Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009
6.5.2009 | 21:06
Barca
Núna höfum við alvöru úrslitaleik í kortunum.
Tvö af þrem bestu liðum heims. Vantar bara LP þarna sem er í raun það næstbesta á eftir Barca.
Já, ég segi það enn og aftur, ekki vildi ég vera frá noregi og búa í london akkurat núna.
Barca með eitt skot á ramman og það var nóg. Það þarf ekkert meira.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.5.2009 | 20:49
Sannspár
Kallinn sannspár.
Steindautt 1-1
Þetta var rosalegt. Ég tók þá lélegu ákvörðun að horfa á leikinn á netinu með bar handan götunar.
Á mínútu 91 heyri ég brjáluð öskur og læti. Þá vissi ég að Barca hefði skorað. Ég þurfti að bíða í sirka 30 sek eftir að sjá svo markið.
Intense.
Þetta var rosalegt. Ég gat ekki öskrað útaf Sebas. Er enn að blása úr nösum eins og naut til að losa um spenning.
Réttlætinu fullnægt. Hið fallega vann hið ljóta.
En ég verð nú að segja að sá norski er örugglega ekkert sérstaklega vinsæll í London þessa stundina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2009 | 19:54
Valkostir!
Hver tók ákvarðanir fyrir hann síðastliðin ár?
Hver var svo vondur við hann og beindi honum á rangt líferni með dópneyslu?
Einhver annar en hann sjálfur?
Efast um það.
Ég hef voða litla samúð með svona mönnum.
Þetta er valfrjálst land og enginn annar en þú tekur ákvarðanir um hegðun þína og hvernig þú spilar úr spilunum. Það er enginn annar en þú sem ert ábyrgur.
![]() |
Ég á eftir að deyja hérna" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (38)
6.5.2009 | 19:41
Tónlist
Tónlistarsmekkur og almenn meðmæli meistarans vann þessa kosningu með einu atkvæði. Kom öllum á óvart nema þeim sem riggaði kosninguna.
Í tilefni þess þá kem ég hér með almenn meðmæli um tónlist.
Ekki lesa tónlistargagnrýni. Þetta er bara einn maður sem fílar eitt og annað ekki. Hefur ekkert með þinn smekk að gera. Eina leiðin er að brása netið og finna eitthvað sniðugt. Eða hlusta á útvarpið og vera mainstream nörd.
Talandi um að skjóta sig í fótinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2009 | 18:34
Barca
Er að setja mig í stellingar fyrir Elsa Fc - Barca
Hvernig getur Barca ekki skorað í leik! Þetta verður samt algert stalemate. Mjög erfiður leikur fyrir báða aðila.
Stál maskína sem spilar viðbjóðslega leiðinlegan og þurran effektískan varnarbolta á móti best spilandi fótboltaliði sögunar sem spilar fallegasta sóknarbolta ever.
Mín spá: 1-1
Barca fer áfram með marki frá etoo
FORCA BARCA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2009 | 16:05
Sebas Vampýrus
Sebas beit strák á leikskólanum í dag. Hann var skammaður eins og gefur að skilja og svo þegar við náðum í hann og okkur tjáð þetta þá leit hann mjög skömmustulega út.
Hann beit til blóðs. Enda mamma hans mikill aðdáandi Twilight bókanna.
Hann baðst strax afsökunar og gerði stórt knús og kyssti strákinn en skaðinn var skeður.
Francisco (Fran) mun hugsa sig tvisvar um áður en hann reynir að hrifsa leikfang af Sebastian í framtíðinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2009 | 16:00
Rosalegt
Þetta gengur ekki. Það er jafntefli í kosningunni. Lífið og Tónlistin með 11 atkvæði. Golfið með 10.
Kjörkassinn helst opinn þangað til að einn af þessum þremur vinnur. Vantar bara eitt eða tvö atkvæði. Golfið getur enn tekið þetta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2009 | 21:27
kosningar
Línur eru að skírast og líða fer að lokum þessara vísindalegu kosninga.
Hið daglega líf og tónlistin eru að berjast um þetta þegar 3 atkvæði eru ótalin. Heildarfjöldin er nefnilega hámarkaður við 40.
Lífið er með 11 atkvæði, tónlistin 10 og tæknilega getur golfið stolið þessu því þar eru 8 atkvæði talin.
Verður Golfið the dark horse? Eða heldur lífið velli?
Ps. verð að segja að ég er mjög sáttur við þá tvo sem kusu lolcats. Kudos.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2009 | 19:44
Heimskir Þulir
Eru menn þroskaheftir? Nei ég bara spyr. Það er einn þulur hérna á Antena 3 sem heldur að hann sé að vinna í útvarpi. Þessi gæji lýsir leikjum, eins og ars-manure í kvöld og er viðbjóðslega óþolandi.
Hann hangir alltaf í sömu tóntegundinni, hátt pitch, svona rétt eins og eitthvað mikilvægt sé að fara að gerast, sem það er ekki, og gjörsamlega lýsir öllu sem er að gerast á vellinum.
"Ronaldo fær boltan og gefur innanfótarspyrnu á carrick, Carrick lítur til vinstri, rekur við og sendir boltan svo aftur til whoever" og svo framvegis.
Hann getur tekið 10 mínútna syrpur sem er bara óskiljanlegt.
Veit hann ekki að við erum að horfa á þetta líka. Við sjáum alveg hvað er að gerast þarna inná vellinum. Djí sess kræst. Algjör óþarfi að actually lýsa því sem fram fer.
Þetta átti við í gamla daga í útvarpinu en ekki í dag. Núna á bara að ræða um leikinn við sérfræðinginn sem er með honum. Spá í hvað sé að gerast og spjalla fram og tilbaka um tæknilegu hliðar leiksins, okkur meðal jónunum til fróðleiks.
ps. það er hálfleikur og ég nenni ekki að horfa lengur á þennan weak ass leik. Þetta er svo patetico hjá Rassmönnunum í arsenal að engin skemmtun hlýst af. Þetta lið er svo veikt og brothætt að það er furða að það hangi í 4.sæti í deildinni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2009 | 17:55
Pay the Piper
Ég var svo ósáttur við Púttin mín að ég ákvað að prófa allskonar nýja hluti. Fyrir tveim dögum byrjaði ég að lengja afturstrokuna, pútta hægar, minnka þrýstinginn í gripinu mínu og pútta meira með öxlunum.
Virkar sem svín.
Ég átti það til að vera nervus yfir smá púttum og vera þá með stutta,hraða og jerky stroku. Sem er skólarbókar dæmi um hvað á ekki að gera. Ég vissi alveg af því, en ætlaði að láta það samt virka fyrir mig. Damn it. Hver stroka er individual for Pete sakes.
Loks gafst ég upp og hlustaði á fræðin sem segja, ofangreint.
Með því að lengja aðeins í afturstrokunni þá verður tempóið betra, jafnara. Ég sveifla svo aðeins hægar. og það allra mikilvægasta er að halda ekki svona fast um gripið. Já og svo hugsa ég "axlir" þegar ég pútta sem gerir að verkum að pendúllinn verður betri.
Prófaði það svo í dag á hringnum og hef sjaldan púttað fallegri púttum að undanskildum meistarahringnum mínum á La Cala í denn. Þegar ég setti allt í.
26 pútt í dag segir alla söguna og gott ef ég gef þessu ekki bara smá séns í viðbót.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar