Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Þrír undir pari í dag

Spilaði með Nicolas, Argentínska undrabarninu í dag. Hann var með 0 í forgjöf þegar hann var 16 ára. Hætti um skeið og er núna um 25 ára. Hann er með mjög náttúrulega sveiflu og hefur lítið fyrir lengdinni að virðist.

Við lögðum undir gegn minni betri samvisku.

Ég rústaði honum.

Hann tók náttúrulega Andres Romero stílinn á þetta og fékk bara 3 pör á fyrri níu. Tvo fugla og fjóra skolla. Paraði svo fimm í röð en svo skolli,skolli,dobbúl og loks par. Hann kom inn á +6 en var samt sáttur með sláttinn. Svona dettur þetta bara stundum hjá mönnum.

Ég hins vegar rippaði völlinn upp.

par,par,par,par,par,par,skolli,fugl,par = E
fugl,fugl,fugl,par,par,fugl,par,skolli,par = -3

Samtals -3 með 12/14 brautir, 12/18 grín og einungis 26 pútt.

Hvað var ég að gera öðruvísi í dag? Tvennt.

Í fyrsta lagi þá var ég að hitta innáhöggin nær stönginni (járnin heit)
Í öðru lagi þá var ég að pútta líkt og vindurinn

Fleira var það ekki gæskan.

Tók þarna 5 fugla í röð, byrjaði á áttundu, af 9 skiptum þá hef ég fengið 7 fugla þarna og tvö pör.

Á níundu sló ég svo í vatn í upphafshögginu en náði up&down frá 155 metrum, auðvelt par (samt bara þrjú högg, fugl með kúlunni).

Svo á tíundu var þetta frábært pútt fyrir fugli. Á elleftu náði ég hámarki innáhöggana þar sem ég setti 80 metra högg með 80% 54° 3 cm frá holubarmi.

Á Tólftu sló ég svo högg dagsins með blendingi 195 metra á par 3, þetta leit alltaf út eins og þetta ætlaði í holuna fyrir fyrsta ásnum á ferlinum. Fallegt 5% drag til vinstri, just the way I like it en kúlan rúllaði 3 metra yfir holuna, en ég setti fuglinn í sem smá sárabót.

Krækti svo fyrir fugli á næstu tveim holunum og fékk svo loks aftur fugl á fimmtándu.

Í raun gerði ég bara tvö kostleg mistök. Eitt pútt sem ég treysti ekki línunni og náði ekki parinu. Svo eitt flopp vipp sem var alltof stutt.

Pútterinn var heitur I tell thee.


jeiiiiiiiiiiii

LOLcats fékk atkvæði. hip hip, húrra. We salute you.

Þess ber að geta að með spanglishið, þegar þeir segja uán þá er það ekki "á" eins og á Íslandi heldur bara "a". En það er áhersla á þessu a-i.

Ég ætla að verja öllum deginum á Lauro golf og taka minnst 27 holur ef ég get.

Fer í bleikri vaffhálsmáls peysu, brúnum stuttbuxum með rauðu belti og Johan Edfors pottloki. Gerist það meira metro? Já, og svo er ég nýrakaður með Gillette.

Ég er svo latur við að raka mig að það er þvílíkur munur á því svæði og restinni af andlitinu. Svæðið er hvítt en allt í kring er ég tanaður.

Allir skeggvaxtar brandara frá kj og dinho vinsamlega afþakkaðir.


Spanglish

María er búin að vera á námskeiði, nokkurs konar business administration. Þetta er 6 mánaða námskeið þar sem farið er yfir það helsta, upplýsingatækni, bókhald, alþjóðasamskipti, stærðfræði og slíkt.

Núna eru þau í viðskiptaensku.

María kom heim með blað þar sem á eru tölustafirnir og bókstafirnir með spænskum framburði við hliðina á til að auðvelda nemandanum við að bera þetta fram.

PRICELESS

nokkur highlights

one-uán
three-zrii
four-fóar
five-faiv
Nine-náin
Twelve-tuelv
Thirteen-zertín
nineteen-naintiin
Thirty-zerti
ninety-nainti
One Hundred-uan jándred
one thousand-uan zausnd

Stafrófið
ei,bi,si,di,i,ef,yi,eich,ai,yei,quei,el,em,en,o,pi,kiu,ar,es,ti,iu,bfi,doboliu,ecs,guai,zet.

Og sögurnar af stelpunni sem er að kenna þeim enskuna eru snilldin ein. Hún er svo heimsk. Hún kann ekkert fokkin ensku. Ok, það er allt í lagi, enda ekki búist við öðru, EN hún er í svo mikilli vörn gagnvart því að það er hilarious.

Hún sagði bekknum að which væri wich, skólarbókar byrjenda mistök. Hún gat ekki stafað gossip (sem er vinsæll þáttur hérna hjá kvenkyninu). Hún lét bekkinn fá texta með lagi eftir Sting og þýddi hann svo fyrir þau, snarvitlaust. Heimskulega vitlaust. Svona svipað og ef maður myndi henda texta á altavista translator og hann myndi þýða það orð fyrir orð.

Og þetta bara á fyrsta degi.

Þetta er upphafið af gossentíð fyrir mig. Ekkert skemmtilegra en að heyra af fólki sem heldur að það sé meiriháttar en veit svo ekki rassagat. Munurinn á þannig fólki og mér t.d. er að ég hef ávallt í miklum heiðri að vera meðvitaður um að ég veit aðeins eitt, að ég veit ekki neitt. Og er fús til að viðurkenna það.

Svona týpur ríghalda í þennan falska sannleika og fara í vörn á heimsmælikvarða ef eitthvað er remotely gegn þeim.

....and so it begins


Snepill

Þvert á það sem bækur og gúrúar segja mér þá hefur mér ávallt fundist einfaldast að slá bara venjulega úr brautarglompu og torfufari.

Fræðin segja manni að setja boltan aftur í stöðuna og pönsa hann þegar maður er í torfufari. Ég segi hins vegar, fokkit, bara slá venjulega. Þetta hefur nánast engin áhrif á höggið. Þá er ég ekki að tala um heavy extreeme far heldur bara þessi venjulegu.

Með brautarglompu höggin þá er sagt að maður eigi að miða soldið til hægri því maður mun slá aðeins til vinstri. maður á að gera þetta og hitt og slíkt. Fokkit. Bara slá venjulegt högg. Eini munurinn er bara sá að maður verður að tékka á undirstöðunni.

Ef þetta er harður sandur þá er þetta bara venjulegt högg. Ef hins vegar þetta er mjúkur sandur þá grefur maður fæturna aðeins niður til að festa undirstöðuna betur. That´s it. Þá virkar þetta bara eins og að vera að slá hökk þar sem kúlan er nokkrum cm ofar en fætur. Og indeed þ.a.l. miða aðeins til hægri því ef kúlan er ofar en fætur þá eru meiri líkur á dragi en ekki.

Annað, í sandinum þá er munurinn líka sá að ef höggið er ekki framkvæmt vel, eða þetta er m.ö.o. soldið off hit þá verður það tífalt verra en venjulegt högg.

Oft er líka sagt að taka einni kylfu meira í sandinum. Það er rugl. Bara trída þetta sem normalt högg.

Þetta hefur allavega reynst mér þónokkuð vel.


Pixies

Annars er ég að reyna að ala hann upp á Pixies. Það er náttúrulega basic. Þetta er bara grunnur allra músík þreyfingar sem hann á eftir að fara í síðar meir.

Maður byrjar auðvitað á byrjuninni.

Svo skellir maður smá modest mouse, smashing pumpkins, Guns og likku á fóninn til að byggja við áhugann.

Um leið og eitthvað slíkt nemur eyrnasnepla hans þá ríkur hann í lúftgítar senur fyrir fullorðna. Svissar svo yfir í trommuslátt og endar sessionið á trompet hugleiðingum.

Hann er vel upp alinn þessi strákur.


Tissjú

Þrif mín á húsinu vöktu lukku hjá kvennpeningnum. Það kom samt ein athugasemd um aðferðafræðina við að þurrka af.

Hún var eitthvað að setja út á að ég hafi notað þurrkurnar hans Sebastians við að þurrka af. Þessar hálfblautu sem maður þrífur rassinn hans með.

Þær svínvirkuðu en voru greinilega ekki á sama standard og hennar aðferðir.

Svona er þetta bara.

Við pungarnir erum currently að prufukeyra Slipknot og éta pizzu yfir Mæju Bíflugu. Góð samsetning. Það er opið útá svalir og við gagnrýnum gangandi vegfarendur eftir því sem við á inn á milli. þeir eiga það skilið.

Ég skellti í pizzu eftir að hafa fengið leiðbeiningar um að gera pasta með túnfisk. Rebel.

Miklu einfaldara að koma bara við í Mercadona og kaupa eitt stykki á 2€.

Málið, eins og við segjum það, dautt.


Æsi

Þetta er orðið æsispennandi. Hið daglega líf og tónlistin heyja blóðuga baráttu um sigurinn en öllum að óvörum berjast golfið og nöldrið um fallsætið. Þvílík barátta. Þetta er virðingarvert.

11 kjósa hið daglega líf, 8 kjósa tónlistina og 5 hvor kjósa hitt.

LOLcatsið er út úr myndinni rétt eins og frjálslyndi, en það þýðir ekki að þeir munu gefast upp, rétt eins og frjálslyndi.

Sér einhver samlíkingu með þessari kosningu og nýafstaðinni kosningu á Íslandi? I do.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 153615

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband