Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009
11.12.2009 | 13:28
Ved/tur
Mikið er yndislegt og umfram allt, fallegt veður úti.
Ekki gott fyrir Celestial Bestial lúkkið.
Ég, ma&pa förum í jólakaffi til Sebastians á leikskólann hans á eftir. Það verður stuð að sjá hann í sínu elementi.
Svo munum við pungarnir gista í lundinum í nótt. Það verður eflaust glatt á hjalla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2009 | 17:02
Mér hlakkar til. Allt annað er rugl
Er á leiðinni á æfingu útí hraunkoti. Eins og vanalega mæti ég snemma og fer síðastur. Djöfull er ég töff.
Spurning hvort maður geti eitthvað einbeitt sér miðað við það sem undan hefur á gengið. Fín æfing fyrir einbeitinguna.
Í öðrum fréttum er það helst að mig langar í itrip tæki. FM sendir sem maður tengir við ipoddinn og sendir tíðni í útvörp. Þannig getur maður hlustað á poddinn sinn í bílnum og bara í öllum útvörpum í nánd. Hann sökkar bara orku úr ipoddnum og þarf ekkert batterí né að hlaðast.iwannaiwannaiwannaiwanna.
Spurning bara um að byrja að gera jólagjafalistann sinn.
Fyrsta uppkast:
1.Itrip (verður að vera án battería og þurfa ekki að hlaðast)
2.Ævisögur (motley crue, keith richards)
3.Gjafabréf (golfbúð,kringlu,smáralind)
4.FairwayPro (http://img694.imageshack.us/img694/9414/pro1simple2large.jpg)
5.Frið á jörð
That´s about it folks!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2009 | 11:20
Ný könnun
Ég hef dregið hunda og katta könnunina í hlé. Það varð jafntefli fyrir utan að Pétur gall afhroð.
Dýrin fengu 8 atkvæði hvor en hitt dýrið bara 4. Sem er varnarsigur að sögn.
Það er komin ný könnun!
Ég segi tuffa en ekki skyrpa eins og sumir. Ég hélt að þetta væri basic. Að tuffa! En að sögn stendur einhver styr um þetta mál þrátt fyrir að orðið standi klárlega í íslensku orðabókinni.
Tuffa,skyrpa,hrækja,slumma og að slefa hratt!
Hvað segir þú?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.12.2009 | 10:52
Representing
Er búinn að finna mójóið aftur. Fékk insperíngu í gær þegar ég var í mat hjá Pedro og co þar sem ég fékk Sagna og hvítlauksbrauð. Melti það aðeins um kvöldið og svaf á því.
Gleymið plan B og bjóðið Plan C velkomið.
Plan C er modern en samt klassískt. Það storkar örlögunum en býður alla um leið velkomna inn í nýja öld hip & happening slikkness for my sickness.
Ég gef ykkur.............."Celestial Bestial" lúkkið.
Sjón er sögu ríkari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2009 | 18:00
kk kvk
Nýjasta stöffið hjá Sebas er að greina fólk í sundur eftir kyni. Strákur og stelpa. Oft erum við ekki sammála um nákvæmlega hver fellur undir hvorn flokkinn en við leysum það á endanum samt.
Í öðrum fréttum er það helst að ég er ekki alveg nógu ánægður með lúkkið sem Grjóni henti mér út með af hárgreiðslustofunni. Hefði jafnvel átt að fara í plan B. Brad pitt lúkkið.
Tek það mjög sennilega næst.
Enn aðrar fréttir herma að Billy Corgan og Jessica Simpson hafa skotið sér saman. Sennilega skrýtnasti samsoðningur seinni ára. Djúpt hugsandi listamaðurinn sem ávallt er kvalinn kominn með heimsku airhead ljóskuna sem veit ekkert en er fáránlega flott. Leathal blanda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2009 | 14:07
Völvan ÉG
Lagið hér að neðan eftir Billy Corgan er það fyrsta í röðinni af 44 yfir næstu tvö ár. Hann ætlar að gefa út lag á sirka 2-4 vikna fresti, fríkeypis á síðunni sinni og í lokin selja þetta svo í einhverjum pakka díl uppá söfnunargildið. Sá pakki á að heita Teargarden by Kaleidyscope. Töff.
Hvað hef ég verið að tala um síðastliðin 5 ár? hmmmm?
Kannski bara nákvæmlega þetta!
Ég hef verið að advókeita fyrir nákvæmlega þessari aðferð. Þetta er pæling sem Lennon var í. Að byrja bara að gefa út lag á viku fresti eða svo (2-4 vikur kannski skynsamlegra) og halda sig við það. Nokkurs konar industrial aðferð þar sem listamaðurinn er bara að gera konstant list.
Ekki ósvipað málurum. Þeir juggla ekki 12-15 málverk, dunda sér í þeim í 2-3 ár samtímis og klára þau svo á sama tíma og gefa út eins og um geisladisk væri að ræða. Meira kannski 1-3 í einu og klára hvert og eitt fyrir sig.
John Frusciante var með svipaða industrial hugmynd á sínum tíma. Hann gaf út 5-10 lög á nokkra mánaða fresti. Ekki eins en svipað, þar sem hann vildi koma stöffi konstant út til leikmannsins.
Plata,skífa,diskur og slíkt er bara úrelt fyrirbæri. Núna hlustum við bara á þetta lag frá lagi. Maður gerir playlista, mixdiska eða whatever. Safnar saman góðum lögum með mismunandi flytjendum, þrýstir á play með malibu leche í einni og flatböku í hinni.
ps. lagið a song for a son er samið um soninn sem hann eignaðist aldrei. Enda er hann barnlaus. Líka um samband hans við föður sinn, sem var ekkert spes.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2009 | 13:41
Smashing pumpkins með nýtt lag, A song for a son.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2009 | 13:23
gkg
Fór á æfingu í gær hjá gkg og men ó men hve tekið var á því. Ekkert eins og í boot camp en samt helvíti fínt stöff.
Svo er test næsta þriðjudag. Coopers test, planki og armbeygjur. Núna er ég orðinn þrítugur og færist upp um flokk. Þarf því ekki að hlaupa jafn langt til að falla í sama flokk og áður. Sem er frábært því ég held að ég muni hlaupa skemur en síðast sökum þjálfunarleysis undanfarnar vikur. Það hefur allt sínar skýringar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2009 | 21:42
R7 Ltd á leiðinni!
Skv áreiðanlegum heimildum er ný kylfa á leiðinni til landsins. Við erum að tala um að Taylor Made R7 Ltd 9.5 Monster svífi hér í lausu lofti rétt utan landsteina og iðar í grafítinu við að láta Íslandsmeistarann handleika sig.
Djöfull er ég ánægður.
Þetta var náttúrulega bara spurning um að fara réttar boðleiðir og málið fékk afgreiðslu. Smá hnökrar í upphafi en málið nú í öruggum höndum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2009 | 14:05
gúrka
Skutlaði mömmu útá þorlákshöfn í dag. Gjemsinn minn dó batterísdauða. Fátt annað markvert hefur skeð hingað til.
Fer á fitness æfingu með gkg strákunum á eftir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar