Leita í fréttum mbl.is

betterfacebook

oh men, það jafnast ekkert á við http://socialfixer.com/

setja upp þessa viðbót og voilá...Facebook verður aftur eðlilegt

Hata nefnilega þetta bloddí newsfeed þegar FB velur alltaf bara bestu feedin til að sýna.

Með þessu fixi þá koma aftur öll feedin í tímaröð. Ekki bara í einhverri svokallaðri bestu röð

Svo eru fleiri fídusar í þessu dæmi sem gaman er af


Forca Barca!!

El Clascio er bara svo mikil skemmtun.

Klárlega besti og skemmtilegasti fótboltaleikur hvers árs.

Staðreynd

Svo sakar ekki að mitt lið vinnur alltaf


Libido

Gish remastered. Flott plata en kannski ekkert sérstaklega mörg sterk lög. Góð heild samt.

Rhinoceros og Snail standa upp úr.

Gott ef byrjunin á Snail sé ekki bara það allra fyrsta sem ég lærði á gítar.

Einfalt og gott, svo flækist það. Minnir að ég hafi komist sirka 50 sek áfram svo ekki getað meira.

á þessum tíma leigði ég herbergi hjá Rögnu og Baldri, foreldrum Árna Kristins, á Mýrarbrautinni á Dósinni. Vann í Rarik þetta sumarið og man í raun fátt meira.

Gott ef þetta er ekki sumarið sem ég tók mitt eina gigg með hljómsveit.

Hin kyngilmagnaða hljómsveit með þessu líka osom nafni........"Libido"
Fyrir fróðleiksfúsa þá er nafnið tekið úr texta við lagið ómþýða ,,smells like teen spirit" með Nirvana. Mér þótti þetta eitursvalt á sínum tíma. Ekki lengur.

Spiluðum nokkur lög í Skjólinu. Ég átti að syngja en þorði bara að syngja eitt lag (Polly með Nirvana) og fór svo og faldi mig á trommunum það sem eftir var.

Man þetta óljóst


Hipsters.....angels with their wings glued on?

Athyglisvert info dagsins:

Cherub Rock er opnunarlag Siamese Dream og er viljandi þar.

Billy vildi opna skífuna á nokkurskonar ,,Fuck you" til allra þessara hipstera sem voru að rísa upp allstaðar sem gorkúlur. New age indí hipsterar. Honum var í nöp við fyrir hvað þeir stóðu.

Textabrot eins og:

Doesn't matter what you believe in
Stay cool

Who wants honey
As long as there's some money
Who wants that honey?

Hipsters unite
Come align for the big fight to rock for you
But beware
All those angels with their wings glued on
'cause deep down
We are frightened and we're scared
If you don't stare

yup, við erum nokkuð sammála um þetta ég og BC


SP

Get ekki beðið eftir mars 2012

Smashing Pumpkins stefna á að gefa út Oceania þá. Þeirra áttundu heilu skífu. En það sem er pirrandi er að þau eru löngu búin að gera plötuna en eru bara að bíða þangað til að tímasetningin sé rétt fyrir allt prómó og túrastöff. Crap!

Er að hlusta á remasteraðar Gish og Siamese Dream núna og er alveg að springa.

Ó men, þetta er svo gott stöff.

Þykkir Big Muff veggir panaðir hægri og vinstri sjöhundruðsinnum layerað og svo oktavað yfir með enn þykkari hunangstón.

Mana fólk til að hlusta á instrumental útgáfuna af Soma.
Sérstaklega frá mín 4:25

05:09 - aaaaaaaahhhhh
05:12 - emotional rollercoaster
05:15-05:18 - Þriggja sekúndna kafli sem nokkurn vegin súmmerar upp bróðurpart fyrri hluta ævi minnar og það sem koma skal
05:22 - Ein fallegasta Octave notkun sunnan alpafjalla

Í þessu lagi eru 40 mismunandi gítarar notaðir. Just sayin.....


Bannað að deila við dómarann

Sebas skildi ekki fyrst um hvað aukaspyrnur snérust. Alltaf þegar hann datt þá kallaði hann ,,auka!"

Jafnvel þó ég væri ekki nálægt

Smátt og smátt kom ég honum í skilning um að það væri bara aukaspyrna ef hinn bryti af sér.

Það gerist stundum hjá okkur.

Einu sinni hlupum við saman og hann barði í punginn á mér. Það var vel vont. Semí viljandi. kalt mat.

Við þurftum að taka pásu. Hann kallaði strax aukaspyrnu á sjálfan sig og tók utan um mig og kyssti þar sem ég lá á gólfinu.

En samt....hann er hálfur Spánverji. Þannig að hann á það til að liggja í gólfinu og þykjast vera meiddur þegar ég er kominn einn inn fyrir. Ekki að djóka. Ég segi honum að vera ekki að þessu væli og hætta að þykjast.

Það fór í hart áðan. Staðan var 4-4 og ofangreint atvik gerðist. Ég náttúrulega potaði boltanum inn þegar hann var liggjandi að þykjast.

5-4

Nei, nei, minn var ekki á því. Ekki nú aldeilis.

4-4

Ég stóð hins vegar fast á mínu þannig að þetta var stál í stál.

Svo vel vildi til að það voru dómarar á staðnum

Það er jólatré á ganginum, sem við höfum alltaf notað sem dómara. En í dag vorum við sérstaklega heppnir þar sem við höfðum tekið DK með okkur fram og sat hann í stólnum sínum á kantinum og fylgdist með.

Að sögn var hann dómarinn hans Sebas en jólatréið minn dómari. Engu að síður þá beygðum við okkur niður til DK og þóttumst lesa út úr handahreyfingum hans mismunandi dómgæslu. Algjört kaós. DK var engin hjálp. Þangað til ég sagði að ef hann myndi hlægja núna þá væri þetta 5-4.

Hann hló.

Sebas fór í fýlu.

Eftir smá þref þá hófst leikurinn að nýju.

Ég vann!


Gangabolti

Ég og Sebs stundum núna grimmt að fara framm á gang og taka eitt stykki leik uppá 10 í fótbolta.

Með mjúkum bolta

Völlurinn er sirka 3 mtr á lengd og 3 mtr á breidd. Ég er ávallt í gluggamarkinu sem er einmitt 3 mtr á breidd og upp í loft. Sebas ver hurðamarkið sem er uuuuu....sirka hurð á breidd og lengd.

Þessi mismunur á stærð markanna virkar eiginlega fullkomlega. Ef hann dúndrar vel í hornin þá er 50/50 hvort hann skori eður ei. Ég þarf hins vegar að nota göbbin svolítið og plata hann til að skora. Eða treysta á mistök í markinu hjá honum.

Þetta eru hörkuleikir. Fara yfirleitt í 9-9 og svo fer eftir stemmingu og tíma sem við höfum í annan leik hvort ég leyfi honum að skora eða ekki.

Oftast höfum við tíma í annan leik uppá 5 þannig að ég gef ekkert eftir í fyrri leiknum og reyni að vinna. Stundum dugar það. Stundum ekki.

Hann átti mjög erfitt með að tapa fyrst um sinn. Fór upp við vegg með hendur fyrir aftan bak og sagði yfirleitt með vonsvikin svip ,,það er bara þannig".

Þannig að fyrst leyfði ég honum að vinna oft svo ég gæti sýnt honum graceful looser. Ég kenndi honum að sá sem tapar fer umsvifalaust að sigurvegaranum og býður fram hönd sína og segir ,,til hamingju".

Hann kann það núna.

En ef hann tapar núna 10 leiknum er hann fljótur að stinga upp á öðrum leik upp á 5. Sem ég leyfi honum yfirleitt að vinna.

Ég reyni að hafa þetta jafnt svo allir vinni og tapi einu sinni

En ef hann vinnur 10 leikinn og við förum svo í 5 leik og hann tapar, þá er hann alltaf kominn með uppástungu uppá 2 leik.

Hann vill alltaf eiga síðasta sigurinn


Guetta

Hvað er málið með David Guetta? Hallærislegri gaur er varla hægt að finna Voða kúl eitthvað á bakvið borð, veifandi höndum og þykjast ýta á fullt af tökkum. Brotha plís......hann ýtir bara einu sinni á play í upphafi lags og fake-ar svo rest. Að...

bíó

Mæli með Cedar Rapids myndinni Lágstemmd kómedía um vandræðalegan kall

undir veðrinu

Er aftur slappur Fékk eyrnabólgu um helgina og lá allan laugardaginn. Svo hresstist ég en núna vaknaði ég með mikla gubbutilfinningu. Mjög bumbult. Svo hefur þetta þróast út í almenna beinverki og ég er núna full fledge veikur. Ég hef DK grunaðan, hann...

Í hverju er maður bestur?

Fór að pæla í hverju ég væri bestur af öllu sem ég kynni að gera Það fyrsta sem mér datt í hug var að ,,mannþekkja" fólk. Veit samt ekki, það er svo margt sem maður kann. Svo datt mér í hug að ég væri nokkuð góður í að rannsaka hluti og kynna mér...

Prump

Var að pæla.....af hverju mér bregður oft svona þegar DK prumpar Hef komist að þeirri niðurstöðu að þetta er bara eitthvað svo óeðlilegt. Að svona lítið og krúttlegt barn skuli stundum skáka hinum stóra hval sem ég er, bæði í styrk og lykt. Ég bara á...

Biðraðir

Ég er mikill aðdáandi biðraða. Hér er komin skýring á því af hverju ég er alltaf í hægustu röðinni

vendipunktur

Þá vitum við það

Tiger

að horfa á Tiger í baráttu um titil. Loksins. Vona að hann taki þetta og að þetta verði vendipunktur á hans ferli. Alltaf gaman að fylgjast með honum. Þó þú fílir hann ekki. Viðurkenndu það, það er gaman að horfa á mót þegar hann er með. Eins og flestir...

Skemmtisið

Fórum aftur í Skemmtigarðinn. Fórum aftur á gula mótorhjólið. Fengum bara einn leik í þetta sinn. Ég veit af hverju. Síðast þegar við fórum þá höfðu sennilega fáir notað tækið þ.a.l. vorum við alltaf að bæta ný met og komast áfram í nýjan og nýjan leik....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 153613

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband