Leita í fréttum mbl.is

Ný könnun

Viltu harðan eða mjúkan pakka í ár?

Það er komin ný könnun hér á hægri hönd.

Kjósið!

Þess má geta að áttatíuogeitthvað prósent vildu fara aftur í tíman í stað fram.

Áhugavert


kassagítar

Ég var að spila á rafmagnsgítarinn fyrir strákana. Sem fyrr.

Skyndilega fer Sebastian inn í herbergi og kemur út með einn kassann sem jóladótið var í.

Réttir mér kassann og tjáir mér að núna geti ég bara spilað á kassagítar

Sniðugur

Honum datt þetta sjálfum í hug


too cool for school

Davíð Kári hefur ákveðið að hætta að velta sér yfir á magann. Hann tók smá rispur í sirka 1-2 vikur og fannst það sniðugt en hann er over it núna.

Hann bara liggur núna á bakinu og purrar


nýja jólakveðjan í evrópu

Merry crisi and a happy new fear!

jól

Jólatréið komið upp og skreytt. Meira að segja pakkar undir tréinu. Sebas heldur áfram að vera unimpressed með þessar jólasveinagjafir. Ætla að spara mér pening og gefa honum þá bara eitthvað enn ódýrara fyrir vikið. Mandarínur eða eitthvað álíka.

Í dag fékk hann lítin löggubíl og litla lögguþyrlu. Hann vaknaði, náði í þetta og svo bara fór hann í psp.

ég spái því að hann fái Pez á morgun


ládeyfð

Fórum á tónleika í Vídalínskirkju með Diktu og Of monsters and men

Frekar lágstemmt

Ekki mikið fyrir augað fyrir gítarperra eins og mig. Samt alltaf gaman að fara á tónleika

Myndi segja að Of monsters hafi stolið soldið tónleikunum. Fannst þeir skemmtilegri.

Ég man þegar ég sá Cliff Clavin fyrir sirka einu og hálfu ári síðan þá vorum við Beta sammála um að þarna færi skemmtilegasti trommari Íslands.

Svo fór Beta á tónleika með Of monsters um daginn og tók eftir að trommarinn þeirra var ekkert síðri. Fáránlega skemmtilegur og kraftmikill.

Viti menn, þetta er sami gaurinn. Föttuðum það í kvöld. Hann er klárlega numero uno í dag. Unun að fylgjast með gaur sem svoleiðis lifir sig inn í það sem hann er að gera. Gefur sig allan í þetta.

Þennan gaur í framtíðarhljómsveitina mína!

Allavega, þetta markar tímamót í sögu DK. Hann fór í fyrsta sinn í pössun. Allt gékk vel. En mikið var hann ánægður að sjá mömmu og pabba aftur. Brosandi út að eyrum. Samt í góðu yfirlæti með afa sínum og ömmu að horfa á kvenna handboltann.

Allavega, hef farið á betri tónleika en samt gaman


similaritus exactus

Þessi auglýsing................. 

...........minnir mig alltaf á þennan gaur 


FB

Er að elska þetta nýja FB timeline

Ekta fyrir nörd eins og mig.

Er að fylla upp í eyðurnar. Setja atburði og slíkt.


Klám pre 1990

Ok, að neðan er færsla um mín fyrstu kynni af tölvu.

Mín fyrstu kynni af internetinu er álíka sorgleg.

Ég man að ég og Árni vorum einir heima. Við kveiktum á tölvunni, sem nú var komin inn í sérstakt tölvuherbergi.

Kveiktum á módeminu. Það eitt og sér tók um 10 mínútur.

ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ...........BAAAA-DONG-A-DONG-A-DONG-A-DONG.....
..........SUUUUUUU#$$%=#(/)(&)(#/ASDJFO#()$hfo#)($wKLJFSUUUUUURG......

Come to think of it.....þetta hljómaði í raun eins lag með Radiohead post 2000.

Við allavega sátum og horfðum á módemið framkvæma þetta viðbjóðslega surg.

Loksins varð allt hljótt!

Við hófumst þá handa við að leita að einhverju stöffi sem kallaðist internet en fundum ekkert (I kid you not).

Opnuðum því næst eitthvað sem við héldum að væri líklegt til afreka.

!!!!!!!!!!!!!!!Netscape Navigator!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Nafnið eitt og sér hljómaði ótrúlega spennandi

Við sem sagt opnuðum það og bara ,,já.....og hvað svo?"

Við vissum að þetta internet var eitthvað spennandi en ekkert meira en það.

Bara hreinlega vissi ekki til hvers það var.

Það eina sem ég hafði heyrt af því var eitthvað í sambandi við eitthvað að gera með Pamelu Anderson

Þannig að við skrifuðum bara ,,Pamela Anderson" í vefslóðarlínuna (sem ég vissi ekki neitt til hvers var at the time) og ýttum á enter.

Ekkert gerðist.

Í langan tíma.

Við strokuðum þetta út og skrifuðum aftur.

Og ýttum aftur á Enter.

En í þetta sinn ákváðum við að vera þolinmóðir og fórum út að gera eitthvað. komum aftur inn eftir einhvern tíma með von í brjósti um að eitthvað stórfenglegt hefði gerst á meðan.

Ekkert.

Við slökktum.


PC 286

Atari, Commodore, Nintendo gamla, Sega

Alltaf þegar menn rifja upp með sælutilfinningu þessa gömlu góðu tíma þegar menn léku sér í ofangreindum tölvum þá stend ég á gati.

Ég var uppi á þessum tíma en bara einfaldlega átti aldrei neitt svona stöff.

Bömmer

Ég man að fyrstu kynni mín af tölvu var PC 286 eða eitthvað álíka. Ég var sirka 7-9 ára gamall.

Ég man að þetta var algjört móment. Við stilltum henni upp í stofunni. Við vorum öll fjölskyldan saman komin. Kveiktum á tryllitækinu, ekki vitandi neitt hvað myndi gerast. Ekki hugmynd.

Erfitt að ímynda sér þetta núna en þetta var í fyrsta sinn sem maður kveikti á tölvu!

nuthin like it!

Hvað gerðist..........Svartur skjár með blikkandi punkti.

Jei...ég man að við vorum bara ,,is THIS IT!"

Þá var hringt í Hauk Ásgeirs og hann fenginn til að gera eitthvað voodoo magic stöff.

Eftir nokkra daga þegar við fengum tölvuna aftur þá var það með von í hjarta að eitthvað magical myndi gerast í þetta skiptið.

Svartur skjár með 5 valmöguleikum

Einn af þeim var MS Paint

Allt hitt var eitthvað mumbo jumbo

Þannig að maður var bara í paint!

Good times!

Þannig að þegar einhver fer að tala um Sega, Atari eða Comodore, þá ætla ég bara að minnast á hina gömlu góðu daga PC 286 og MS Paint.


ÖS

Jólatörnin byrjar á morgun. Opið hjá okkur til 22. Spurning hvort einhver mæti svona seint um kvöld. Ætli maður taki ekki bara gítarinn með. Aldrei að vita nema maður detti ekki í eins og svona eitt gott session. Lofa að taka ekki jólalög Þetta verða...

G-Thang

Gítarinn minn er sennilega sá svalasti í bransanum. Mesti höstlerinn allavegana. Hann var alltaf að slíta G-strengi Svo oft að það var undarlegt þannig að ég fór með hann í yfirhalningu hjá sérfræðingi. Núna ætti hann að haga sér Alltaf að slíta...

Sebas og skór

Ég gleymdi að segja Sebas frá því að Jólasveinninn gefur bara smærri gjafir í skóinn. Ekki af stóra listanum hans sem hann er búinn að vera að skrásetja síðan um miðjan nóvember. Beta heyrði þrusk kl 06:25 og hnippti í mig. Er ég reisti mig pínu upp og...

ATH...ekki rasistafærsla

Hafið þið pælt í því af hverju það er hvíti maðurinn sem apar allt eftir svarta manninum en ekki öfugt? Litlir hlutir eins og --að kless´ann --Bling bling dæmið --að kalla konur bitches --að segja ,,yo" --að segja ,,shiiiiii" --að segja ,,aight" Og þess...

Skífa ársins?

In the pit of the stomach með We were promised jetpacks er sennilega besta plata þessa árs að mínu mati. Búinn að hlusta reyndar bara einu á hana en þvílíkt impact. Þetta er nánast nákvæmlega eins og ég myndi vilja semja sjálfur. Myndi kannski vilja pínu...

Leyfið mér að kynna............We were promised Jetpacks

Ég er búinn að bíða í sirka 12-18 mánuði eftir svona mómenti! Loksins eitthvað sem hreyfir við manni Lagið byrjar rólega. Fyrir þá sem ekki hafa þolinmæði til að hlusta á allt lagið þá skaltu gera þér greiða og hlusta allavega frá mín 2 og í eina mínútu....

Toyota

Við keyptum 2008 árgerð af Toyota Verso þann 22.sept af Betri Notuðum bílum hjá Toyota. Það komu einhver viðvörunarljós í mælaborðið um mánuði síðar. Fórum með hann til Toyota og þeir endurstiltu ljósið og sögðu þetta vera allt mjög saklaust. Þetta er...

-..-.----....-.-...--

mmmmyeah......today is sunday mmhmm.....pretty much yup

Autolux

Vá, er ekki að hata þetta. Frekar nett hljómsveit

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 153613

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband