Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008
5.3.2008 | 11:33
Reglur kallana
Loksins, hlið karlmanna á hlutunum. ÞETTA ERU OKKAR REGLUR. ( þar sem þær eru allar jafnmikilvægar, þá eru þær allar númer 1)
1. Í guðana bænum reyndu að læra á þessa blessuðu klósettsetu. Þú ert stór stelpa. Ef hún er uppi, settu hana þá niður. Við þurfum hana uppi, þið niðri. Ekki heyriru okkur kvarta yfir því að hún sé niðri...
1. Já eða Nei eru alveg fullkomlega ásættanleg svör við flestum spurningum.
1. Hausverkur sem endist í marga mánuði, jafnvel ár er vandarmál. Farðu til læknis kona.
1. Ef þið haldið að þið séuð feitar, þá eruð þið örugglega bara feitar. Hættið að spyrja okkur að því
1. Ef ykkur liggur eitthvað á hjarta, eða þurfið að segja eitthvað, gerið þið það þá í auglýsingahléum.
1. Ef okkur klæjar einhversstaðar, þá klórum við okkur. Þetta er bara svo einfalt.
1. Ef við spyrjum ykkur hvort eitthvað sé að og þið segið, nei, það er ekkert að. Þá látum við sem það sé ekkert að, ég meina auðvitað vitum við að þið séuð að ljúga. Það er bara ekki þess virði
1. Ekki spyrja okkur hvað við séum að hugsa nema þið séuð tilbúnar að tala um fótbolta, bíla eða hvað fréttakellingin sé flott
1. Þið eigið of mikið af fötum
1. Þið eigið of mikið af skóm, hvað haldið þið eigilega að þið séuð með margar lappir
1. Ég er í formi, hringur er form
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2008 | 11:15
Smásaga fyrir Kötu
Einn föstudaginn þurfti ég að taka rútu hérna á Spáni og ég skellti mér á aðal biðstöðina.
Ég áttaði mig á því að ég hafði misreiknað mig aðeins og var staddur þarna ca 45 mín of snemma. Það var í sjálfum sér í fína lagi því ég var svo sem ekkert að stressa mig á neinu. ég keypti mér dagblað og kexpakka og settist svo niður á eina borðið sem var smuga að setjast á, því þetta var nefnilega einn af þeim dögum sem allir voru á ferðalagi og biðstöðin var pökkuð af fólki.
Á móti mér sat virðulegur maður í fínum jakkafötum með hatt sem einnig var að bíða eftir rútunni sinni. Ég byrjaði að lesa blaðið í mestu makindum en þá gerðist soldið sem umsvifalaust greip athygli mína, maðurinn á móti mér opnaði kexpakkann og fékk sér eina kexköku.
Ég er mjög einfaldur maður og vill helst ekki raska rónni að óþörfu, þess vegna gerði ég það sem allir heilvita menn hefðu gert í þessari stöðu, ekki neitt. ég ákvað að minnast ekkert á þetta því það hefði bara orðið óbærilega vandræðalegt bæði fyrir virðulega manninn og mig.
Núna var engin leið að einbeita sér að blaðinu og maðurinn hafði athygli mína alla,
ég ákvað að reyna sýna honum að kexpakkinn væri MINN með því að fá mér eina kexköku. Um leið og ég stakk henni upp í mig, rétti virðulegi maðurinn út hendina, og fékk sér LÍKA eina, og um leið gjóaði hann augunum að mér.
Svona gekk þetta alveg þangað til að við kláruðum pakkann, þá stóð maðurinn upp og gekk í burtu og um leið gjóaði hann augunum að mér frekari vandræðislega.
Ég gat ekki beðið eftir að segja e-m frá þessu hræðilega atviki þar sem e-r gerðist svo ósvífinn að klára kexpakkann minn án þess einu sinni að spyrja hvort hann mætti fá sér. díses.
Loks var kominn tími á rútuna mína og ég greip blaðið og ætlaði að standa upp. En þar sem ég stóð upp rak ég augun í kexpakkann minn undir húfunni minni ósnertann og óopnaðann. Það var þá ÉG sem hafði verið að seilast í annara manna kexpakka eftir allt saman.
Það sem er hræðilegast við þessa sögu er að þarna einhversstaðar úti er virðulegur maður með nákvæmlega sömu sögu, nema að honum vantar endinn á hana.
Þessi saga á sér ekki hliðstæðu í raunveruleikanum, en hún er samt fyndin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.3.2008 | 07:13
Hvasst
Hér er þrusu hvasst í augnablikinu.
Litli var erfiður í nótt og kórónaði það með því að vilja vakna kl 7. Klukkutíma fyrr en vanalega. the nerves.
Ég er búinn að skrá mig á mótaröð sem heitir Fischer Open. (www.fischeropen.com)
Næsta tímabil byrjar í maí og ætla ég bara að kíkja á þetta. Þetta er í raun tækifæri til að tékka á þessum flottu völlum hérna í kring fyrir ágætt verð. Einnig er fínt að fá smá mótareynslu. Þetta eru 12 mót á ári, eitt í mánuði. Innifalið í verðinu er greenfee, shared buggy, morgunmatur, hádegismatur, veitingar á velli og kokteill við verðlaunaafhendingu.
Svo fær maður nýjan Mercedes SLK ef maður fer holu í höggi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.3.2008 | 12:19
Þrep
Sebastian datt niður þrep á gólfinu og lenti á kinninni. Vörin skarst soldið og öxlin á Maríu var alrauð eftir að hafa huggað hann. Þetta leit ver út en það var í raun. Vörin er núna soldið bólgin, ekki mikið, en maður sér smá bungu.
Núna er hann samt hress og sprækur sem lækur. Okkur brá samt frekar mikið.
Hann er nefnilega vanur að taka sprettinn úr stofunni, upp 2 þrep og inní eitthvað af herbergjunum. En svo vandaðist málið þegar átti að fara niður þrepin. Það er greinilega aðeins flóknara.
Í öðrum fréttum er það helst að Sebastian er byrjaður að apa soldið eftir okkur. Hinum ýmsu hljóðum og orðum, samt ekki byrjaður að segja neitt annað en kannski, datt, mama, papa og dogilidogili.
Einnig er hann snöggur að eigna sér allar fjarstýringar sem hann sér í 50m radíus. Hann fer ávallt strax að rót vandans og opnar batteríhulstrið og reynir að taka batteríð út. Útaf því erum við aðallega að horfa á eina rás allt kvöldið þar sem við nennum ekki að standa upp og skipta um rás því við að sjálfsögðu fjarlægum ávallt batterín úr fjarstýringunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.3.2008 | 21:29
Heitur dagur
Í dag var heitur dagur og var ég alveg búinn á því í lokin.
Fór á range-ið kl 10 til 12:30
Fór svo hring með Gabriel á Ameríku. Hann hafði tekið þátt í móti á laugardaginn og spilað á +1 og lækkað sig úr 3.7 í 3.5. Sem sagt heitur.
Ég vann fyrri 9 en hann seinni. Þannig að ég er nokkuð sáttur bara. Spilamennskan var ágæt en ekkert brill. En mikið tók maður eftir því hve þrekið var orðið lítið í lokin sökum hita. Sérstaklega því ég fór ekki heim í mat og át í staðin eina samloku á vellinum og ætlaði að reiða mig á prótínsheikinn minn góða sem fyllingu. Ég hellti náttúrulega helmingnum af sheiknum niður á settið og kylfurnar sökum vangefins loks sem opnaðist upp úr þurru og hafði þannig litla næringu með mér.
Ég þurfti að þrífa allt settið en það lyktar samt ennþá af jarðaberasheik. Sem er kannski bara allt í lagi. Betra en járnfíla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.3.2008 | 19:29
Gullmolar
Ég var að kíkjá gamlar færslur sem ég hef látið eftir mig liggja hér á blogginu.
Þetta eru náttúrlega bara perlur og gullmolar.
Segi svona.
Ótrúlega mikið sem við höfum gengið í gegnum á þessum 3 mánuðum. Mér líður eins og þetta hafi verið ca 2 ár.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2008 | 18:14
Traffík
Við fórum í sunnudagsmatinn til tengdó í dag. Fórum svo á röltið eftir á í Alhaurin de la Torre og komum við á leikgarði aldraða. Mjög sniðugt. Í staðinn fyrir að hafa leikgarð fyrir börn þá eru leiktæki fyrir aldraða sem æfa hinar ýmsu hreyfingar eins og sést á myndunum sem ég var að skella inn í myndir 5, nýja albúmið.
Reyndar eru 4 leikgarðir í kring fyrir börn þannig að þetta var alveg tilvalin breyting
Svo keyrðum við heim á leið ca 17:30 og umferðin á móti okkur var þvílík að ég hef aldrei séð annað eins. Sem betur fer vorum við ekki á leið inn í Málaga því það hefði þýtt fleiri, fleiri klukkutíma bið. Ég mældi bílalestina í Google earth og var hún um 16 km löng, Á ÞREM AKREINUM.
Það samsvarar frá Reykjarvíkurtjörn að Mosfellsbæ. En þar sem þetta var á þrem akreinum þá má segja að þetta hafi verið í raun frá Reykjarvíkurtjörn alveg til Akranes. kreisí
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.3.2008 | 14:58
Kata
Það rifjaðist upp fyrir mér þegar við fjölskyldan máluðum húsið á Hlíðarbraut 13 hvítt (var áður grænt, já grænt).
Kata var einhverstaðar að mála í makindum með vasadiskóið sitt en ég fékk það hlutverk að háhþrýstidæla þakið og var það með eindæmum leiðinlegt. Ég entist náttúrulega ekki lengi í því og klifraði niður til að væla í pabba um hve ömurlegt það væri.
Pabbi er alltaf svo sniðugur og við vorum enn það ung að það var hægt að plata okkur. Hann sagði mér því að fara til Kötu og segja henni hve yndislega skemmtilegt það væri að háþrýstidæla þakið og að hún fengi sko aldrei að prófa það því ég væri í því hlutverki.
Kata er náttúrulega svo forvitin að þetta vakti umsvifalaust athygli hennar og bað hún mig vinsamlega um að skipta. Ég svaraði því náttúrulega neitandi og sneri við með glampann í augunum því þetta virtist ætla að virka. Kata fór þá til pabba og klagaði í hann um hve ósanngjarn ég væri. Ég lét loks hikandi undan með mótmælum og leyfði henni að galla sig upp og klifra uppá þak.
Ég og pabbi biðum flissandi niðri og fórum að mála á meðan Kata greyið stritaði við háþrýstidæluna.
Pabbarnir eru alltaf svo sniðugir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.3.2008 | 14:44
Kastali
Fórum á rúntinn í morgun og tékkuðum á götumarkaðinum í Cala de mijas. Ég fjárfesti í 3 polo/golf bolum á 10.
Fórum svo í skoðunarferð í kastalann í Fuengirola, ekki mikið að sjá nema þá helst þennan kastala sem þarna var í miðjunni uppá hæð.
Við vorum að labba á ströndinni með Sebastian sofandi í vagninum þegar klikkuð kona byrjar að hrópa fúkyrðum og random setningum út í loftið. Eitthvað á þá leið að hún væri hætt að hjálpa öðrum og henni leiddist almennt í lífinun, hún virtist mjög reið og ógnandi. Mér hefði alveg verið sama að öllu jöfnu en hún byrjaði akkurat að öskra við hliðiná vagninum hans Seba. Það pirraði mig. Þegar við horfðum á hana af undrun (ég hélt að hún væri að grínast með þetta) þá beindi hún öskrunum og athugasemdunum að okkur. Ég kreppti hnefann just in case og var tilbúinn í allt. Hefði hún snert vagninn væri hún ekki lengur öskrandi thats for sure.
Svona er þetta í útlandinu, mikið af rugludöllum. Best að halda sig bara heima og blogga eða eitthvað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Bókalistinn
-
: The Dirt -
: How to make love like a porn star -
The Meaning of Liff
: -
The Ultimate Hitchhiker's Guide to the Galaxy
: -
I Hope They Serve Beer In Hell
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 153605
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar