Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

WWW.CASIOFATSO.COM

WWW.CASIOFATSO.COM

 

WWW.CASIOFATSO.COM

 

WWW.CASIOFATSO.COM

 

WWW.CASIOFATSO.COM

 

WWW.CASIOFATSO.COM 


Fetlaborð SIR

Hér gefur að líta fetlaborðið mitt í dag.

19.11.12 Fetlaborð

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Er reyndar búinn að losa mig við Digitech Whammy en annars er þetta up to date.

Epiphone Les Paul Standard - Ernie Ball Volume jnr sem tengist aukalega út í Polytuner Mini.

Ernie Ball - Boss PW-2 - Digitech Bad Monkey - TC Electronic Nova Drive - Zoom G3 - Peavey Classic 50

 

Ernie Ball nota ég lítið og er jafnvel að pæla í að losa mig við hann.

Svo eru PW-2/Bad Monkey/Nova Drive allt bjögunarfetlar. Ég tek bjögun seriously!

Gæti hugsanlega fækkað þar. Nýbúinn að fá mér Nova Drive og þarf að fikta betur í honum. Ef ég finn í honum svipuð hljóð og PW og Monkey framkalla þá get ég losað þá. Enn snyrtilegra.

Hef notað Bad Monkey í venjulegt rokksánd. Svo PW með honum til að fá út í þykkt hunangs fuzz sánd. Nota PW aldrei einan og sér.

Þessi Nova Drive er analog bjögun með tveim rásum sem ég get líka stakkað oná hvora aðra. Þannig að ég get notað 4 mismunandi bjögunarstig í einu. Clean-overdrive-Distortion-OD+Dist. En það sem er merkilegt við hann er að hann er með digital stýrikerfi og ég get vistað 18 stillingar! Þá er ég nokkuð vel settur hvað bjögun varðar :) 

Zoom G3 sér svo um rest. Reverb, Delay, Tremolo, phase, Boost og sirka milljón hluti í viðbót. Draumatæki.

Hann er þessi grái gaur á myndinni. Og þessi fyrir ofan er tap tempóið frá honum.

Ef ég losa mig við monkey og pw þá mun ég líka selja þetta Pedaltrain 3 borð og smíða sennilega bara sjálfur bretti sem væri akkurat nógu breitt í að rúma alla í einni röð. Mér finnst ómögulegt að stíga yfir fetla. Þarf þá að finna mér eitthvað custom hard case líka. Það verður reyndar vesen. 

 

Get ekki séð fyrir mér að ég verði nokkurn tíman búinn að finna endanlega uppsetningu. Alltaf að pæla. Enda u.þ.b. það skemmtilegasta sem ég geri. 


Listin að græða tíma

Davíð Kári var eitthvað að leika sér að vekjaraklukkunni og stillti hana óvart klukkutíma á undan.

Við Beta erum lúmskt að fíla það

Okkur finnst pínu eins og við séum þá alltaf að græða klukkutíma

Löbbum stundum ,,óvart" framhjá klukkunni og kíkjum

Munum sennilega ekkert leiðrétta þetta

Fín að græða klukkutíma nokkrum sinnum yfir daginn


Þetta gengur ekki lengur

Mikið er ég þreyttur á þessari tónlist sem hljómar í útvarpinu í dag. Fín og jolly lög inn á milli en hvar er pungurinn og fjörið?

Ekkert nema léttmeti og froða. Eitís syntha hljóð og casio hljómborðstrommur. Þetta virðist vera málið í dag.

Fyrir mér er þetta álíka spennandi og sveitir líkt og Boston, Chicago, The Eagles og allt þetta crap á sínum tíma.

Tilbury, Kyriama family, Valdimar, Of monsters and men, Retro Stefsons og svo ég tali nú ekki um banjóviðbjóðinn í Mumford and sons.

Þessar íslensku eiga reyndar alveg 1-2 fín feelgood lög fyrir utan Retro Stefsons en svona heilt á litið þá er alveg komið nóg af svona stöffi.

X-ið er korter í að breytast í MTV nútímans. Allt of mikið af svona leiðindarfroðu sem bara líður áfram.

Ég kalla eftir rokki. Ég kalla eftir fjöri. Ég kalla eftir coolness factor. Ég kalla eftir breytingum.

Ég finn á mér að 2013 beri þetta allt í skauti sér.


Bók

Beta gaf mér bók

211 things a bright boy can do

Allskonar leiðbeiningar um hvernig á að framkvæma allskonar hluti

Búinn að læra hvernig maður getur varið sig bara með regnhlíf

Hvernig maður getur dæmt manneskjur á handabandi

Hvernig maður á að mála hurð

Ég er kominn að kaflanum um hvernig maður geti virst gáfaðri en maður í raun er

Held ég skippi yfir hann og fari beint í næsta

Snilldar bók


Newsflash!

This just in.....Káristeinn leggur hlaupaskónna á hilluna og tekur upp hjólreiðar!

Númeró uno...ég þarf að hreyfa mig

Númeró dos...á þann máta sem ekki drepur mig líkamlega

Hjólreiðar fara betur með liðamót fyrir feita menn og meiddar iljar.

Svo fer ég líka hraðar. Það er alltaf fjör.

Núna þarf ég bara að redda mér hjóli

Lance Sigurstrong lofar að taka ekki dóp


Gamall og feitur?

Ofreyndi vöðvafestingu undir ilinni í sveitakeppninni um daginn. Var í nýjum skóm og gjörsamlega fokkaði upp. Síðan þá hef ég haltrað um og verkurinn er mismikill.

Ætlaði að reyna að harka þetta af mér og fór til að mynda í stigamót núna um helgina.

bjartsýnn

Þessi verkur gerði það að verkum að ég fór að hlífa fætinum. Það var ekki sniðugt því við það þá gerði bakið uppreisn.

Gat ekki haldið áfram í mótinu og fór bara 9 holur

Guðjón Henning hætti á sama tíma, líka með bakmeiðsli. Hmmmmmm

Held ég einbeiti mér núna bara að því að verða rokkstjarna og hvíli golfið


Alla leið

Hef bæði farið á tónleika og séð í sjónvarpi undanfarið.

Nú veit ég ekki hvort gæði tónlistarmanna hefur hrakað eða hvort aukin þekking mín um tónleikahald og spilerí geri að verkum að ég sjái betur galllana.

Hvort sem það er þá allavega finnst mér það miður

Sá Jet Black Joe í Gamla Bíó og fannst þeir fínir. Samt alveg bersýnilegt að þarna fer band sem hefur þetta ekki að atvinnu.

Þegar þeir voru uppá sitt besta þá var þetta hættulegasta hljómsveit landsins....Evrópu. Voru á barmi heimsfrægðar og tóku þetta alla leið. Guns N Roses Íslands.

Núna svona hálfpartinn var eitthvað hik á þeim. Páll Róskinskrans fór í allar pósurnar og klisjurnar sem frontari bandsins en svona hálf skammaðist sín instantlí 2 sek síðar. Ótrúverðugt.

En kannski skiljanlega, þeir eru ekkert endilega að reyna að vera hættulegir lengur. En ég saknaði þess samt sem áður. Að sjá alvöru performans. Gera eitthvað og standa við það.

Ef þú ætlar að sveifla mjöðmum á sviði þá ætti það að vera með þeim tilgangi að negla grúppíur. Ekki til að dreifa prumpi.

Ef þú ætlar að taka mean ass gítarsóló þá ætti það að vera með þeim tilgangi að myrða fremstu bekkina með handsprengjum. Ekki hurðasprengjum.

Þó voru Palli og Gunni alveg með rokkstjörnulúkkið á hreinu. Það sama get ég ekki sagt um Júníusbræður sem voru á trommum og bassa. Þeir hefðu alveg eins geta verið partur af flíkunum niðrí Golfskála sem hanga á 90% afsláttar slánni. Svo hversdagslegir voru þeir því miður.

Ef þú ætlar að standa á sviði og rokka þá er lámark að líta ekki út eins og Nonni frændi í fermingarveislu.

Þetta var samt drullugaman. Nostalgíutripp.

Svo var ég að horfa á 200.000 naglbíta á 150 ára afmæli Akureyrar. Þeir eru flottir. Lúkka vel. En fyrir minn smekk þá vantaði sárlega annan gítarleikara til að fylla upp í. Þeir eru samt náttúrulega bara þannig hljómsveit. Samt. Gætu verið betri.


Káristeinn

Ég heiti ekki lengur Sigursteinn. Þið megið kalla mig Káristeinn.

Er byrjaður á hlaupaæfingum!

Byrja létt og seiðandi með laufléttu skokki um hverfið

Mun fylgja plani sem mér var vísað á á hlaup.is

8 vikna plan frá 3km upp í 10km

Hleyp 3svar í viku til að byrja með. Sirka 3km-3km-4km

Mun samt fara hægar en þetta plan því ég er í sirka -20% formi

Lungun ennþá í fokki eftir blóðtappann

Endurtek vikur eftir hentugleika og formi. Stefni að 10km fyrir árslok. Hef 18 vikur.

Þetta verkefni ber heitið
.
.
.
.
.
.
Operation Slim Jim Jimbo
.
.
eða
.
.
.
.
.
.
10K 4 SIR GEY

Það er hægt að leika sér með þetta :)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 153138

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband