Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Kosningar

Í dag er kosningadagur mikill á Spáni. Kosið er á fjögurra ára fresti um ríkisstjórn og hefur Sósíalistaflokkurinn (PSOE) undir stjórn Zapatero(skósmiður) verið við völd undanfarinn ár.

Fyrstu tölur koma um kl 21 og þá ætti að sjást ágætlega hvort spánverjar vilja þessa aula áfram við stjórn eða hvort Partido Popular (sjálfstæðisflokkurinn þeirra) undir stjórn Mariano Rajoy komist loks til valda og taki aðeins til í þessu gallaða kerfi sem greyið spánverjar lifa við.

Það reyndar bendir allt til þess að Psoe haldi áfram þannig að jibbí fyrir þeim.

Þeir hafa m.a. reynt að semja við hryðjuverkasamtökin ETA sem að sjálfsögðu enginn gerir. Ef menn hafa lært eitthvað af Bruce Willis og co í hollywood þá veit maður að samningar við glæpamenn eru dauðadæmdir eins og sannaðist svo síðar meir þegar það kom í bakið á þeim. Psoe baðst loks afsökunar á því, sem segir allt sem segja þarf.

Anyways....kosningarvaka í kvöld.....segi svona....horfi frekar á Family guy eða vegg.


Skuggamæling

Ég hef aldrei skilið af hverju hiti er alltaf mældur í skugga. Nennir einhver að segja mér það?

Þegar ég er úti að labba, í golfi, að gera whatever þá er ég 80% af tímanum í sól og kannski 20% í skugga.

Ég vill þess vegna vita hvernig hitastigið er í sól ekki skugga.

Hver er tilgangurinn að mæla hita í skugga?

Sólin skín á mig. Á húðina mína. Á hárið mitt. Ég vill vita hve heitt það verður.

ps. hvað þýðir svo ,,16° hiti í forsælu"......for-sæla.....er það rétt áður en maður er sæll. Nokkurs konar pre-sæla?


Nýjar Myndir í nýju albúmi númer 6

Vek athygli á nýjum myndum þar sem m.a. var farið á ströndina í morgun í Cala de Mijas. Í dag var nefnilega heitt (27 gráður mældust á kerrunni).

Svo er samtýningur frá öðrum dögum.


Húrra

Fór á vigtina í morgun og sá að 14 kg eru farin frá því að ég kom til Spánar. Það er jákvætt.

Húrra fyrir mér. Ég er hetja.


Stofnun

Instituto á spænsku þýðir menntaskóli á íslensku sem þýðir college á ensku.

Institution á ensku þýðir stofnun á íslensku, oft notað yfir hæli eins og geðveikrahæli.

Eins og áður hefur komið fram þá rygða ég og ryðga í ensku þrátt fyrir mikið enskutal.

Ég var að spjalla við Hollendingana og þeir voru að spurja um allskonar efni. Ég var að segja þeim frá menntunarkerfinu á Íslandi og hvernig mín skólaganga var. Hvernig ég hætti í golfi þegar ég varð táningur og fór í menntaskólann.

SIR: Yes, I had to quit golf while I went to an institution

Hollendingur: What, you went to an institution

SIR: yes, no, I mean to college. doh.


7

Í gær spilaði ég með þýskum hjónum sem voru ágæt, gæji sem vann hjá IBM í 28 ár og á núna sitt eigið IT fyrirtæki. Eiga hús í Marbella. Ka-ching.

Ég spilaði hræðilega. Einn versti hringurinn minn hérna úti á Spáni. Sem er frekar skrítið því ég var í buggy númer 7 sem er mín happatala (maría kom til Íslands 7.7,giftum okkur 7.7 ári síðar og svo aftur á spáni ári síðar þann 7.7).

Svo í dag þegar ég spilaði þennan súperhring þá var ég, merkilegt nokk, aftur í buggy nr. 7

Það eru ekki nema ca 100 buggy bílar hérna í La Cala. Þannig að þetta var ágætis tilviljun.

anyways.... í dag var allavegana góður dagur á alla kanta.

Það er greinilega að borga sig að vera duglegur á range-inu með ásinn. Hann er lykillinn að velgengi. Að mér gangi vel. Velgangandi. Gangi mér vel. Kex. Bless.

 


Hringur

Fór Evrópu með tveim meðspilurum frá Hollandi. Einn var læknir og annar millistjórnandi. Mjög fínir gæjar með 7 og 12 í forgjöf.

Ég spilaði þrusuvel. Sennilega einn besti golfhringurinn hérna úti. Lykillinn var ásinn þar sem ég hitti 12 af 13 brautum (restin par 3 sem teljast ekki með, hefði annars verið 15 af 18).

31 pútt og 3 yfir par.

Par-par-par-DOBBÚL-par-par-par-par-par seinni níu voru par-par-par-par-skolli-par-skolli-fugl-par.

Á einn vegin var ég glaður með þennan para fjölda. En á hinn bogin ekki sáttur við að missa svona mörg fuglapútt. 14 pör-1 fugl-2 skollar og 1 dobbúl.

Átti drive uppá 340m og 310. Á þessum sömu brautum og áður. Það er ekki það að ég sé long hitter. Brautirnar bjóða bara svo uppá þetta.

ps. þessi helv....dobbúl kom útaf því að ég ætlaði að spila seif og tók upp 5 járn af teig sem ég shankaði uppí skóg. Víti. Þetta var náttúrulega par á seinni boltann. En ekki hvað.

 


Árekstur

Ég fór á kránna til að horfa á leikina núna í vikunni. Ég lagði bílnum við fjölfarna götu og ætlaði að fara yfir götuna. Ég stoppaði á gangbrautinni og sá 3 bíla koma á ágætri ferð og bjóst þess vegna ekki við að þeir myndu stoppa fyrir mér. Fyrsti bíllinn gerði það ekki en þegar hann fór framhjá þá sér annar bíllinn mig (það var myrkur) og snarstoppar. Hann stoppaði mjög harkalega og þriðji bíllinn var of nálægt honum og klessti aftan á hann.

Þetta var nokkuð mikið högg. Spánverjinn í öðrum bílnum rýkur út og gengur að þriðja bílnum sem eru enskumælandi. Hann þykist eitthvað vera óánægður og spyr á bjagaðri ensku akkuru gæinn hafi verið svona nálægt sér. Hinn gæinn var bara rólegur, svarar ekki og skoðar skemmdirnar.

Gæinn í öðrum bílnum var náttúrulega að keyra of hratt, þetta var gata þar sem 30 eða 50 er hámarkshraði. Svo var þriðji bíllinn allt of nálægt hinum. Þannig að þeir voru báðir valdir af þessu slysi eins og ég sé þetta.

Ég labbaði þvínæst í mestu makindum yfir gangbrautina og málið dautt af minni hálfu. Sá ekkert meira af þessu þar sem ég átti stefnumót við Liverpool.

Árekstur sökum þess að ég vildi fara yfir götuna. Svona er lífið. The show must go on.


Skuggi dauðans

Ég var á klósettinu þegar ég heyrði María hrópa upp yfir sig líkt og maður sér í kvikmyndunum. Mér brá en gat ekki hreyft mig því ég var önnum kafinn við að hrókera. Maria kemur á fleygiferð framhjá baðherbergishurðinni líkt og hún hafi séð draug.

Ég er fljótur að spurja hvað væri í gangi og hefði betur sleppt því. María tjáir mér með angistarröddu að inní svefnherbergi sé einhver padda sem hræðir úr henni líftóruna. María er Spánverji og ýmsu vön þegar kemur að pöddum og skriðdýrum af þessu tagi. Þess vegna byrja ég að svitna. Því ég veit að ef María hræðist eitthvað þá hlýtur að vera góð ástæða fyrir því.

María segir mér að dýrið sé inní buxunum hennar sem liggja á rúminu og er íllviðráðanlegt sökum ógeðslegs útlits og almenns viðbjóðar.

Þar sem ég sit á setunni magnast spennan inní mér því ég hef víst fengið það skemmtilega hlutverk að ganga frá dýrinu. Ég lít út um hurðina og finnst mér sjá eins og það bæri á skugga frá svefnherberginu. Skuggi dauðans. Biðin er löng því mínútur verða að dögum og dagar að vikum. Þegar ég loks geng frá mínum málum og kveð páfann byrja ég að mjaka mér hægt og rólega að hurðinni en hrekk strax til baka því frá dýrinu heyrist nú surg og önnur ólýsanleg hljóð.

Ég feta mig loks inn í herbergið vopnaður klósettpappír og hamar. Ég sé skugga dýrsins koma snöggt yfir vegginn og svitinn byrjar að perlast niður ennið. Þetta gengur ekki lengur og ég rikki buxunum upp og þá sé ég það.

Ímyndið ykkur fisk. Þessi fiskur er með 36 fíngerðar lappir og tvo viðbjóðslega fálma. Þannig var paddan. Þrátt fyrir að fiskurinn hafi ekki verið stærri en nöglin á mér þá var þetta ekki góð lífsreynsla sem á örugglega eftir að skilja eftir ör á sálinni.

Svona getur ímyndunaraflið hlaupið með mann í gönur á morgnanna.


Enski indverjinn

Ég fór á kránna til að horfa á Liverpool bursta West Ham 4-0

Við hliðina á mér sat enskur Indverji sem erfitt var að skilja sökum hávaða og hreims. Við urðum góðir félagar enda báðir púllarar. Við fylgdumst með þrem leikjum í einu á þrem mismundandi skjám. Við skiptum liði, ég og Indverjinn. Ég var staðsettur þannig að ég gat séð Roma vinna Real, báðir sáum við Liverpool leikinn en hann sá svo Chelsea vinna sinn leik. Það voru stöðugar uppfærslur hjá okkur, einhver skaut í stöng, þá var skorað í öðrum leik og alltaf gáfum við skýrslu um hvað hefði gerst.

Svo þegar ég var með augun á Roma-Real þá heyri ég Indverjan skyndilega segja hey, they are on Crouch control now. Þá leit ég á skjáinn, viti menn, Peter Crouch kominn inn á. Indverjinn skælbrosandi og beið eftir viðbrögðum frá mér eftir þennan histeríska brandara (cruise control, jú nó).

Ég glotti í annað og var hugsað til Péturs vinar míns og hvað hann myndi segja við slíku púllara kommenti.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 153605

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband