Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009
14.12.2009 | 00:22
Miskússí
Bara ein nett færsla hérna til að róa fólk niður. Ég sem sagt gleymdi að pósta eitthvað í gær. My bad. Mér líður mjög ílla yfir því.
Er þetta upphafið að endinum spyr fólk sig!
Nei, segi ég.
Djúsí stöff to come.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2009 | 21:11
yeah, yes, ok, yeah BYE FERGUSON
Þetta er bara skandall. Það var gengið á rétt Manjú manna. Hann bjóst sem sagt við fjórum mín í viðbótartíma en fékk bara þrjár. Þetta er rosalegt alveg hreint.
Svo ég vitni í skáldið;
K.J.E.F.T.I.
![]() |
Ferguson óhress með uppbótartímann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.12.2009 | 20:30
Piss
í ljósi þess að sebas vaknaði kl 06:30 í morgun þá fer hann aðeins seinna að sofa í kvöld. Núna situr hann límdur við Shrek 2 og fílar asnann best.
Í öðrum fréttum er það helst að ég er að kenna honum að pissa í klóstið. Svo þegar ég fer sjálfur vill hann stundum fylgjast með til að læra þetta. Ég get ekki sagt nei við greyið strákinn, því hann er bara að nema þessa list.
Þá stendur hann í smá fjarlægð og hvetur mig áfram, rétt eins og ég geri þegar hann pissar.
,,duglegur papá, duglegur"
og svo my personal fav:
,,papá mucho piss, que grande"
Needless to say þá er ég farinn að læða mér á salernið í von um að hann verði þess ekki var. Frekar vandræðalegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2009 | 19:06
Dikita
Fór á Dikta í skífunni á laugarveginum. Þeir spiluðu nokkur lög. Þeir voru frammúrskarandi. Klárlega ein besta hljómsveit íslands í dag.
Þeir voru hressir og höfðu gaman af þessu. Leikgleðin skilaði sér til áhorfenda sem flýttu sér svo að kaupa diskinn og láta árita hann. Ég keypti hann á tonlist.is fyrir löngu. Enda töff.
Á heimleið brá mér heldur betur í brún. Það komu nokkur góð lög í útvarpinu í röð. Vanalega gerist það ekki að ég gúdderi útvarp í meira en 2-3 lög í röð án þess að jöggla stöðvum eða láta cd í tækið.
Nick Cave-where the wild roses grow
Temple of the dog-I´m going hungry
Pearl Jam-daughter
Queens of the stone age-No one knows
Blur-there´s no other way
Nokkuð gott retro stöff bara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.12.2009 | 14:03
Hissa
Pungurinn vaknaði öllum að óvörum kl 06:30 og lýsti því yfir að VIÐ BÁÐIR værum búnir að sofa. Ég var nú eitthvað ósammála þessari fullyrðingu en mótmæli mín máttu sín lítils gegn skælbrosandi engli sem var að fá í skóinn frá jólasveininum í fyrsta sinn.
Ég kynnti þetta jólasveina hoax fyrir honum og hann var frekar hissa. Hefði hann horft á næturvaktina þá hefði hann sagt ,,já sæll!". En þar sem hann sá hana ekki þá horfði hann bara á mig hissa og kinkaði kolli. Byrjaði svo bara að leika sér með bílinn og málið dautt.
Náðum samt smá lúr frá 9 til 10 og skelltum okkur svo í Ikea með ma&pa og erum nýkomin heim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2009 | 23:40
......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2009 | 21:40
Stekkjasaur
Er eitthvað meira pirrandi en Eivör! Það segir sitt að Mjási sperrir eyrun þegar hún syngur. Ég held að Brian Adams hafi akkurat verið að hugsa um eitthvað álíka skelfilegt þegar hann söng ,,waking up the neighbours" þarna um árið.
Sáum Wipeout, það var fínt.
Ég klikkaði að sjálfsögðu á að kynna fyrir Sebas ,,skóinn útí glugga" legendið. Núna á sem sagt fyrsti gaurinn að koma um nótt og gefa í skóinn.
Ég fór útí hagkaup og keypti einn formúlabíl, monstertrukk og svo einn speisaðan bíl. María var svo búin að kaupa eitthvað stöff í viðbót. Höfum næstu nætur pretty koveraðar.
Á morgun mun hann vakna og sjá Monstertrukk í skónum sínum. Ég mun gera eitthvað spectacle úr þessu svo hann viti um hvað málið snýst.
Ég held samt að hann verði nú aðallega bara svekktur þegar gjafirnar hætta. Vill pottþétt bara hafa þetta allar nætur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2009 | 18:20
Jólaskraut
Ein óskrifuð regla hérna sem ég hélt að allir vissu af. Bara svo það sé á hreinu þá er það nánast sakhæft að gefa eitthvað tengt jólunum í jólagjöf.
Eins og að gefa jólaskraut eða eitthvað þannig sem maður notar bara á jólunum.
Sumir hafa verið að gera sig líklega til að gerast brotlegir og eru þetta vinsamleg tilmæli til þeirra að hafa sig á mottunni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2009 | 18:17
Kaffi
Fórum í jólakaffi í leikskólan. Það var klárlega hápunktur sögu mankynsins as we know it. Ekki kannski frásögu færandi nema hvað..........
Sebastian var dúndraður niður í gólfið af einhverju foreldri, óviljandi klárlega, en samt. Maður er staddur á leikskóla og maður gáir að sér vitandi að það eru milljón lítil börn allt í kringum þig. Maður anar bara ekki áfram án þess að líta niður. IDIOT!
Ég var nett pirraður á þessum gæja. Sebas náttúrulega meiddi sig og varð sár. Ég þurfti að leita á náðir Péturs sem einnig var staddur þarna með sitt barn. Sebastian elskar Pétur og gott að nota hann sem comic relief, ekki ósvipað og ég geri hér á blogginu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar