Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010
11.11.2010 | 18:03
Giftur í þriðja sinn!
Ég var við tökur á Hlemma Vídeó í dag. Lék brúðguma. Enda mikla reynslu í slíku.
Ég spjallaði aðeins við Pétur Jóhann eða PJ Sigfusion eins og hann er kallaður í Hollywood. Hann var frekar fyndinn. Hékk samt mest með Vigni sem leikur með Pétri í þessari seríu. Hann lék líka í Ríkinu.
Ég spurði Vigni hvort hann áliti sig kvalinn listamann(í gríni). Hann neitaði því en sagði að þessi bransi væri hark.
Við skutum í porti sem maður gengur inn í af Snorrabrautinni en garðarnir tilheyra Grettisgötu.
Ég og brúðurinn ásamt ljósmyndara voru staðsett í garði þar sem Pétur ætlaði að kasta sprengju. Hættir snarlega við það því við erum þar [hilarity ensues].
Þessa sena tekur uþb 5 sekúndur.
Það var ÓGÉÐslega kalt. Vindur og kalt. Við vorum dúðuð upp í úlpum. Á einum tímapunkti var ég í þrem úlpum.
Fyrst var ég Réttarritari í Rétti 2 og núna brúðgumi. Ferillinn er að fara á flug sýnist mér.
Þetta var 10.þáttur. Þeir eru samtals 12 og 3 núþegar sýndir. Minn þáttur verður sýndur fyrrihlutan í janúar held ég. En eins og ég sagði, ég birtist í sirka 5 sek.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.11.2010 | 15:52
SIR
www.gogoyoko.com/artist/SIR
eigum við að ræða þetta eitthvað frekar!!!
Ef þið ætlið að tékka á max 4 lögum myndi ég byrja á
Vínber II - Analog - Blá - Hálendið
Þó ég mæli með öllum lögunum að sjálfsögðu.
Þarna er eitthvað fyrir alla, meira að segja metalhausa. Við erum að tala um all killer and no filler pakka. Það eru engir farþegar á þessari skífu skal ég segja ykkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.11.2010 | 15:00
golf
Æfingar hafnar hjá Afrekshóp Gkg að nýju. Það er vel. Gaman að hitta strákana aftur.
Tókum fitness test. Stóð mig bara vel miðað við blóðtappann og það vesen. Er allur út í strengjum í dag.
Þrjár æfingar í viku.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2010 | 07:35
Leiðinlegasti draumur í heimi
Ég dreymdi sennilega leiðinlegasta draum í heimi í nótt. Sá sem stjórnar draumunum hefur bara hugsað með sér ,,Ok, hver er næstur. Sigursteinn, hmmmm, hann lifir of áhugaverðu lífi, skulum aðeins tóna þetta niður hjá honum".
Ég sat og beið eftir lausu borði á Argentínu. Mjög lengi. Ásamt manni sem er með þeim óáhugaverðari sem ég hef kynnst. Hef ekki séð hann né spjallað við örugglega í hartnær fjögur ár eða svo. Nafn hans mun ekki verða opinberað hér.
Svo fengum við borð, en þá var svo mikið að gera hjá þeim að við fengum borð sem var í raun borð upp í mötuneyti Íslandsbanka. Og þar var fólk að vinna.
Ég brást íllur við og bað um nýtt borð. Sem við fengum á endanum. Það var fyrir innan barinn. Þjónar voru alltaf að rekast í mig.
Svo ætluðum við að panta og hann sagðist vilja tvo forrétti og engan aðalrétt!
Þá stóð ég upp og fór og vaknaði í kjölfarið.
Ég held að ég hafi einfaldlega vakið sjálfan mig út af leiðindum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2010 | 07:24
Þetta er eitthvað sem ég fíla í botn þessa dagana
Fyrir forvitna þá er hann með Thin Skin Fender Jazzmaster. Mér sýnist þetta vera Aztec Gold litur. Þessi gítar sportar sérstökum hvítum víðum ,,soapbar" pikköppum. Mjög spes. Hann er sniðinn fyrir gamla jazzara því lögunin á honum er einkar hentug fyrir þá sem vilja sitja með gítarinn, eins og gömlu jazzgæjarnir.
Ekki missa af 5:48 kaflanum. Snilldar endir á lokalagi á frábærri plötu.
Bloggar | Breytt 9.11.2010 kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2010 | 22:04
Monocle
Er að pæla að fá mér svona Monocle glerauga. Myndi maður ekki lúkka tvölfalt svalari með svona að vopni? Allavega virðulegri.
http://en.wikipedia.org/wiki/Monocle
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.11.2010 | 17:16
farawaykiztan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2010 | 08:03
Atlas
Við keyptum Heimskort Atlas sem sturtuhengi um daginn. Núna er ég alltaf lengi í sturtu.
Legg alltaf eitt land á minnið. Í morgun var það Georgía. Ég legg sem sagt á minnið hvar það er staðsett.
Fáránlegt að vita ekki hvar sum lönd eru í heiminum!
Svo fór ég að pæla. Djöfull er lítill hluti jarðar siðmenntaður. Ég meina, öll þessi tönuðu lönd þarna....afganistan, kirgistan etc. Svo náttla flest öll Afríka, S-Ameríka stígur ekki í vitið og svo fjölmörg lönd þarna í svörtustu Asíu sem eru...tja....ekki siðmenntuð.
Með siðmenntaður meina ég að sjálfsögðu að vera ekki heimskur. Með heimskur meina ég að sjálfsögðu að vera ekki í nútímanum. Túrkmenbashi, Chavez, Sómalía, N-Kórea etc....þarf ég að segja meira!
Við erum í svo miklum minnihluta finnst mér. Stríð er það eina rétta í stöðunni. Tökum restina bara yfir. Málið dautt.
Ég sé að sturtuhengið verður að koma niður áður en ég starta byltingu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar