Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Siggi Depp eða Al Siggínó?

Djöfull er ég feginn að bólan á nefinu sé farin. Ég var kallaður inn sem aukaleikari hjá Saga Film.

Mæting á morgun kl 7:30 á stað sem ég er samningsbundinn um að tjá mig ekki um. Verð allan daginn, eða til allavega 19 að sögn. Þarf að mæta jakkaklæddur því ég mun vera ungur lögfræðingur staddur í réttarsal með að markmiði að læra af réttarhöldunum.

Spennandi

Held ég mæti með Ipoddinn og góða bók. Segir ekki klisjan að þetta helvíti sé ekkert annað en eilíf bið á meðan fólkið á settinu komi öllu fyrir? Við leikararnir bíðum bara í okkar sér trailer að lesa góða bók.

Ég mun að sjálfsögðu krefjast þess að í mínum trailer verði allt hvítt, með hvítu m&m, hvítvín(5 ltr), öll nýja Puma golffata línan eins og hún leggur sig og albínó svertingi.

Hendi inn færslu um þetta verkefni annað kvöld


LET Úrtökumót

Ég þekki þrjár stelpur sem eru núna að keppa í úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna á La Manga á Spáni.

Jess Wilcox er mjög ung stelpa sem spilaði oft með okkur Gabriel á La Cala. Hún hefur svo sannarlega bætt sig þvílíkt mikið á þessum stutta tíma sem liðin er frá því að ég var úti. Eftir tvo hringi er hún einu höggi frá því að komast á mótaröðina! Sem er mindblowing miðað við að þrátt fyrir að hún væri góð þegar við spiluðum við hana, þá var hún miles away frá getu okkar Gabriels.

Frábært hjá henni miðað við hvað hún er ung.

Svo er þarna hún Monica frá Danmörku sem æfir mikið þarna niður frá. Ég æfði soldið með henni uppí Leadbetter Academíunni og útí Mijas golf. Hún er mjög góður kylfingur og er nýbúin að tjá sig um það á Facebook að hún fór hring uppá -10 þar sem hún fékk 10 fugla og 8 pör.

Henni gengur ekki vel. Hún lék fyrsta hringin á +10 og er rétt innan köttsins. Seinni hringurinn hennar á eftir að koma inn.

Heimasíða Monicu http://monicachristiansen.com/

Svo er það Mari Suursalu sú Eistneska. Hún er besti kylfingur Eista og spilaði með mér á Fischer Open. Svo var hún stundum á Mijas golf að æfa þegar ég var þarna. Hún er gjörsamlega að gera í brók. Hún á klárlega að vera mun betri en hinar stelpurnar tvær. Er mjög reynd og slíkt. Hún er á +12 eftir tvo hringi og er utan köttsins.

Heimasíða Mari http://www.marisuursalu.com/pages/et/avaleht.php

Gaman að sjá að fólk sem maður þekkir sé að reyna við drauminn.

ps. spurning um að fá sér svona kúl heimasíður, oh..wait...sir.blog.is!!!!!


Fituness

Fór í fitness próf hjá Úlla í gkg. Framför síðan fyrir mánuði síðan.

Fyrst náði ég 10 armbeygjum í boot camp. Svo 19 í fyrsta testinu hjá Úlla. Í dag náði ég 36 stekkjum.

Plankinn bættist pínu líka. Ekki mikið. Samt. Tók 1:10 sek síðast. Núna 1:15 sek!

Í coopers testinu hljóp ég síðast 2390m þar sem vantaði friggin 10 metra uppá að vera yfir meðallagi. Núna hljóp ég 2430m sem er yfir meðallagi.

Ekkert rekkord stöff, samt nokkuð ánægður miðað við lágmarks æfingar undanfarið.

Næsta test er um miðjan janúar.


Piparkökuhús

Mamma er að byggja piparkökuhús í fyrsta sinn. Hún er búin að byggja það upp skv ströngum leiðbeiningum.

Núna er hún að skreyta það, að sögn. Ég vill nú frekar meina að hún sé að hylja sprungur og ósamsíða veggi með hvítu gumsi og gúmmíböngsum.

Þetta lítur ágætlega út hjá henni.


Almúgur

Fyrir ofan hausinn á mér hangir dagatal. Þarna eru berrassaðir karlmenn. Mamma keypti þetta til styrktar Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Pabbi var ekki ánægður að sögn.

Mér finnst þetta frábært framtak og styð þá heilshugar, þó ég hafi nú ekki keypt dagatal.

Annað flott. Ikea. Stjórnendur Ikea eru að baka smákökur fyrir fólk sem labbar í búðinni þeirra. Ég fór þarna og spjallaði við þá. Át eina smáköku og tjáði þeim hve mér fyndist þetta flott framtak.

Ég er nefnilega þeirrar skoðunar að fólk fái ekki nógu mikið hrós nú til dags. Ég reyni eftir fremsta megni að koma því til skila eins oft og ég get.

Mér finnst oft vanta slatta af tjáningu á milli fólks. Ég t.d. spjalla við fólk á bensínstöðvum og slíkt.

Ég er klárlega maður almúgans. Maður verður að sinna því líka.


Taylor Made R9

Ég var staddur í Húsgagnahöllinni og ákvað því að heimsækja Hlyn, góðvin minn og félaga. Hann vinnur í Erninum golf.

Þar sem ég var kominn þangað þá spurðist ég fregna af ásnum mínum. Mínum heittelskaða R7 ltd sem ég saknaði svo mikið. Hann átti að vera rétt ókominn frá útt landinu.

Hann fór bakvið, eitthvað að athuga hvernig staðan væri á því máli. Kemur svo sposkur út með glænýjan ás, í pakkningunni, óverðmerktur og allt. Sjóðandi, rjúkandi heitur ás.

Í þokkabót var þetta R9, nýja kynslóðin af TM ásunum.

Ég nálgaðist Hlyn og þennan pakka, svífandi í einhverju móki. Svipað og senan í waynes world þegar hann sá stratocasterinn.

Svo réttir hann mér ásinn.

Ég rétti út faðminn og tek við gripnum.

A new ERA has begun.

Hann tjáir mér að þeir hafi sent þennan frá útlöndum því R7 væri ekki lengur í gangi.

Þetta er bittersweet því ég sakna nú enn fallega R7 ltd en ég er þokkalega sáttur við að fá R9 í staðin. Það eina er skaftið, í R7 var Matrix 5.5 xCon 60s eða 65s(man það ekki) en í R9 er Fujikura Motore 65s.

Annað skaft, held nú samt að það verði ekkert mál. Ég er ekkert öðruvísi en leikmaðurinn, nokkuð basic bara. Nú, ég get þá bara fokkin stillt hausinn og skaftið á milljón mismunandi vegu til að leiðrétta það.

Þakkir fá Rabbi og Hlynur í Erninum fyrir góða þjónustu. Og bannað að væla ef ég rústa ykkur næsta sumar sökum yfirburðar nákvæmni í teighöggum.


Sprög

Það er nokkuð ljóst að síðasta könnun er yfirstaðin. Þetta var rúst. Yfirgnæfandi meirihluti segir Hrækja. Svo nokkrir tuffa og skyrpa og einn djóker slummar.

Það er komin ný könnun. Þessi spurning mun koma til með að umturna því hvernig fólk hugsar í framtíðinni. Eftir þriðju heimstyrjöldina mun allt þurrkast út nema þessi spurning og fólk mun halda að þetta sé málið.

Ég býst við met þátttöku í þetta sinn. Ekki færri en sautján svör á no time.


fJóla hvað

Tók mér frí í eina viku frá hundredpushups.com en byrja í dag á fjórðu viku. Ekki seinna vænna því á morgun er test númer 2. Coopers test, planka test og armbeygjutest. Djöfull skal ég rústa kjúklingunum (meðaltalslega séð miðað við aldur að sjálfsögðu)......

En án djóks þá eru jólin að koma.

Ég er ekki búinn að kaupa eina jólagjöf. Ekki EINA. FRIGG!

It´s gonna be a lean mean christmas holiday for the dragon family.

Ps. er að vinna í nýrri könnun sem mun umturna netmenningunni eins og við þekkjum hana.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband