Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Ofmetið

Sennilega ofmetnasta plata nú í seinni tíð er Radiohead skífan In Rainbows.

Hef oft gefið henni tækifæri og bara skil ekki hvað fólk er að fíla þarna innan um þessi leiðindar surg hljóð og himingeima af nothingness.

Svo er Eraser, sólóplata Thom York, álíka leiðinleg.

Annað efni sem er ofmetið er t.d. allt moðerfokking allt með Depeche mode. Djöfull er það leiðinleg hljómsveit mar. Shíí-it.


Tech N9ne

Við María erum að fíla Tech N9ne í strimla. Eins og þruma úr heiðskíru lofti þá snertir þessi götu rappari einhverja taug í tónlistarsmekk okkar beggja.

Höfum bara hlustað á plötuna Sickology 101 þar sem flest lögin eru frambærileg.

Þetta er þægileg tónlist með smá húkkum.

What´s up in the brainhouse segi ég nú bara. Rap!!!!! hverjum hefði dottið það í hug.


kreditkort

Tók þátt í móti á gkg í dag. Spilaði ekkert spes fyrri níu en fann svo grúvið á seinni. Lenti í sjötta sæti.

Fékk loksins minn fyrsta fugl á fjórtándu. Jei.

Fór úr mótinu með mikið sjálfstraust þar sem ég finn að þetta er að smella eftir smá lægð.

Ætla til Grindavíkur á morgun að spila golf með Kötu systur og Alberti.


Moe Norman part 2

Tiger sagði að aðeins tveir menn í sögunni hafi átt sveifluna sína(owned their swing). Ben Hogan og svo Moe Norman.

Hans sveifla er einföld og auðveld í endurtekningu. Hann var besti strikerinn sem golfið hefur séð en varð aldrei jafn frægur og þessir legendary spilarar. Af hverju? Því hann var soldið spes. Ekki kannski sá auðveldasti að tala við og í umgengni.

úr vídeóinu að neðan:

"How many people trying to control it (golfkúlan). 50 million. Look at him laughing (er að tala um golfkúluna). come and get me. Nobody knows how."

"One guy in the world knows how. You´re looking at him. The only guy in the world who knows how to hit it dead straight everytime."

Það var sagt að hann hafi aldrei farið í golfkennslu. Hann var soldill þrjóskuhaus.

Einu sinni þá sagði kaddíinn hans að á næstu braut þá væri strategían að taka ás og skilja eftir níu járn til að slá inná grínið. Moe leit á kaddíinn með fyrirlitningu og sló níu járn af teignum og með ás í innáhögginu.

Önnur saga segir að í einu móti hafi hann leitt með þrem höggum þegar hann var kominn inn á síðustu flötina. Hann heyrist því segja að þetta sé ekki nógu spennandi. Hann púttar því næst kúlunni oní næsta bönker og segir að þetta sé þá loks orðið nógu krefjandi. Slær uppúr bönkernum nánast oní og tappar í til að vinna með einu höggi.

Hvar eru SVONA snillingar í dag?


högg

Tók fallegt högg í gær.

Var staddur á fjórtándu á gkg, 201mtr frá stöng og pinninn aftarlega vinstra megin á flöt. Annað höggið á þessari par 5 og ég vippaði upp blendingnum og sagði við strákana, "þetta verður högg dagsins, blendingur með 10% dragi, klíndur við pinna"

Ég miðaði hægra megin á flötina og fékk mitt 10% drag í fallegum vinstri sveig. Lenti fremst á gríni og endaði akkurat bakvið holuna sirka 20 cm frá barminum.

Tap-in örn sem var mikilvægur í þessari vicious holukeppni milli mín og Guðjóns Inga, sem tapaði holunni þrátt fyrir að fá tap-in fugl.

Var eina holu undir nánast allan tíman en jafnaði á sautjándu. Vann svo átjándu með eins og hálfs meters pútti, uppí móti með vinstri til hægri sveigju.

Það var ljúft.


fmylife.com

mæli með síðunni www.fmylife.com

Þar eru örsögur um óheppilega og skondna atburði sem fólk lendir í. Farið beint í Top FML listan, þar eru flottustu sögurnar.

Önnur síða er www.overheardinnewyork.com

hún er fín líka


Rónaprump

Fórum niðrí miðbæ á röltið. Sáum ýmislegt markvert þar.

Byrjuðum á þrem pulsum með öllu nema hráum á bæjarins bestu. Sáum róna prumpa sem var viðbjóðslegt. Keyptum TC & KK í eftirrétt í 1011. Röltum svo aðeins meira og sáum fullt af strætóum þar sem við sátum inní biðskýlinu sem Sebas finnst mjög spennandi.

Sebas hrasaði og datt. Haltraði soldið þangað til að ég gerði grín að honum þá hætti hann því.

Breyttum lögheimilinu.

Náðum í pinnúmer.

Komnir heim og Sebas þráast við að lúlla. Hann vill alltaf fá mig með til að rífa í hárið á mér eins og honum finnst róandi. Ég neita og segi honum bara að þegar hann vilji lúlla þá bíði rúmið eftir honum.

Hann er núna á síðustu og þykist ekki vera þreyttur. Litli pungsinn.


solo

Er með punginn í dag. Síðasti dagur Maríu hjá Karen Millen í dag. Samt getur hún alltaf haft það sem aukavinnu að sögn. Dag hér og þar. En aðalvinnan hennar verður Vesturborg.

Þannig að.....við erum bara að dúlla okkur.

Ætlum kannski að kíkja á Sordiack(sverri) og fara í leiðangur.

Í öðrum fréttum er það helst að ég skráði mig í mót á morgun. Opna Kreditkort mótið á gkg. Fín upphitun fyrir stigamótið á gkg helgina eftir.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband