Leita í fréttum mbl.is

Birrrrr

Fór í sturtu í morgun. Ég neitaði að fara úr sturtunni. Það er svo friggin BIRRRRRRRRRRRRR úti. Vandræðalega kalt.

Þannig að ég gerði hið eina rétta í stöðunni.

Lagðist niður og lét renna í bað í kjölfar sturtunnar.

Eina vitið.


Idiot

Sáttur

Var að niðurhlaða ,,An Idiot Abroad 2"

Önnur sería af Karl Pilkington komin út.

Það verður veisla hérna í dag


Rihanna

Sebas ætlar að giftast Rihönnu, að sögn.

Hann ætlar að kaupa sér skyrtu til að vera fínn og blóm handa henni.

Þetta kom í óspurðum fréttum.

Sennilega út af því að við erum mikið að hlusta á Coldplay/Rihanna lagið


Hlutir sem mér finnst vera töfrar

Neðangreint á sér enga skýringu og þ.a.l. flokkað sem töfrar í mínum bókum!

1. Zip og Rar þjöppun

Hvernig er hægt að taka gögn og bara allt í einu minnka þau! hvert fóru gögnin? og hvernig er þá hægt að stækka aftur skránna og gögnin allt í einu komin aftur!

Þetta hræðir mig

2. Bluetooth/gagnaflutningur

Hvernig er hægt að flytja gögn í gegnum loftið frá einu tæki yfir í annað?
Ég er með tölvu og svo eitthvað annað tæki. Ég stilli bara á bluetooth og get flutt myndir og hluti í gegnum loftið yfir í tölvuna!

ekkert nema SVARTIGALDUR!

3. Jólasveinninn

Hvernig nær hann að dreifa öllum gjöfunum til allra í heiminum á einn nóttu.


Fax

ímyndið ykkur þá tíma þegar engar tölvur voru til, hvað þá gemsar og slíkt. Upplýsingaflæðið var af skornum skammti. Fólk var meira einangrað og verr upplýst.

Svo allt í einu kom........FAX

Fólk bara ,,WHUUUUUU!!"

DEAMON SOURCERY!!!

TÖFRAR!!!!

Menn bara létu upplýsingar á blaði inn í eitthvað töfratæki og sömu upplýsingar komu út einhverstaðar allt annarsstaðar!

MADNESS!!!

Fólk ape-shittaði. Hélt að framtíðin væri nú loksins komin.

Ímyndið ykkur hversu mikil rosa töfra uppfinning þetta virtist örugglega vera fyrir fólki.

Fyrst bara ekkert, svo allt í einu, töfra-thing-ama-jiggy sem sendi gögn einhvernvegin á óskiljanlegan máta.

Fólk í dag bara....je whatever. Maður verður pínu að stoppa og pæla í hversu miklir töfrar þetta voru.

Mig langar í aðra svona uppfinningu í heiminn núna.

Eitthvað sem gjörsamlega blows my mind.


Tinni

Ég og Sebs fórum á Tinna í bíó

Djöfull er þetta vel gerð teiknimynd. Sennilega það besta sem ég hef séð hingað til.

Myndin var bara dæmigert Tinna ævintýri

Við vorum samtals 7 í salnum. Huuges salur.

Ég og Sebs mættum með glæran haldapoka af mat. Vörðurinn tók eftir því og bað okkur um að borða þetta ekki þarna inni.

Ég sagði bara ok og labbaði inn með þetta.

Átum þetta allt fyrir hlé!

Rebel


gamla fólkið vs við hin

Hafið þið tekið eftir því að gamalt fólk segir mun oftar ,,þó"

Við hin segjum ,,samt"

dæmi:
Gamlir: ,,þó hef ég einu sinni farið í typpalind"
Hinir: ,,samt hef ég einu sinni farið í typpalind"

Svo eru áherslurnar öðruvísi....

gamla fólkið segir ,,öðruVÍsi"
við segjum ,,ÖÐruvísi"

nei bara svona......


Sonur sæll

Ég segi....að maður hefur ekki upplifað sanna hamingju fyrr en maður heyrir í syni sínum hlæja upp úr svefni eftir frábæran dag saman.

Dreymandi um daginn og hversu gaman það var hjá okkur.

Þegar þetta gerist, eins og núna áðan, þá veit ég að ég skilaði föðurhlutverkinu af mér í dag af sóma.


Eðall

Fór á Deluxe tónleikana í kvöld. Helvíti gott stöff.

Ég vissi að sýningin myndi standa og falla með pedalnum mínum sem Jón notaði á Hammondið. Fyrsta lag plötunar ,,Sól"....rokna Hammond Sóló......algjör sigurvegari!

Maður hafði ekkert pælt nánar í þessum parti en núna með þessa vitneskju þá bara ,,já, auðvitað". Ekkert smá töff sóló.

Klökknaði yfir ,,Svefninn laðar"
Hló yfir ,,Alelda" eða ,,að elda" eins og sumir hafa sagt tjáði Jón okkur.
Varð reiður yfir ,,Hunang" þegar Stefán klúðraði sólóinu.

Men ó men. Þetta sóló er sennilega ástæðan fyrir því að ég fékk áhuga á gíturum. Lagið heitir Hunang, er á plötu sem heitir hunang og er um býflugur og slíkt.

Þetta sóló hljómar nákvæmlega eins og hunang. Er tilfinning ÚT-Í-GEGN!

Sólóið lekur hunangi. Það drýpur niður heyrnatólin þegar ég hlusta á það.

Þetta er ástæðan fyrir því að ég kalla ákveðið ,,sánd" kremaðhunangs sánd.

Þetta sóló og svo Smashing Pumpkins sándið saman í einum graut. Ég + gítar = tilfinning.

Allavega, hann klúðraði því. Ekkert ílla, skiljiði, bara var ekki alveg að fanga tilfinninguna.

Klárlega ekki í æfingu því það var fleira sem hann var ekki að púlla. Því miður.

En, engu að síður þá voru þetta frábærir tónleikar.

Jón og Bjössi náttúrulega stórskemmtilegir. Daníel svo mikill listamaður að hann getur nánast ekki talað. Óli Hólm sem fagmaður í bakröddunum og bassaleikarinn solid.

Fór einn. Ég saknaði Betu umtalsvert. Tónleikar eru ekki samir án hennar.

Það hjálpaði ekki að eina sætið sem var laust í salnum var við hliðina á mér!


Skemmtigarður

Fórum í skemmtigarðinn í Typpalind

Helvíti gaman

Beta skildi okkur Sebas eftir og við völsuðum eins og kvígur á vorin á milli leiktækja.

Mæli sérstaklega með gulu mótorhjólunum á efri hæðinni. Keyptum einn leik en spiluðum sirka 15 leikja engu að síður. Ekki veit ég hvort við séum bara svona góðir eða hvort við fundum glufu í Matrixinu.

Við ætluðum samt fyrst í klessubílana. Sæll. Vandræði.
120cm til að fá að keyra og Sebas bara um 106cm
ok, ekkert mál hann mátti samt vera farþegi. Frábært. Nei.
Hámarkshæð 170cm
Ég því of stór til að fá að keyra.

Feðgar í klípu.

Ég hringdi þá bara í eina sem er 157,5cm og lét hana keyra Sebas um. Hann benti á næstu fórnarlömb og Beta átti að klessa á þau, helst á innan við 2 sekúndum.

Ég stóð niðurlútur fyrir utan og tók myndir.

Við eigum eftir að prófa sleggjuna. Tökum hana kannski um helgina.

Auðvelt að eyða peningum þarna skal ég segja þér. Maður kaupir kort og fyllir á það. Ég keypti bara 2000kr en bara með því að fara í klessubílana eyddi ég 1100 því það kostar 550 á mann. Endaði á því að fylla 1000kr í viðbót á kortið sem við feðgarnir eyddum í litla leiki.

Held að það kosti svo 850 í sleggjuna


Fíkniefni

Allt neðantalið flokka ég sem fíkniefni Dóp Sígarettur Kaffi Pepsí Kók How I met your mother Ok, kannski ekki HIMYM en allt hitt Í raun allt sem þú neytir og þegar þú hættir að þá færðu fráhvarfseinkenni. Þetta er bara lógík Ég forðast öll fíkniefni og...

allt að verða vitlaust

Hvað er í gangi! Það var ekki klappað fyrir parmesan osti hjá Rachel Ray!

Fact

Staðreynd: Einhverntíman í framtíðinni mun ég segja barnabörnunum mínum að ég sé eldri en internetið og þau munu verða bara ,,WUUUUUT!"

vekjaraklukka

Þetta upphafsstef er vekjaraklukkulagið mitt. Gaman að segja frá því að nafnið á þessu lagi er majónes. Hann var að leita að nafni og rak augun í majónes dós. Málið dautt. Er stundum að lenda í þessu. Hendi inn hugmynd að lagi inn í Cubase og þarf að...

FOOD

DK fékk sér sinn fyrsta mat í kvöld. Það var documentað myndrænt. Hann var hress með þetta. Hefur það frá mér.

Sorg

Það er með trega í hjarta sem ég tilkynni hér með að ég hef selt alla Devi Ever pedalana þrjá frá mér. Mikil sorg ríkir hér á bæ. En When you love someone....set them free eins og skáldið sagði. Það er bara þannig. Þeir einfaldlega harmóneseruðu ekki við...

Bíórýni

30 minutes or less.....more like.....please make it 30 minutes or less Það var bókstaflega engin mynd sem við gátum kíkt á þetta kvöldið. Þannig að þetta var svona last resort dæmi. Ég nefnilega þoli ekki Jessie Eisenbörger (eða hvað sem hann heitir)...

Saaaaalat

Það er officialy frost í helvíti! Við fórum á Café París áðan í kvöldmat ,,hvað má bjóða ykkur?" sagði saklaus þjónninn SIR: ,,ég ætla að fá mér Seaser salat" FJÖGURHUNDRUÐ LITLIR ÁLFAR SNÉRU HAUSNUM GG SPERRTU EYRUN !!!!!!!!!!!!!!!35 HVÍTIR ENGLAR...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband