Leita í fréttum mbl.is

SIR RIG

Er að upplifa í fyrsta sinn að vera komplett ánægður með gítarsándið. Svo mikið að mér dettur eiginlega ekkert meira í hug til að kaupa!

Marshall Valvestate 8080 magnari - Ekkert of ánægður með hljóðið. Soldið þunnt og tinní.

MXR 6 Band EQ - Þessi tónjafnari umbreytir magnaranum í hlýtt og fallegt hljóð. Þannig að clean sándið mitt er orðið gott. Þarf ekki nýjan magnara eins og stendur.

Bad Monkey - Distortion pedall sem gefur mér minimalískt normal rokk sánd. Svona rétt til að óhreinka magnarann.

Boss Pw2 - Í samvinnu við Bad Monkey virkar þessi distortari sem algjört hunang. Akkurat það sem ég var að leita að með öllum þessum fuzz pedulum. Leynisándið. Ekki góður einn og sér og er aldrei notaður þannig. Boss Pw2 + BM algjört combo dauðans.

Zoom G3 - BA BA BA BA barilliant tæki. Nota það í allan fjandan. Aðalega Delay, reverb og slíkt. Get verið með 300 staka pedala í gangi inní þessu thingamajiggy voodoo tæki. 3 í einu og svo 100 þannig combo. Endalausir möguleikar. Rétt búinn að gera 3 combo, enda lítill tími gefist.

Upphafspunkturinn er samt náttúrulega Epi Les Paul std. Hann skilar þessu öllu í gegn.

Eina sem mér dettur í hug til að bæta í riggið er volume pedall. Fínt að hafa þannig gaur í fótunum.

Núna er bara málið að spila og æfa upp lögin mín og gera nýtt stöff


sauma

búinn að vera ómögulegur í dag. Hausinn að springa. Samt náð að passa tvo 4 ára gutta og einn 4 mánaða. Einn. Það var ekkert spes.

Fyrir utan það þá hefur Beta stjanað við mig

Hennar stærsti sigur sennilega að hafa náð að sannfæra mig um að taka loksins verkjatöflu. Líður mun betur. Mikil barátta í allan dag. Vil helst aldrei taka neitt stöff.

Svo verður kósíkvöld hjá okkur með Sebas. Ætlum að horfa á Home Alone. Sebas nær öskrinu hans frekar vel.


börnin í Afríku

Sebas var farinn að vera með svo mikil leiðindi við matarborðið að ég tók gamla trixið á hann.

Ég sýndi honum sveltandi börnin í Afríku á youtube

Honum fannst það stórmerkilegt

Svo áðan, eftir að hafa hugsað þetta í uþb 4 daga og ekkert sagt um þetta, þá segir Sebastian

,,pabbi, mannstu eftir börnunum í Afríku? við getum kannski bara farið saman í flugvél og keypt sverð og veitt ljónin fyrir þau svo þau geti fengið að borða. Þá fá þau lungu og hjarta og vöðva og geta lifað"

,,þú getur hjálpað fullorðna fólkinu af því að þú ert fullorðinn og ég get hjálpað börnunum af því að ég er barn,,

Á þessum tímapunkti var ég nánast grátandi yfir því hversu góður litli strákurinn minn er!

Ég sagði honum náttla að þetta væri besta hugmynd sunnan alpafjalla og að hann væri algjör snillingur fyrir að hafa dottið þetta í hug.


lítill

Ég er með eyrnabólgu eins og litlu börnin

Það er æðislegt

Læknirinn var bara ,,WTF! Af hverju í fjandanum ert ÞÚ með eyrnabólgu?"

Ég er með mínar meiningar og kenningar varðandi það skal ég segja ykkur

Þannig er nefnilega mál með vexti að ég og Beta fórum síðasta vetur í labbitúr og ég kaffærði henni í snjó. Svo leyfði ég henni að simpattí-kaffæra mér líka því hún gat það ekki sjálf.

Ég fékk snjó inn í vinstra eyrað og var með verk lengi vel.

Svo er þetta allt í einu núna að blossa upp. Verkur og læti.

Læknirinn hélt áfram að hneykslast á mér

,,ertu kvefaður?"
,,nei"
,,mjög undarlegt, ertu með hita?"
,,nei"
,,mjög undarlegt, ertu með pínu hálsbólgu?"
,,nei"
,,þetta er allt saman mjög undarlegt"

Sebastian fannst þetta mjög fyndið. Að pabbi skuli vera með eyrnabólgu eins og litlu börnin.


yup

Þá er kappinn aftur mættur til vinnu. Gerði ekkert lag í fríinu sökum þess að þetta var ekkert frí.

Gott að komast aftur út í umheiminn.

Núna fer allt að pikkast aftur upp í skálanum. Jólagjafir og slíkt. Allt brjálað að gera í sérmerktum golfkúlum. Hægt að kaupa dúsín og láta merkja þær með nafni eða einhverju sniðugu.

Spurning um að gíra sig upp fyrir næsta sumar með sérmerktum kúlum....hmmmmm hvað ætti maður að láta prenta á þær?

Strákurinn
Kjéppinn
Meistarinn
Símanúmer

hmmmmm


remaster

Mæli enn og aftur með Nevermind (Devonshire mixes)

Men ó men hve þetta er þyngra og fallegra en áður útgefna normal comercial mixið.

talandi um endurhlustanir, í fyrsta skiptið er ég spenntur fyrir remasteringu á skífum. Smashing Pumpkins er að fara að gefa út Gish og Siamese Dreams remastered núna á næstunni.

Hef aldrei áður beðið spenntur eftir slíku stöffi.

jei


SiggiSub

Ákvað í tilefni dagsins að gera fyrir Betu pínu hádegismat

Ég sá mynd á netinu um daginn af samloku söbbi á sterum og fannst girnilegt.

Veit ekkert hvað var í þessu en fór samt á stúfana til að reyna að kokka upp eitthvað svipað útlítandi.

Ég fór í þrjú bakarí og fann loksins eitthvað kúmenbrauð í Mosfellsbakarí sem líktist þessu.

Smurði það með spes majónesi, stráði mozzarella osti yfir báða helmingana og forhitaði pínu.

Skellti svo sjöhundruð sneiðum af silkiskorinni skinku og Roast Beef inn á milli og sprautaði leynisósu inn. Meiri ostur og svo allt inn í ofn

Út kom eitthvað sem ég held að geti bjargað heiminum

Heimur, má ég kynna................SiggiSub!

Betu fannst þetta æðislegt. Sagði þetta betra en Subway!


klipp

Kom glimrandi fínn úr klippingu

Þyki vera blanda af Kristjáni Jóhanns og Clooney

Sel það ekki dýrar en ég keypti það


ammó

Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér

Þetta er gott við kvefi

Þetta er svo gott. Gaman að sjá að þetta line up hjá Corgan er að slípast vel saman. Þétt og flott. Mæli með sólóinu rétt rúmlega 5:03 og sérstaklega þegar Jeff vælir yfir Billy sirka 5:48 Ég er náttúrulega búinn að tönglast á þessu oft áður. En alltaf...

purr

DK er búinn að læra sinn fyrsta hlut Fyrsta stöffið sem hann gerir meðvitað Hann..........wait for it............purrar Adorable Þegar við gefum honum graut.....ekki svo adorable

cumple

Á afmæli á morgun Allar gjafir og símtöl afþökkuð Í fyrra slökkti ég á gemsanum og fór á bókasafnið niðrí miðbæ og las tímarit. Mjög falleg stund. eða var það í hittifyrra....men......getting to old for dis shiiiii

hair don´t

Klipping á morgun. Spurning um að gera eitthvað róttækt. NEEEEEEEE kannski ekki ætla bara að biðja um Clooney meets Pitt greiðsluna. Síðast þegar ég bað um hana fékk ég Rooney meets shit greiðsluna. Nei, í raun fékk ég helvíti góða loksins. Klárlega...

Gítarsóló

Er þetta besta gítarsóló allra tíma ef maður deilir í fjölda spilaðra nótna? hmmm smurning......... 4 nótur, euphoric tilfinning, minimalismi = John Frusciante

Dorrit

Ég og DK vorum að bíða eftir Betz niðrá Lansa í mestu makindum. Sátum á afviknum stað að æfa okkur að tala. Það komu tvær hjúkkur að hjala við hann. Tvær þorðu að koma en uþb sjöhundruð horfðu til okkar og brostu. Hvílíkur babe magnet! Svo mikill að...

going to deep

Fyndið hvernig fólk getur verið einfalt oft á tíðum Biskup Íslands hélt þrumuræðu í gær varðandi ,,árás" pólitíkusa Reykjavíkur á kirkjuna. Hann var að vitna í að það sé verið að banna áróður kirkjunar í grunnskólum. Hversu einfaldur þarftu að vera til...

hægra vs vinstra heilahvelið

Vá, ég er svo mikið hægra heilahvelið. Ég sé t.d. tölur í litum og slíku. Ekki mikið en pínu. 2 er blár, 5 er gulur og eru báðir oddhvassir og óaðlaðandi. 6 er blár og skemmtilegur. Svo er ég mannþekkjari dauðans. Skynja einhvernvegin manneskjuna,...

Fannst þetta vera merkilegt

(Margmiðlunarefni)

TED

Ég mæli með www.ted.com nöff said

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 153613

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband