Leita í fréttum mbl.is

listamaður

Ég og Sebs fórum í Tölvulistann. Á leiðinni út komum við við á neðri hæðinni. Þar var hljómborðspíanó. Sebas byrjaði náttúrulega að spila um leið.

Hann er með nokkuð nýstárlega tækni

Sýn hans á hljóðfærið er líka öðruvísi

Hann tjáði mér að lágu nóturnar væru úlfar og þær háu, stelpur.

Svo væru þau að elta hvort annað.

Hann verður svo mikill listamaður, maður sér það miles away

Svo fórum við náttúrulega í almennilega hljóðfæraverslun þar sem hann fór hamförum á trommunum og öðrum hljóðfærum.

Ég sleppti honum lausum á meðan ég spjallaði við gaurana um gítardót og slíkt.

Svo heyrði maður hljóð hér og þar í búðinni. Ýmist trommurslátt, gítarströmm eða hljómborðsdútl. Sem var fínt, maður vissi þá hvar hann var staddur.


Afi

Afinn er að gera Mjölnir hamarinn fyrir Sebastian

Við horfðum nefnilega á Thor myndina og Sebas varð smitten af hamrinum

Afinn er því að meitla nýjan Mjölnir hamar handa honum.

Fyrst kom hann með hamar til hans, og Sebas bara......

,,uuuuu þessi hamar er kringlóttur!"

,,já, er þetta ekki flottur hamar?"

,,Mjölnir er ekki kringlóttur. Hann er svona kassi"

Afinn fór því að gera nýjan hamar handa barnabarninu sínu.

Ég lét hann fá teikningar og núna situr hann sveittur út í bílskúr að meitla. Greyið. Það sem maður gerir ekki fyrir barnabörnin sín. Hann ætlar meira að segja að mála hann með neonbláum lit.

Hann er bestur


dagurinn

Þetta var non stop dagur

Mikið að gerast

Ókeypis bíó í Egilshöll

Ókeypis nammi

Nýr Crybaby Wah fetill

matarboð

Mjölnir

Rúntur á Laugarvegi

Kósíkvöld heima með popp


Plan

Dagskrá dagsins:

Tölvulistinn - Þó ég þurfi ekki að kaupa neitt slíkt. Bara gaman að kíkjá tölvur. Þeir voru að opna á Suðurlandsbrautinni.

Egilshöll - Ókeypis í bíó! Ég og Sebs ætlum að kíkjá kannski Cars 2. Fullt af ókeypis nammi. Hell yeah!


sprautur

Fórum með Davíð í 3 mánaðasprautur
Hann var stungin tvisvar. Í sitthvort lærið. Hann kvartaði pínu en ekkert eins og ég hafði búist við.

Harður


Viðskiptajöfur

Hvernig fór ég að því að kaupa mér Epiphone Les Paul, harða tösku, 3 bútík pedala frá Portland (Hyperion, Soda Meiser, Devistortion), lítinn rafmagnsgítar og magnara handa Sebs, Pedaltrain bretti, tuner og vera samt í 14þ plús!!!!!!!

Djöfull er ég cunning viðskiptamaður og harkari

Kalt mat


Gilz

Djöfull er ég að fíla Audda Blö lagið.

,,....tveir harÐIIIIIIR"

epic


plan

Dagskrá:

Keila
Pitsa
Kósíkvöld
Sofa slitrótt í 2 tíma af 7

Rípít


svefn

Væri mun frekar til í að ná að sofa í heila 4 tíma og ekkert meira heldur en að ná bara klukkutíma svefni hér og þar í 8 tíma.

Frekar leiðinleg nótt

drengurinn með stæla og Sebas að dreyma ílla. Vorum 4 upp í rúmi á tímabili. Ekki uppskrift af góðum nætursvefni.

Mun skiptast á að lúra í dag, hafa ofan af fyrir Davíð og stilla gítarinn ítarlega.

Er að laga trossið, actionið, hnakkinn og intónið.


ó hve ég elska stiklur! Þegar tónlistin kikkar inn, oh snap!

og svo móðir allra treilera Yfirburðar stikla

Bogomil Hljómskáli

Ánægður með Hljómskálann á rúv Reyndar er algjört möst að hann fjalli í næsta þætti um einhvern sem ekki er yfir 86 ára! Helst að hafa næsta aðalgæjann í þættinum sirka um 25-35 ára. Mixa þetta aðeins upp svo hann fái ekki bara áhorf frá 50 ára og eldri...

Fetlar

Devistortion fetillinn er guðdómlegur. Klárlega sönnun þess að 1+1=3 Nota einn stígandann í létta bjögun og hinn í aðeins meiri. Svo þegar báðir eru saman þá er það nokkurskonar insane stilling. Þessir tveir fözzar, Soda Meiser og Hyperion, finnst mér...

Bryan

Var í dágóðan tíma að fikta í fetlunum mínum(pedal=fetill) í dag Fann ýmislegt út Sumt virkar, annað ekki En það mikilvægasta er að ég........played ´til my fingers bled Meira um þetta síðar

Rökfræði 101

,,má ég fá ís?" ,,við eigum engan ís" ,,akkuru ekki?" ,,bara" ,,en það á að vera til inn í ískáp" ,,af hverju" ,,hann heitir ískpápur, og inn í ískáp á alltaf að vera til ís" ,,hmmmm" ég get ekki betur séð en að Sebastian hafi pínu rétt fyrir sér Ég gat...

nokkuð nákvæmt

Lulu.....the thing that should not be

PEDALAR í hús

uuuuJEI var að fá pedalana loksins í hús. Sáttur.is Núna er bara að læra á þessi hljóð. Þarf að finna my sound http://youtu.be/IOownOy8UT8?t=25s Ánægður með Devi Ever. Þetta eru bútík pedalar. Ekki einhver Boss fjöldaframleiðsla. Hún gerir þetta allt...

er orðinn pínu gay

er kominn í barneignarfrí Tók minn fyrsta almennilega morgun hér heimavið. Held ég sé orðinn gay Fór í gegnum Rachel Ray, The Doctors, Grey´s OG Glee Ætlaði að fara að klippa á mér neglurnar en hef ákveðið að klóra mér í pungnum, spila hátt á...

rækt

fínt tilboð í nýju reebok stöðinni 2990 á mánuði og 6þ kr afsláttur fyrir áramót Ætlum bæði að joina ekki seinna vænna en að hreyfa á sér rassinn pínu

SIR

Ég veit ekki hvort ég eigi að taka þessu sem hrósi Sebastian settist við hliðiná mér í sófanum þar sem ég var í tölvunni og bað um að fá að hlusta á lögin mín. Hann er nefnilega minn stærsti áhangandi :) Eftir tvö lög með heyrnatól þá var minn sofnaður!...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 153614

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband