdáun hans meira og ég steinhættur því.

Ég reyni bara að breyta aðeins textunum, KR í óhag í staðin.


Dunlap

Mér er íllt í fætinum, ég er með hausverk OG ég held með Liverpool.

Eins og glöggir hafa tekið eftir þá hefur Liverpool verið auglýst til sölu. Sem er dapurt en kannski frábært. Ég vil bara fá einhverja sauda inn í þetta, fullt af pening og rústa deildinni næstu 10 árin. Er það of mikið til að biðja um?


Dyslexic fucks

Britain: WTF Iceland!? Why did you send us volcanic ash? Our airspace has shut down! Iceland: What? It's what you asked for, isn't it? Britain: NO!!! Cash! Cash, you dyslexic fuck! CASH! Iceland: Ohh, whoops...

(c)FB


Ný könnun

Ný könnun. Go do.

Gosið

Það finnst engum jafn gaman að horfa á fréttirnar núna eins og Sebastian. Allt þetta tal um Gosið. Hann lifnar alveg við þegar hann heyrir talað um gosið.

,,Gosi, papá?"

þá jánka ég og segi honum að fólkið í sjónvarpinu sé indeed að tala um Gosa. Hann elskar Gosa og talar mikið og oft um pabba hans Gosa og slíkt.

Eitthvað frá leikskólanum býst ég við.

"Gosi í sjónvarpinu papá!"


Eric the spammer

fyrir um fjórum árum þá var ég að tékka á fitness æfingum og slíku á netinu. Ég rakst á eitthvað sem hét global fitness og tékkaði á því. Ég man ekki alveg hvað ég gerði en það gæti verið að ég hafi spurt einhverra spurningar á síðunni þeirra eða eitthvað því allavega þá var ég kominn á mail listann hjá þeim.

og hef verið síðan.

Ég ákvað að vera ekkert að nota síðuna þeirra en fannst sniðugt að fá alltaf þetta meil frá þeim.

Svo sniðugt að ég ákvað að sjá hve lengi hann héldi áfram að senda mér án þess að fá svar frá mér.

Hann heitir Eric og sendir mér alltaf svona líka þessi persónuleg bréf um heilsu og stöff.

"Oops, Sigursteinn, I forgot to tell you what time Kim (trainer from The
Biggest Loser) is hosting Live Chat TONIGHT!..."

"I'm excited for you to discover just how simple losing fat really is with this new, innovative program. Let's get started, Sigursteinn"

Mér líkar vel við hann og er þetta eina spammið sem ég eyði ekki út.

Ég var að fá meil frá honum, hann heldur ótrauður áfram og hefur tröllatrú á mér. Hann er persónulegur vinur hennar Kim sem er þjálfarinn í the biggest looser.

Allavega.....spammvinátta okkar Erics heldur áfram. Í hve mörg ár mun þessi gæji halda áfram að senda mér bréf?

Ekki samt bíða of spennt við skjáinn. Þetta gæti tekið nokkra áratugi.


vondi maðurinn

Er ég eitthvað skrýtinn þegar það hlakkar soldið í mér er ég heyri af öllu þessu flugi sem er aflýst?

Allt London flug, truflanir í manchester, Liverpool, newcastle, birmingham, aberdeen, glasgow, edinburgh og mjög mikið í skandinavíu.

allt útaf þessu gosi hér á Íslandi

tíhíhí

EAT THIS SÖKKERS!!!

ps. svo er það fyndnasta við þetta að það eru engar truflanir á að fljúga hingað til Îslands.

MUAHAHAHA


Newsflash

ÞAÐ ER ELDGOS!!!!!!!!!!!

OG SVO ER LÍKA KOMIN ÚT SVOKÖLLUÐ RANNSÓKNARSKÝRSLA!!!!!!!!!!!

eða........mér fannst ég sjá eitthvað minnst á þetta í fréttunum í dag. Ekki samt alveg viss.

Í öðrum fréttum er það helst að ég og Sebastian hlógum svo mikið rétt fyrir svefninn að hann ældi. Þurftum að fara úr smiley náttfötunum og fara í Liverpool náttfötin. Annars ekkert nýtt í hinum raunverulega heimi.


Íslenskir fatahönnuðir

Maður keyrir framhjá þessum íslensku design búðum þar sem íslenskir fatahönnuðir sýna það sem þeir hanna.

Ég var að pæla....af hverju þurfa öll þessi íslensku föt að vera svona vírd lúkkin og spes?

Það er eins og áttundi áratugurinn hafi komið og ælt inn í allar þessar búðir.

Þessi föt eru flest eitthvað svona hallærisleg og spes og örugglega öll gerð úr fiskiroði!

Hvar eru hönnuðir Íslands sem gera bara venjuleg föt. Föt sem krefjast ekki að ég drekki sóda stream og chilli tilbaka í fótanudd tæki með studio line gel í hárinu og borðandi breik pinna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband