Leita í fréttum mbl.is

zoom G3

Fyrir þá sem eru gamaldags og halda að digital sé af hinu slæma.

Það er fjandakornið enginn munur á þessum skít. Jú kannski eitthvað pínu sem heyrist eftir miklar pælingar atvinnumanna en ekkert sem skiptir máli fyrir flesta leikmenn.

Ef þú heldur öðru fram þá er eitt af tvennu að gerast (eða bæði)

a) Þú fílar að snobba fyrir flestu sem er gamalt. Allt sem er fundið upp eftir að þú náðir þrítugsaldri er bull og vitleysa......,,krakkar nú til dags!"

 

b) Þú ert hálfviti 


Dikta

Ég veit, ég veit.....það er ekki kúla að fíla Dikta. Ég geri það bara samt.

Mér fannst síðasta plata mjög góð.

Núna er að koma ný plata með þeim félögum og ég hef heyrt 2 lög af henni.

bleh, veit ekki......jú jú, á örugglega eftir að fíla þetta.

Þetta hljómaði bara eins og ekta Dikta

Ekkert sem greip strax en eins og friggin alltaf þá þarf sennileg að hlusta á þetta nokkrum sinnum.


Zoom G3

ánægður með Zoom G3. Skyndilega kominn með 94 pedal effekta á brettið mitt.

Mun reyndar bara nota hann fyrir time-based effekts.

Geðveikt allt þetta delay, reverb og kórus stöff

Mindblowingly mikið sem ég get stillt og tvíkað.

Tók smá session í kvöld og á þrem tímum náði ég bara að leika mér með sirka 20% af vélinni!


Myndir

PJ20 og From the sky down eru tímamótamyndir!

Alveg eins og ,,A year and a half in the life of Metallica" var á sínum tíma og svo ,,a some kind of a monster".

Helber snilld að svona mikið af gömlu myndefni sé til af þessum sveitum.

Væri til í að sjá svona mynd um Smashing Pumpkins og Guns.

Cameron Crowe er náttla einn sá besti.

Elska svona rockumentaries

hvað ætli sé meira til?


PW-2

Fyndið hvernig hlutirnir þróast. Ég beið í heila 2 mánuði eftir þessum nýju pedulum mínum. Og núna kemur í ljós að þeir eru ekki alveg að gera þau hljóð (óhljóð) sem ég vil framkalla.

Ég var svo bundin þessum pedulum miklum tilfinningaböndum að það var erfitt að selja þá.

Búinn að selja tvo og sé núna eftir kvöldið í gærkvöldi að ég mun mjög sennilega selja þann þriðja og síðasta.

Komst nefnilega að því að með því að húkka leynivopnið Boss Pw-2 við Bad Monkey pedalinn þá fæ ég akkurat þetta kremaða hunangsvæl sem ég hef verið svo desperately að leita að.

Hélt alltaf að ég þyrfti fuzz til að ná að framkalla þetta. En turns out....þurfti bara tvo overdrive gaura.

Hef verið að lesa mig mikið til um pw-2 og fólk er yfirleitt mjög óánægt með hann. Ég fór að lesa nánar og komst að því að ástæðan fyrir því að fólk er óánægt með hann er akkurat ástæðan fyrir því hve ógéðslega ánægður ég er með hann.

Virðist vera að flestir gítarleikarar laðist að býflugnahljóði. Hátt gain og mikið distort. Mikið treble og mikið málmhljóð. Þetta virðist vera málið hjá fólki ef marka má umsagnir og slíkt.

Þessi pedall býður nefnilega akkurat ekki upp á það. Hann er með mikið bassa og muddy down under hljóð. Soldið svona lokað og þykkt hljóð.

Akkurat það sem læknirinn pantaði!

Einn og sér er hann mjög powerful en saman með Bad Monkey blæðir honum hunangi.

Mikið er ég feginn að vera ekki eins og flestir.


Out Idiot Brother

Our Idiot Brother er góð mynd

Paul Rudd túlkar þarna karakter sem er nokkurskonar Diet Dude.

Hann er ekki jafn svalur og ,,the dude" heldur meira svona light útgáfan af honum.

Skemmtileg walk-thru mynd.

Mæli með henni


Wött

ég er kominn í svo retro fílíng.

Nirvana, Pöll Jammm og Smaskí Púmpskí

Alltaf gott að leita í ræturnar

Ætla að taka pínu session í kvöld með ampinn í botni og nýja sjaldgæfa pedalinn minn.

Reyndar er þetta 80 watta skrímsli svo öflugt að ég hækka ekki meira en sirka 2.5-3 í styrk.

Langar í 30-50 watta lampamagnara til að hafa þetta meira kósí

Fyrir fróðleiksfúsa þá er þetta Boss Pw-2 pedall. Bara framleiddur í 9 mánuði árið 1996. Menn voru ekki að fíla hann þá en ég bind vonir við að hann verði akkurat það sem ég leita að. Sagt er að þetta verði collectors item eftir nokkur ár.


Nevermind eins og hún átti að vera

Eftir að hafa hlustað á demóin af afmælisútgáfu Nevermind þá er ég orðin algjörlega sammála Kurt um að lokaútgáfan var mixuð og masteruð alltof clean og nice.

Þessar röff óslípuðu Smart studio útgáfur af lögunum eru ógéðslega flottar. Sumar þungar, hráar og flottar.

Skil mjög vel að Kurt hafi frekar kosið svona útgáfur. Soldið meira í ætt við hans hugmyndafræði og hvað hann predikaði.

Þó hann hefði nú örugglega ekki haft þær alveg svona hráar að þá gefur þetta sennilega góða mynd af því sem hann var að meina.

Þetta sem kom út var allt of slípað til. Of fallegar útgáfur.

Mæli sérstaklega með Pay to play og Dive


DK & SIR

Stal næstum því hlustunarpípu læknis í dag. Nenni ekki að segja þá sögu en hún er nokkuð fyndin

Beta fór á ,,af fingrum fram" með Jóni Ólafs. Gestur hans að þessu sinni er Páll Óskar. Stuð hjá henni.

Ég er því hér einn heima að passa DK

Ég hugsaði að langauðveldast yrði bara að svæfa hann og málið dautt. Svo ég gerði það bara.

Sweet.


Athugaðu elskan

Mæli með From the sky down heimildarmyndinni

Hún er um Acthung Baby og U2

Það voru liðin 20 ár núna í október síðan þeir fóru í Hansa studios í Berlin til að reyna að bjarga bandinu frá stöðnun.

Gekk mjög erfiðlega en svo......allt í einu gerðist eitthvað magical í miðju lagi.

Ætla ekki að koma með spoiler. Mæli bara með myndinni.

Þetta er algjört must see fyrir músíknörd sem er fæddur....tja....fyrir 1980 sirka. Eða 1982. Eða beisikklí þann sem ólst upp við þessi Achtung baby lög.


kurteisa

Alveg hreint merkilegt hve litlu maður kemur í verk svona í barneignarfríi. Þetta er ekkert frí godamnit! Næ varla að blogga og ekkert að taka upp í cubase. Shiiiii Maður ætti nú samt ekki að væla. Quality time með Betz og DK. Ekki að hata það. Sebas var...

mjúsick

Erum að fíla Young the Giant lög eins og....Garands og god made man. Hið síðara lágstemdara en endar í kablooie! Er svo að fara að hjúfra mig niður með sæng fyrir framan tvær heimildarmyndir Nefnilega PJ20 sem er um Pearl Jam og að tuttugu ár séu liðin...

Framtíðarplön

Sebas ræddi við mig um lífið í bílnum á leiðinni heim úr leikskólanum. Hann ræddi um að honum langaði að giftast sætri stelpu. Ég útskýrði fyrir honum að það yrði bara þegar hann væri orðinn fullorðinn. Hann hefði nægan tíma. ,,en allar stelpurnar vilja...

monkey

,,The quest for the sound" heldur ennþá áfram. Er að kaupa fullt af pedulum til að prófa þá og sel svo aftur. Búinn að fara í gegnum m.a. MXR Blue Box, CryBaby Wah Classic og Digitech Bad Monkey. Blue Boxið var allt of ófyrirsjáanlegt og dómínerandi í...

Canada Dry

Fórum í Hagkaup að versla. Sem er ekki frásögufærandinemahvað....... Ég rakst á gamla góða Canada Dry! Ég vaguely mundi eftir að hafa elskað þennan drykk þegar ég var lítill Ég keypti því fullt af dósum Til að gera langa sögu stutta þá kom ég heim og...

Internet sensations

All your base are belong to us Leeroy Jenkins LoLcats Numa Numa gaurinn 2 girls 1 cup The annoying orange Boom goes the dynamite Charlie bit my finger Double rainbow all the way Dramatic chipmunk Ken Lee söngkonan Leave Britney alone Star Wars kid...

Panta rei

Tók gott session og kynntist pedulunum mínum betur. Er búinn að leika mér með Wah pedalinn og Blue Boxið. Þarf ekki á þeim að halda. Mun líka selja Hyperion pedalinn og það er strax komin biðröð af kaupendum(án djóks). Hann er náttúrulega gourmet fyrir...

man of the future

Ég kem úr framtíðinni. Eða allavega það er sumt hérna sem ég skil ekki af hverju er svo frumstætt Af hverju er fólk ennþá að rökræða um hvernig best sé að stjórna og ala upp þjóðfélag! Af hverju er ekki löngu búið að finna bara réttustu leiðina. BEM! Af...

rig

Epi Les Paul ↓ CryBaby Wah ↓ Devistortion ↓ Soda Meiser ↓ MXR Blue Box ↓ Zoom G3 ↓ Marshall 8080 Ekki að hata þetta

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband