Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

hreint

Það er komið á hreint að við ætlum að vera áfram á Íslandi í stað þess að fara aftur til Spánar.

María fékk vinnu eftir 20 mín (án djóks) og svo annað atvinnutilboð sem hún tók svo á endanum og byrjar 2.sept.

Ég er kominn í afrekshóp gkg og æfi undir leiðsögn þjálfara.

Þetta og fleira stuðlar að því að maður verði bara hér á landi. Kannski skýst ég eitthvað út í nokkrar vikur til að spila golf og halda mér við.

Ætla bara að finna mér pínu vinnu. Eitthvað einfalt og rólegt. Nenni ekki að fara aftur í bankavinnu. Eitthvað sem hentar vel með golfinu. Myndi vilja æfa sirka 3 tíma á dag þannig að eftirfarandi væri ideal.

boot camp 6:30-8:00
Vinna frá 9:00-15:00
Golf frá 16:00-19:00

Hugmyndir?


Gott veður

Hvaðan kom allt þetta góða veður í sumar? Dagurinn í dag var fáránlega góður.

Maður bara brýst út í söng nánast.

Hvað er annars málið með þetta Icesave......nei segi svona....hverjum er ekki drullusama. Ég horfi ekki einu sinni á fréttir. Nenni því ekki. Nenni ekki að vera áhyggjufullur og pæla eitthvað í peningum og slíku.

Er bara með fjölskyldunni og spila golf þess á milli. Eða var það öfugt?


golf

sáttur við að geta æft golf að vild að nýju. Tók 18 með Ginga (Guðjón Ingi) og vann keppann með lokapúttinu.

Tók svo stutta spilið í hraunkoti og skilaði 7 tíma golfdegi í hús.

Smá downtime núna og svo grill hjá Perlu þar sem öll stórfjölskyldan mætir.

Ég vænti þess að sjá borða fyrir utan húsið þar sem mér er fagnað sem íslandsmeistara. Svo gangi ég inn á rauðum dregli og loks leystur út með gjöfum.

Eitthvað minna væri skandall.

Reyndar er þetta hús svo vant því að hýsa íslandsmeistara að þau eru öllu vön. Bara í dansi ekki í golfi.


Sveibla

Fékk loksins golfdag í dag. María var með punginn og ég fór fyrst 18 með Ginga svo tveggja tíma sláttur undir leiðsögn Derrick Moore.

Þetta verður svipað á morgun nema ég fer sennilega í Hraunkotið eftir hringinn enda sæmilegir boltar þar í staðin fyrir hnullungana útí GKG.

Get ekki beðið með að byrja í Boot Camp. Kominn tími til að hlaða í byssurnar. Þarf samt að bíða þangað til í sept, eða þegar tímabilið klárast.


Nýjar myndir

Nýjar myndir komnar í albúm 23 í myndabloggi hér til vinstri.

Þetta er frá Íslandsmeisturunum og þeirri keppni.

Þeir sem ekki eru með lykilorð senda mér bara línu og ég þrykki því á viðkomandi með snatri.


Háttvirt prump

Ég var á klóstinu að vinna í tvisti þegar Sebas kveikir skyndilega á sjónvarpinu. Hann stillir á Alþingis stöðina og hækkar. Hleypur svo til mín og segir:

"koma svo, allir saman nú, syngja með"

Undir þessu talaði Háttvirtur viðbjóður Guðlaugur Þór Þórðarson.

Vírd


Sergio farinn

Ég skutlaði Antonio og Sergio Garcia útá völl í dag. Dvöl þeirra hér var ánægjuleg að sögn.

María er komin með annað atvinnutilboð. Hún mun taka því. Leikskólinn Vesturborg í vesturbænum sem bauð henni að byrja 2.sept

Það er fínt, þá getur hún hætt í Karen Millen og passað Sebas á meðan tímabilið er enn í fullum skrúða. Hefur verið mikið vesen því ég get ekkert æft sökum pössunar á pung.

Pabbi og mamma hafa passað mikið fyrir okkur og reddað mér svo ég geti tekið þátt á golf senunni.


Prump

Þar sem 10 manns koma saman , karlkyns, og dvelja í nokkra daga er óumflýjanlegt að nokkrir falla í valinn sökum prumpufýlu.

Þetta var hreint út sagt rosalegt.

Einn var sérstaklega duglegur, nefni enginn nöfn en við erum að tala um súrustu lykt sem ég hef fundið. Þar með talið allt sem frá Pétri hefur komið.


Íslandsmeistari!!!!!

Ég sný heim sem Íslandsmeistari frá Akureyri.

Þetta var ferð ferðanna. Þvílík skemmtun og læti. Frá upphafi til enda.

Við gistum á Glerá 2 sem er á leiðinni uppí hlíðarfjall. Ég var með Alfreð í herbergi í meistaraherberginu, þar sem við báðir erum núverandi meistarar, hann í GKG og ég í La Cala.

Við horfðum á Hangover fyrsta kvöldið, sem átti eftir að reynast mikilvægur partur í þessari uppskrift af velgengni.

Hún er svo fyndin og það eru svo margir frasar í henni sem við vorum að kvóta alla helgina okkur til mikillar kátínu. Þetta skapaði góðan móral í hópnum og samheldni sem hjálpaði til við að vinna þennan titil að mínu mati.

Það voru leiknar tvær rimmur á dag. Tveir klúbbar á dag sem sagt. Í hverri rimmu voru fimm leikir, einn fjórmenningur og fjórir singles.

Við unnum allar fokkin rimmurnar. Alla klúbbana. GR í úrslitum, GK, Gkj, Gs og Ga.

Við erum KLÁRLEGA besti hópur kylfinga á landinu þetta árið. Höfum unnið þetta núna þrisvar sinnum á sex árum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband