Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Akureyrar Road trip

Fer á eftir til Akureyrar með Úlfari Jóns og Simma Má í bíl. Mætum galvaskir á nokkrum bílum og ætlum að rústa þessari keppni. Erum með leynivopn og allt.

Æfingarhringur seinni partinn á morgun og svo byrjar þessi þriggja daga sveitakeppni á föstudaginn. Held að það verði spilaðar 36 holur á föstu og laugardegi og svo 18 á sunnudegi.

Það eru ár og aldir síðan ég spilaði Jaðar síðast. Sennilega bara Mitshubishi mótið þegar ég var friggin NÚLL ára! Allavega finnst eins og það hafi liðið um fimm hundruð ár.

Hefði viljað fara í dag og taka tvo hringi fyrir mótið. En skipulagningin var ekki í mínum höndum. Ég mæti bara með góða skapið og sveifluna mína sem er núna gjörsamlega fan-tas-tísk. Kalt mat.

Finnst ég vera akkurat núna að ná því að hægja á henni og lengja. Og ráða við það. Vonandi er ég bara að toppa á réttum tíma í sumar.


Sergio Garcia

Ég fæ ekki nóg af þessum Sergio Garcia brandara.

Sem sagt, þá kom bróðir Maríu, Antonio hingað til Íslands í heimsókn með vini sínum Sergio Garcia. Algengt nafn á Spáni en menn reka í rogastans annars staðar í heiminum útaf golfaranum heimsfræga.

Ég og Sebas fórum í smá rúnt með þeim í dag. Sýndi þeim Þjóðminjasafnið, höfnina og miðbæinn. Tókum Bæjarins bestu á þetta við semí undirtektir.

Held að þeir hafi svo farið beint heim í almennilegan mat, ódýran bónuskeyptan dósamat.

Er núna á leiðinni á æfingu hjá Gkg sveitinni og mun skilja Sebas eftir hjá afa sínum. Gott að eiga góðan að.


æfingarleikur

GKG sveitin tók æfingarleik við GO uppí Oddfellow. Þetta voru sex leikir og við unnum 4 og hálfan á móti 1 og hálfum vinning.

Biggi L rústaði Guðna
Simmi vann
Guðjón Henning vann Klúbbmeistara GO
Haukur og Guðjón Ingi unnu tvímenning
Alfreð jafnaði sinn leik
Ég og Starkaður töpuðum 2&1

Ég og Starki byrjuðum vel og unnum fyrstu, jöfnuðum aðra braut en þeir stigu svo upp og tóku næstu fjórar á killer leikjarplani. Við tókum áttundu og vorum því tvo niður eftir níu.

Töpuðum elleftu en unnum þrettándu og fjórtándu og komnir í bara einn undir þegar fjórar voru eftir. Næstu tvær féllu en við töpuðum svo sautjándu og leiknum þar með 2&1.

Þetta var mjög gaman og góð æfing.

Svo er bara venjuleg æfing á morgun kl 17 og svo brunað norður á fimmtudeginum kl 8. Sharp.


Tech n9ne

Heiti laga hjá þessum manni eru misgáfuleg.

Poh Me Anutha myndi útleggjast pore me another (drink).
Party & Bullshit
Ghetto Love
Sorry n'shit

Klárlega maður með hlutina á hreinu.


White Lies

Henti inn lagi með White Lies sem kallast E.S.T. í djúkarann hér á hægri hönd.

Klárlega besta lag skífunar.

Fíla sirka helming lagana á skífunni þannig að þetta eru sirka 3 stjörnur.

Fjörið byrjar á 50 sek. fyrir óþolinmóða og springur svo út á sek 2:06 mæli með að hækkað sé verulega í græjunum á 2:27

Þannig að white lies eru fínir. Hinar grúppurnar sem ég var að tékka á eru ekki eins góðar. Metric áttu bara eitt gott lag. La Roux er samt fínt, eiga nokkur stuðlög.

Var annars að horfa á Home James í gær þar sem rapparinn Tech N9ne kom fram og í kjölfarið tékkaði ég á skífunni hans Sickology 101 sem er fín skemmtun.

Hef ekki hlustað á rapp síðan ómar hafði punghár. Þegar tónlist var tónlist.


Atburðir sem ekki eiga nöfn en gera það nú, part 2

Snitter(SNIT-er) = One of the rather unfunny newspaper clippings pinned to an office wall, the humor of which is supposed to derive from the fact that the headline contains a name similar to that of one of the occupants of the office.

Snitterby(SNIT-er-bee) = Someone who pins up snitters(see above).

Snitterfield(SNIT-er-feeld) = Office bulletin board on which snitters(see above), cards saying "You don´t have to be crazy to work here, but if you are, it helps!!!" and smutty postcards from Ibiza get pinned up by snitterbies(see above).

Southwick(SOWTH-wik)= A left handed wanker.

Smyrna(SMUR-nah) = The expression on the face of one whose joke has gone down rather well.

Shifnal(SHIF-nal) = An awkward shuffling walk caused by two or more people in a hurry accidentally getting in the same segment of a revolving door.

Totteridge(TOT-er-idj) = The ridiculous two-inch hunch that people adopt when arriving late for the theater in the vain hope that it will minimize either the embarrassment or the lack of visibility for the rest of the audience.

Douglas Adams


kaka

Það jafnast ekkert á við að snerta kúk í morgunsárið.

Var að skipta á bleyju og actual kúk-klessan datt úr bleyjunni á golfið. Ég tók hann upp með þurrku en vildi ekki betur til en svo að þumallinn stóð út fyrir og snerti kúkinn.

ummmmmmm Hressandi.

Í öðrum fréttum er það helst að ég er að fara ná í Sergio Garcia og vin hans út á flugvöll um kl 13

Það verður áhugavert.


Hlutir

Hlutir sem fengu mig til að hlæja í dag:

---Í Greatest american dog á skjá einum er desperatlí verið að reyna skapa spennu eða eitthvað til að hafa gaman af í þessum viðbjóðslega þætti. Sá auglýsingar klip þar sem það nýja var....."og þeir þurfa að skiptast á hundum" ooooohhhh...úúúúú.....aaaahhhhh.........þvílíkt og slíkt.

---Gamla fólkið á shoot out mótinu útá nesi með komment og útskýringar varðandi högg hjá kylfingunum. Mjög fyndið.

---Home James.

---Sebastian.


Shoot out komment

Fór og fylgdist með shoot out mótinu útá nesi. Það var ágæt skemmtun. Soldið þreytandi og löng en ágætt.

Björgvin Sigurbergs vann eftir bráðabana við Óla Lofts á níundu. Þar sem Óli vippaði í bönker en bjöggi sirka 3 mtr frá pinna.

Ég var ánægður með það. Bjöggi er algjör rokkari og á allt slíkt skilið.

Fyrstur til að detta út var Stebbi Már GR, svo Valdís GL, Signý GK, Heiðar GR, Steinn Baugur NK, Maggi Lár GKJ, Alfreð GKG, Guðmundur GS og svo Óli lofts NK.

Það sem mér fannst í raun skemmtilegast við að ganga þessar holur var að hlusta á fólkið tjá sig um höggin hjá strákunum. Merkilegt hve fólk telur sig vera instant sérfræðinga í nánast öllum hliðum golfsins án þess að hika.

Ef einhver klúðraði pútti þá voru samstundis komnar sex mismunandi skoðanir á því hvað fór úrskeiðis hjá kylfingnum. Og helst nógu hátt svo nærstaddir myndu örugglega heyra.

"þetta var niðurhallinn", "klárlega vanmetinn mótvindur" eða hið klassíska "Pjúra upplit".

Svo þegar þeir tóku upphafshöggin þá var nánast öruggt að það liði yfir allavega þrjár gamlar konur og 30% fólksins hló histerískum hlátri vegna þess að það hefur sjálft aldrei einu sinni farið jafn langt í sumarfrí og strákarnir dræva kúluna.

Ágæt skemmtun alveg hreint.

ps. það er á planinu hjá mér að vera í þessu móti eftir tvö ár.


bærinn

Fór í bæinn með strákunum í gær og það var stuð. Rétt fyrir það tók ég æfingar session, það besta hingað til síðan ég kom til landsins. Mjög jákvætt.

Allt bara í blóma hjá kjeppenum.

Svaf mest allan daginn í dag. Er núna einn með punginn þar sem ég sendi Maríu á djammið með sínum vinkonum. Hann fær sirka klukkutíma í viðbót og svo er það bólið. Honum til mikilla ama án efa.

Er annars að horfa á Tigerinn á Buick open. Vona að hann taki þetta mót. Nokkrar holur eftir og hann í góðri stöðu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband