Leita í fréttum mbl.is

Kobbi Magg

Ú men.....Fékk Ævisögu Jakobs Frímans sem heitir því skemmtilega nafni ,,Með sumt á hreinu"

Búinn með einn kafla og þetta lúkkar helvíti vel.

Hún er soldið skrifuð eins og hann sjálfur væri að tala við mann. Rosalega hástemmd og flott. Eins og honum er einum lagið.

Beta fékk bókina hans Hallgríms Helga....sjiiiiii hann er svo ekki málið fyrir mig. Með alla þessa stæla í ritstílnum. Pirrandi.

En, Beta fílar hann.

Hún klárlega fílar gaura með stæla......hmmmmmmm


hlutir sem maður gerir

Hlutir sem maður gerir af því að maður er lúði

....þegar aðalleikarinn í kvikmynd kafar neðansjávar án köfunarbúnaðar þá held ég niðrí mér andanum líka til að sjá hvort ég myndi deyja eða lifa af

....ég tel alltaf stjörnurnar þegar Paramount lógóið birtist í upphafi kvikmynda

....opna munninn í takt við munninn á DK þegar ég er að mata hann. Ósjálfrátt

....Stoppa örbylgjuofninn sem næst núlli án þess að niðurtalningin klárist því þá líður mér eins og ég sé að aftengja sprengju


Siggi Suarez

Við borðuðum hangikjöt í gærkvöldi.....sem er ekki frásögu færandi nema hvað að þetta er ekki eitthvað stöff sem ég er vanur að borða.

Þess vegna var fótboltinn sem ég og Sebas tókum eftir mat mjög skrautlegur

Ég rak svo íllilega við að Sebas gaf mér gula spjaldið

Í seinna skiptið fékk ég beint rautt!

...sem þið vitið hvað þýðir.......

8 leikja bann!


Vá, þetta er svo mikil kaldhæðni að ég nánast prumpa á mig!

,,......fólk horfi framhjá glysi og skrauti!" segir Páfinn sitjandi í gull hásæti skreytt demöntum með glyngur um hálsinn. Inn í húsi þar sem veggir eru skreyttir milljónkróna list hátt og lágt.

Vá! Hvílík kaldhæðni og hræsni!


mbl.is Fólk horfi framhjá glys og skrauti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Action Wars

Sebas fannst hann náttúrulega vera umsvifalaust kominn í hljómsveit þar sem hann átti núna gítar.

Stebbi (pabbi Betu) spurði hann hvað hljómsveitin hans héti

,,Action Wars" svaraði gítargoðið strax

JÁ SÆLL

Ekki slakt nafn fyrir 4 ára gutta!

Sennilega blanda af Star Wars og Action man

Klárlega búinn að hugsa þetta áður strákurinn


pakkar

Sebas fór yfir um þegar hann tók upp gítarinn. Urðum báðir sirka jafn ánægðir.

Þetta fór eins og ég spáði. Hann henti sér í pósur tvist og bast með gítarinn um hálsinn.

En það var svo mikið af pökkum að á einhverjum tímapunkti var hann farinn að rífa utan af pökkunum sínum án þess að kíkjá hvað hann fengi. Bara rífa upp og næsta takk.

En ég var búinn að innprenta nógu mikið í hann að þakka alltaf vel fyrir sig og vera þakklátur yfir höfuð. Það tókst ágætlega. Vesenið var að muna hverjir gáfu manni hvað.

Þetta var allavega raging success.

P.s. Ég gaf Betu tvær gjafir. Hún ætlar að skipta þeim báðum. Ekki svo mikið ragins success.


Jólakeðja

Merry Crisis and a happy new fear

Gjafir

ooo men.....ég hef sjaldan verið jafn spenntur yfir gjöfum á jólum.

Reyndar ekki gjöfum til mín.

Heldur get ég ekki beðið eftir að fylgjast með Sebas opna allt stöffið sem hann setti á óskalistann

Líklegt til vinsælda:

Flying V alvöru rafmagnsgítar í barnastærð, með magnara.
Francesco rafmagnsbíll úr ,,Cars"
Mikki, flutningabíll úr ,,Cars"

Tíminn mun sennilega standa í stað þegar hann tekur upp rafmagnsgítarinn. Spái ég.

Svo mun allt byrja að hreyfast í slow motion og ég sé fyrir mér að hann eigi eftir að taka hann í hendur og slæda sirka 4 metra á parketinu að hætti Angus Young og detta beint í Highway to Hell stefið.

Eða hann verði fyrir vonbrigðum því mér hefur mistekist að fá hann til að fíla Flying V betur en Gibson Explorer. Vona að hann opni ekki bara pakkann og líti á mig og segi ,,en ég vildi svona með tveim hornum sitthvoru megin í báðar áttir!"

Þá mun lífi mínu sennilega ljúka af vonbrigðum

STAY TUNED!!!!


Obligatory frétt aðfangadags

Ég er gríðarlega spenntur!

Loksins, loksins fæ ég hugsanlega að uppfylla gamlan draum

Draum sem ég hef átt alveg síðan ég komst til vits og ára

Ég á eftir að kaupa eina gjöf!

Hvað þýðir það?

Ég verð hugsanlega einn þeirra sem koma í fréttinni sem sýna eiginmenn á hlaupum korter fyrir lokun verslana á morgun.

THAT´S THE DREAM!!!!

Ég ætla að hlaupa nokkrar ferðir upp og niður Laugaveginn. Þykjast vera geðveikt taugaveiklaður. Þeir hljóta að ná skoti af mér.

STAY TUNED!!!!


Takk

Fórum niðrá Laugarveg eftir vinnu í kvöld. Djöfull var þetta perfect kvöld.

Brilliant veður, stillt og fallegt. Akkurat passlega mikið af fólki og bara almenn gleði.

Sáum Jójó spila, nokkra gaura inn í búð, 2-3 karóll singers og svo Of monsters and men.

Of monster helvíti töff þarna bara á miðjum laugarveginum. Hentu bara í 3 lög eða svo. Hress að vanda.

Við hittum mann og annan. Frændfólk og vini. Svo náttúrulega Forsetan og Dorrit. En best fannst mér þegar við vorum komin efst á Skólavörðustígnum á leiðinni inn í bíl kl sirka 21:30. Þá rákumst við á Mugison á horninu.

Ég vatt mér náttúrulega að honum og tók í hendina á honum og sagði ,,Takk".

Hann er klárlega vanur því að fá svona almúga á sig því hann vippaði sér úr lúffunum á 0.1 sek og sagði ,,Þakka ÞÉR".

Stórsniðugt Þorláksmessukvöld!


muggi

Sá Mugison í sjónvarpinu. Flottur. Djöfull er singin swingin singin lagið géðveikt. Sirka topp 10 besta lag Íslands undanfarin 10 ár eða svo. Myndi samt ráðleggja honum að leggjast aðeins í grafir eftir þessa törn. Hann er búinn að vera svo rosalega...

Siggi stubbur

Ég er að þjálfa DK upp í að horfa á stubbana Hann sýnir smá áhuga. En um leið og það koma dauðir partar þá kvartar hann. Var að pæla hversu sweet það væri að búa þarna í stubbalandi. Frír matur, engi fullt af blómum þar sem maður getur bara hent sér...

jóla hvað

Jei, dagurinn verður bara lengri og lengri hér eftir Stysti dagurinn var náttúrulega í gær. fannst hann samt ekkert stuttur. Var að vinna til 22 um kvöldið. Brjálað að gera. Núna eru tveir dagar eftir í jólamadnessi og svo kemur...

Verstu plötur ársins?

Það eru tvær sem koma til greina LULU með Metallica og Lou Reed og The King of Limbs með Radiohead Verstu plötur ársins? hmmmmmm Þá meina ég miðað við og deilt með status í katalógíu flestra

Plötur ársins?

Var að hugsa um hvaða plötur væru bestar á árinu.....af hverju man ég ekkert eftir neinu? Fattaði bara núna fyrir nokkrum dögum We were promised jetpacks plötuna 1. In the pit of the stomach Svo fílaði ég Chilipeppers plötuna 2. Im with you Get ekki sagt...

Idiot

(Margmiðlunarefni)

pipargægir

Gluggagægir kom í nótt. Hann gaf Sebastian 12 stauka af pezi. Sebas fílaði það Við létum piparkökudallinn fyrir neðan gluggann svo hann gæti smakkað pínu. Hann tæmdi dallinn og það voru piparkökur út um allt. Úti á svölum og allt. Sumum fannst það...

Rush

Það var jólaball í Capacent í dag. Þegar ég kom í lokin eftir vinnu þá voru allir krakkarnir í nammivímu, hlaupandi eins og maniacs út um allt gólf. Engjar ýkjur Sebas að elta Emil og öfugt Jólasveinarnir farnir og búið að taka göngutúr í kringum tréið...

The art of giving

Sebas fékk nammi í skóinn. Viti menn. Hann var ánægður. Kids these days! Tókum svo jólaþeytinginn á þetta og versluðum í allan dag. Fórum í Kringluna og skiptum liði Beta og DK fóru og keyptu gjöf handa mér frá strákunum. Ég krafðist þess að svo þurfti...

körfubolti?

Sebas er alltaf í bolta á sunnudögum upp í Kór með Breiðablik Við erum á grasinu og þar er stuð. Við tökum alltaf smá rispu ég og hann eftir æfingu. Helbert fjör. Síðastliðin sunnudag voru krakkarnir hinsvegar í litlum sal uppi. Hann var tvískiptur....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Strákurinn

Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Sigursteinn Ingvar Rúnarsson
Fallegt hávaxið eintak af alter egó karlmans. Skrifar um það sem honum dettur í hug og á það til að ýkja það upp úr öllu valdi til að gera það sem áhugaverðast fyrir leikmanninn.

Bækur

Bókalistinn


Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband