Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010
16.11.2010 | 12:56
Ný könnun
11 á móti 4 í könnun um trúarstöffið. Kemur mér á óvart að heilir 4 hafi kosið já.
Svona er þetta. Mismunandi skoðanir. Sumir með réttari skoðanir en aðrir en hey! ekki ætla ÉG að predika. BADA BING!
En nú er komin ný könnun. Uppáhalds smákökurnar fyrir jólin
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2010 | 17:55
Listin að gefa ekki með sér
Það er fátt meira truflandi en þegar einhver spyr hvort hann megi fá bita hjá manni. Ég er þannig að ég hugsa voða mikið um heildarmyndina. Þegar ég fæ mér að borða eða snarla eitthvað þá er samspil matar og drykkjar mjög mikilvægt.
Þetta er allt saman í föstum hlutföllum. Ratio-ið á milli mjólkurmagnsins í glasinu og kökusneiðar á disk er alltaf fast.
Sem gerir það að verkum að þegar ég kem að síðasta bitanum þá er akkurat rétta magnið eftir af mjólkinni til að væta og skola honum ljúflega niður skv mínum háþróuðu preffum.
Áðan bað Beta mig um bita þegar uþb 3 bitar voru eftir. TA TA TA DAMMMM!
Needless to say þá hrundi veröld mín. Til allrar hamingju þá vorum við búin að taka þetta samtal þannig að hún skildi strax það sem ég var að reyna að segja er ég var við að stökkbreytast í framan af skort á vilja og dró beiðni sína tilbaka.
Ég benti henni kurteisislega á að ef hún vildi fá sér þá myndi ég glaður skera handa henni væna sneið á hennar eigin disk svo hún væri ekki að fokka í hlutföllum annarra.
Hún jánkaði því.
Phew! Þarna skall hurð nærri hælum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.11.2010 | 07:17
Bíórýni: GNARR
Fórum á Gnarr. Hún er góð. Kom mér á óvart hve hún missir ekkert dampinn. Ef maður fílar Jón Gnarr, Fóstbræður og slíkt þá er þetta mynd fyrir þig.
Við tókum sérstaklega eftir fólkinu sem var á myndinni. Ekki þetta normaldreifða crowd sem maður sér. Það var eitthvað öðruvísi dreifingin. Fólkið var aðeins undarlegra en vanalega. Veit ekki af hverju.
Stórgóð mynd og við hlógum mjög mikið. Minnti mig á þegar ég fór í bíó með Pétri á Liar Liar. Þegar við hlógum alla myndina en svo bara meira í fyndnu atriðunum.
Þá meina ég að við vorum með steddí rythma af mildum hlátri allan tímann en svo sprakk háværri hlátur út í fyndnu atriðunum.
Mæli eindregið með þessari mynd. Í raun fær hún 4,89 af 5. Stjörnuregn.
Sá úr Tron með Jeff Bridges. Pottþétt mynd sem maður fer á í bíó. Frágengið.
Sá úr Harry Potter. Fer líka pottþétt á hana. Hef gaman af stórmyndum þótt Potterinn sé nú soldið útvatnaður. Ég hef reyndar bara einu sinni sofnað í bíó og það var á Potter mynd. Vona að þessi verði betri en það.
Bloggar | Breytt 14.11.2010 kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2010 | 10:55
Vangefið fólk
Ætluðum í bíó í gær. Ætluðum á Gnarr. Keyptum okkur miða og komum okkur þægilega fyrir í miðju salsins. Svo urðum við vör við hróp og köll fyrir aftan okkur.
Kemur á daginn að þarna var kominn hópur af vangefnu fólki.
Sem hefði ekki verið neitt mál nema að hróp og köll eru ekki beint það skemmtilegasta til að hafa í bakgrunninum á bíómynd.
Einn gæjinn var beinlínis að öskra. Það kom auglýsing með Steinda Jr og gæjinn bara flippaði.
Við það var mér nóg boðið og ég stóð upp og sagði þessu vangefna fólki að stein halda kjafti. Nei djók. Við stóðum bara upp og fórum. Fengum að breyta miðanum og förum í kvöld.
Gnarr kl 20
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.11.2010 | 10:48
Rebel
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2010 | 13:58
vírd
Vorum í teiti í gærkvöldi þar sem Yngvi vinur Betu var með svona FatBooth dæmi í iPhone-inum sínum. Mæli með að fólk tékki á því. Hilarious stöff.
Þetta var í fyrsta sinn síðan blóðtappinn gerði vart við sig sem ég drekk eitthvað smá. Fékk mér um 5 glös af sex on the beach. Þetta var soldið skrýtið, ég fann á mér en ekki á venjulegan máta. Heldur eins og ég færi aftar í mixið.
Með því meina ég eins og í lagi, þá eru öll hljóðfæri mixuð saman. Gítar, bassi, trommur og söngur. Hljóðfærin eru svo mixuð saman og eitt er framar en annað og það heyrist meira í því fyrir vikið. Eins og kannski í mínu tilfelli þá mixa ég oftast gítarinn framar.
Allavega mér fannst eins og ég væri ekkert mikið fullur heldur bara aftar í mixinu.
Kannski svona eins og aðalpersónan í The Wall með Pink Floyd.
ps. mæli með að fólk fíli don´t stop believing með journey.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2010 | 13:49
Jeff Bridges
Mig dreymdi Jeff Bridges. Hann var að spila á gítar. Gítarinn var í laginu eins og Ísland. Álíka stór og hálft matarborð eða svo.
Þetta var í þætti, nokkurs konar morning show og Jeff var í keppni við einhvern um hvor væri fljótari, Jeff að spila á gítarinn eða einhver að keyra endilangt yfir usa. Jeff rétt vann!
Maður er farinn að halda að einhver sé að byrla mér eitthvað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.11.2010 | 12:44
Hvað raunverulega gerist inn í uppþvottavél
Þar sem ég sat og starði á uppþvottavélina eitt kvöldið, velti ég því fyrir mér hvernig í helvítinu diskarnir koma hreinir út. Ég meina, það skvettist bara smá vatn á þá með sápu. Ekkert nudd á sér stað. Hvernig nær vélin erfiðu blettunum?
Ég fór á youtube og skoðaði nokkur myndbönd. Ótrúlegt en satt þá er til fullt af myndböndum af því hvað gerist þarna inni. Ýmist tekið upp með vatnsheldri vél eða eitthvað álíka.
Öll myndböndin sýndu það sama. Bara vatn að skvettast.
Þangað til ég komst að því hvað raunverulega gerist þarna inni. TA TA TA DAMMMM!
Þetta er eitthvað sem engum nema þessum gæja hefur tekist að ná á mynd. Hann hlýtur að vera með eitthvað rosalegt zúmm á vélinni þessi. Þetta hlýtur að vera á micronano skalanum. Tékkit!
http://www.youtube.com/watch?v=XB9VE99fTsw#t=00m05s
Bloggar | Breytt 11.11.2010 kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.11.2010 | 12:44
crowd pleaser
Ég vildi að ég hefði einungis helming af hæfileikum þessa gítarsnillings. Þá væri ég sáttur. Enginn smá crowd pleaser þessi drengur.
Bloggar | Breytt 11.11.2010 kl. 19:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
skoðanakönnun
Djúkari
Af mbl.is
Íþróttir
- Dregið í Meistaradeildinni bein lýsing
- Grískur landsliðsmaður í Skagafjörðinn
- Dagur sá fyrsti í sögunni?
- Genoa búið að kaupa Mikael
- Þjálfari í bann fyrir að sparka í leikmann
- Risasigur LeBrons og félaga
- Þórir tjáði sig um árangur Íslands
- Dagur: Er alveg búinn á því
- Birkir ekki hættur enn
- Dagur flækir aldrei hlutina