Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

dey by dey

Tók 9 tíma session á þetta í dag.

Hraunkot frá 10 til 12
18 í leirdalnum í gale force vindi frá 12:15 til 16:15
Smá upphitun á æfingu frá 16:15 til 17:15
Æfing með strákunum frá 17:15 til 19:15 þar sem við spiluðum mýrina.

Gale force vindur í dag sem var mjög skemmtilegt. En erfitt.

Sló lengra með PW en 3 járni. Í gagnstæða átt reyndar. Sló 160mtr með pw í meðvindi en bara 155mtr með 3 járni í mótara.

Sló 145 með sand wedge. 302mtr upphafshögg á tólftu. Bara stuð.


Dauðlegur

Var vakinn af pungnum kl 8 í morgun. Náði samt að plata hann til að vekja Maríu og bögga hana í staðinn. Þannig náði ég í klukkutíma í viðbót undir sæng.

Var næstum dauður tvisvar á einni mínútu þar sem ég keyrði í hraunkotið. Kom að gulu ljósi og var sirka síðasti bíll til að ná yfir. Var að beygja til hægri á ljósunum en viti menn....það kom askvaðandi pallbíll af akreininni á móti og ætlaði að beygja inná sömu götu og ég (til vinstri frá honum séð).

Ég átti réttinn klárlega og hann átti að bíða að sjálfsögðu. Nei nei....hann bara hamrar stálið og ætlar bara inn í mig. Djöfull er fólk heimskt. Hvað...ætlaði hann bara að drepa mig eða....ógó pirraður yfir svona þroskaheftu fólki.

Ég snarstoppaði bara og þurfti meira að segja að bakka til baka því það var komið rautt ljós þegar svínið köttaði á mig.

Svo kom grænt ljós og ég bruna af stað. Eftir um 200 metra þá þarf ég að beygja upp til vinstri og stoppa umferð fyrir aftan mig. Ég gaf stefnuljósið tímanlega þar sem þetta er ekki það besta í gatnakerfinu.

Tek svo eftir bíl í baksýnisspeglinum sem er gjörsamlega að rippa upp malbikið og stefnir á mig á ljóshraða. Pikköpp bíll með kerru í eftirdragi. Hann var kominn á sirka 80 á bara um 200 metrum.

Hann tók ekki eftir að ég var stopp að bíða eftir að bílarnir á móti fari framhjá svo ég gæti beygt upp til vinstri. Finn svo bara vindhviðuna nánast þegar hann sikk sakkar framhjá mér. Á milli bílanna sem komu á akreininni á móti og mér. Hann þræddi nálaraugað og ég sá kerruna hendast til og frá.

Hálfviti. Við hefðum steindrepist.

En whatever.....allir sluppu og lífið hélt áfram.


Seríós

Skutluðum Maríu í strípur á rauðhettu og úlfinn. Við feðgarnir fórum þvínæst á rúntinn með Ensími í botni. Kíktum við hjá Sverri og lékum við hann.

Það er eitthvað við þetta Sverris nafn sem útlendingar og börn ná ekki að bera fram. Sebas kallar Sverri......wait for it.....Seríós.

Veit ekki af hverju. Ef eitthvað, ætti hann að kalla hann coco puffs, ef farið er útí þá sálma.

Tók svo 9 holur með mömmu og pabba. Spilaði í samræmi við gengið undanfarið. Ílla.

Hef bara ekki getað æft neitt að ráði og er eins og belja á svelli.

Mjög ósáttur. Mjög pirraður. En umfram allt. Mjög PIRRAÐUR.

Erum núna að fara kíkjá íbúð útá nesi. Þurfum nebbnilega að hypja okkur héðan í lok ágúst. Hefði fílað að vera hér lengur þar sem þetta er frábær staðsetning.

Þannig að ef einhver veit um íbúð til leigu, þá hóiði í mig.


BMX

Erum við að tala um að BMX diskurinn þeirra í Ensími sé ein besta skífa sem íslensk hljómsveit hefur sent frá sér!

10 laga diskur þar sem 3 eru ekki góð en hin eru frábær og nokkur þeirra meira að segja ske-nilld.

Var á leiðinni heim frá ma&pa eftir að Tígurinn tapaði og skellti þessum disk í bílinn. Þetta er 5 mín. leið en ég sá mig neyddan til að hlýða á öll lögin og taka því risa rúnt um höfuðborgarsvæðið til að hlusta á allann pakkann.

Annar diskur sem er snilld er fyrsti diskur SIGN. Rokkari dauðans með nokkrum af betri hörðu lögum íslands.

Nánar um þetta síðar.


Svínavík

Fór til Grindavíkur í morgun og spilaði völlinn þar með Kötu og Alberti. Hann er skemmtilegur. Ég var ekki að spila neitt glimmer golf. Horfði svo á LP tapa fyrsta leiknum í enska. Happy happy joy joy.

Er ekkert í sérstöku stuðskapi fyrir vikið.

Ætla að kíkja útí Hraunkot með Zordiack og vin hans til og slá nokkrum boltum. Koma svo við hjá ma&pa og horfa á Tígurinn klára síðasta stórmót sumarsins. Næsta stórmót verður ekki fyrr en eftir 8 mánuði. Bú friggin hú.

Hvað var málið annars með þennan viðbjóð sem þessi dómari var í LP leiknum. Dæmdi ekki tvö klár víti LP í hag síðla leiks og bætti svo þrem mín við en notaði sjálfur um mínútu af þeim tíma í að tefja leik. Er maðurinn hálfviti!

Afhýða svona menn samstundis.

ps. fór ekki inn í Grindavík, var bara á golfvellinum og var því ekki í smithættu á svínaflensu. Vona að ég fái þá aftur réttarstöðu boðlegs gests í heimahúsum húsfreyja útá granda er kenndur er við Reka.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 153452

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband