Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010
19.4.2010 | 00:04
LU samsærið
Kenning mín um LU samsærið hljóp soldið í kekki í kvöld. Ég fór á rúntinn með Betu og við gerðum viðamikla könnun á þessu fyrirbæri sem hefur plagað hugsanir mínar í nokkur ár.
Fyrir þá sem ekki eru kenningunni kunnir snýst hún um að ég hef tekið eftir því að bílar með númerplötuna LU og svo einhverja random tölustafi eru í yfirgnæfandi meirihluti í borginni.
Við skönnuðum sem sagt borgina, ég leitandi að LU plötum en Beta ákvað að leita að UN númeraplötum.
Skemmst er frá því að segja að hún fann þrjár með skömmu millibili!!! en ég bara eina LU (og meira að segja tók ég ekki eftir henni heldur sá Beta hana bara).
Svo sáum við fjórar MJ plötur og þrjár ZZ plötur (þetta er ekki hulinn Michael Jackson og ZZ-top brandari).
Kenning mín um LU samsærið er fallin og skýringin augljóslega sú að ef þú einsetur þér að taka eftir hlutum þá tekuru frekar eftir þeim. Kalt mat.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2010 | 10:37
95% vatn
Sebas pissaði í rúmið í nótt. Turns out að það var ekki bara útaf því að hann var svo steinsofandi heldur hafði amma hans gefið honum vatnsmelónu eins og enginn væri morgundagurinn. Mínútum fyrir svefninn. Án minnar vitneskju.
Takk fyrir það
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2010 | 09:52
gei
Eigum við eitthvað að ræða hversu gay þessir Manjúvrar eru!
http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=89946
Annars er maður orðinn svo pollrólegur yfir öllum fótbolta tíðindum, gay eða öðru stöffi, því að halda með LP skólar mann upp og býr mann undir allskonar mismunandi tíðindi. Aðallega neikvæð.
Maður er orðinn svo pókerfés orienteraður að þessi leiðinlegu tíðindi með manjú feisa mig lítið. Eins þegar ég horfi á leiki og slíkt. Maður er bara slakur. Eða eins og einhver sagði svo réttilega;
,,Ég komst þó að þvi fyrir nokkru að það skiptir litlu fyrir úrslit leikja með hvaða liði ég held. Þannig að ég ætla bara að leyfa mér að sitja rólegur fyrir framan sjónvarpið."
Bloggar | Breytt 17.4.2010 kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2010 | 01:36
Útkeyrðir
Við feðgarnir vorum svo þreyttir eftir viðburðarríkan dag að við sofnuðum báðir klukkan 22 í gærkveldi. Við vorum sem sagt mikið úti á róló að leika okkur og gjörsamlega keyrðum okkur út.
Mér finnst þetta ekkert smá jákvætt. Það er svo hollt að keyra sig svona út.
Þetta kom hins vegar með verði. Dýru verði það er.
Fyrir mig: Ég sofnaði kl 22 en er núna kl 1:30, glaðvakandi.
Fyrir Hann: Hann sofnaði svo fljótt og svo fast að hann rumskaði ekki einu sinni þegar honum varð mál að pissa.
Sem sagt, einum náttfötum, sængur-og koddaveri síðar, sit ég hér og læt tímann líða.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2010 | 13:44
Dogma
Dogma er snilldar bútík. Mjög skemmtilegir bolir og fyndnir í bland. Eini gallinn við þetta er að um leið og þú kaupir fyndinn bol þá geturu garanterað að minnsta kosti 42 manneskjur kaupi sama bolinn og spígspori um bæinn.
Sem væri ekki frásögufærandi nema hvað.....þessir brandarar verða mjög gamlir, mjög fljótt.
Því mun fleiri sem kaupa bolinn því algengari sjón verður hann á götunni, og því mun fljótara verður hann ófyndinn.
Ég keypti ,,Stop following me" bolinn með þróunarmanna gæjunum. Sem var mjög fyndið. Núna skammast ég mín fyrir að vera í honum á almannafæri.
Ég sá meira að segja bústna stelpu í honum í ræktinni. Hann er sem sagt kominn í secondary useage hjá bústnu kvennfólki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2010 | 12:13
pulla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2010 | 12:12
Useless knowledge of the day
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2010 | 01:15
Pitty laughs
nennir einhver að útskýra þetta Magga Mix æði fyrir mér. Sorglegt. Svona pitty laugh dæmi er ekki að gera gott mót finnst mér. Leoncie, Geir Ólafs og Maggi Mix.
plís Make it stop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2010 | 22:19
Hefur þú orðið fyrir áfalli
Henti inn þrem myndum hér að neðan. Ein er af Sebas smúlandi stéttina hjá ömmu og afa, önnur af honum kúkandi og ein öðruvísi mynd.
Hefur þú orðið fyrir áfalli? Viltu taka þátt í rannsókn?
yeah.....líklegt.
Ég rakst á þetta plagg þar sem leitað er af fólki sem hefur lent í áfalli.
Ef þú hefur lent í áfalli þá ertu vinsamlega beðinn um að gerast tilraunardýr.
Allavega, fannst þetta frekar fyndið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar